Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Page 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Page 43
veldissinnuðu fræðimenn, er þama hafa að unnið, ekki klýjað við að skálda upp heilt þróunarkerfi um menn á þessum slóðum. Vafalaust, að því er helzt verður skilið, til þess að reyna að þurrka íit allt, sem minnir á áhrif og eignarrétt íslendinga á þessu landi, þ’ ert ofan í allar sögulegar staSreyndir, auðsjáanlega í þeim tilgangi einum að reyna með því að brjála svo vitund umheimsins um þessi mál, aS réttarrán þeirra á landinu öðlist löghelgi í augum þeirra er lít-t þekkja til, og ennfremur stinga Islendingum svefnþorn um hinar eðli- legu skyldur þeirra (Isl.) í þessum málum. Þetta sann- ar m. a. nafngift þeirra á löndum vorum í Græniandi til forna, aS kalla þá Nordboer og spinna upp sögur um útdráp þeirra af Skrælingjum. Ennfremur að koma þeirri kenningu á loft að Eskimóar séu Skrælingiar. Má hver lá mér sem vill, þótt ég geti ekki fremur en dr. Jón Dúason fallist á slíkt framferði sem heilbrigSan grundvöll undir norræna samvinnu. En er þá þetta réttarbrot Dana á Islendingum, hvað Grænland snertir nýtt fyrirbrigði um afstöSu þeirra gagnvart þeim? Minnumst þess, að enn er eigi ökl liðin frá útgáfu stöSulaga þeirra varðandi fsland, sem áttu að reka endahnút á tilraun Dana til aS gera fsland að nýlendu sinni (land, sem þó var löglegt réttarríki sérstæðrar þjóðar að öllu formi) og voru komnir langt í því verki sínu, að brjála vitund íslendinga sjálfra, hvaS þá held- ur annara þjóða, um rétt þeirra til aS ákveða réttar- stöðu sína og þjóðskipulagsform sjálfir. Tómleika vorn um réttarstöSu Grænlands má því fyllilega telja hliðstæðan viS þann efa, sem þó nokk- uð víðtækur var orðinn hjá oss á einokunartímanum og lengur, um réttindi vor til sjálfstæSis. ÞaS má því segja, að vér séum tæplega vaxnir upp úr illgresi áþjánarinnar ennþá. II. Það er ekki tilgangur minn að sverta dönsku þjóð- ina með þeim ummælum, sem eg hef hér haft, né ásaka núlifandi Dani, sem þjóS, fyrir þau rangindi og þá kúgun, sem valdamenn þeirra og fjárbraskarar beittu oss á umliSnum öldum með hjálp konunga vorra og oft innlendra ráðamanna vorra, því miður. Staðreyndir sög- unnar liverfa ekki af sjónarsviðinu þótt margir kunni að vilja gleyma þeim, því aS altaf geta einhverjir orðiS til að draga þær fram í dagsljósið á óvæntan hátt. Hitt væri sönnu nær að reyna heldur að gera sér prcin fyrir hvert sú þróun hafi stefnt, sem svo fast knúði dyra hjá oss íslendingum á liSnum öldmn og enn í dag, hvað Grænland snertir, í mynd danskrar yfirdrottnunar. MaSur getur fengið góða liugmynd um það með því að rýna í rit Jóns ASils um Einokunarverzlun Dana á íslandi. Það sýnir hvernig konungar Danaveldis reyndu að skapa þungamiðju í riki sínu til þess að styrkja fjáraflaplön konungsættarinnar og mynda rík- iskjarna innan veldisins, sem aftur tryggði konungin- um meiri möguleika á aS halda veldi sínu saman og aúka þaS. Þetta var byrjun á dönskun alls veldisins. Danaveldi var samsett af mörgum þjóðlöndum, sem mynduðu sam- eiginlegt veldi utan um persónu konungsins. Samruni liinna dönsku þjóðlanda, eSa það, sem við nú köllum Danmörku, varS auSveldastur vegna nálægðar þeirra hvers við annað, og svo að segja sömu tungiunál og at- vinnuhætti. En ])etta gekk ver með hin fjarlægari ]).) óð- lönd, svo sem hinar þýzkbyggðu Hansaborgir og hertoga- dæmi, aS maSur ekki tali um Noreg og ísland. En þessi hugsjón varð til og tók á sig töluvert áþreifanlega mynd veruleikans, sem í höndum viturra og hugsjónaríkra framkvæmenda hennar hefði getað skapað hetri afleiðingar fyrir þessar samveldisþjóðir. En hún gerSi þaS ekki vegna þess, að aðal-áherzlan var lögð á að arðræna og skattpína hina fjarlægari hluta veld- isins til þess að byggja upp ríkiskjarnann, sem þarna varð Danmörk, og á tímabili gerði hana að einskonar- miSstjómarríki gagnvart öðrum ríkjum í veldi konungs. Og það er þessi aðstaða Dannierkur, sem varð okkur hættuleg og náði hámarki örþrifatilraunarinnar með stöSuIögunum. En hún hefur einnig boriS í búk sínum banamein Danaveldis, sem samveldis þjóðarríkja um per- sónu konungs. Og þótt sýnu seinna hafi að borið sund- urlimun þess en til stóð, þá er nú svo komið að þessi ])róun hlýtur brátt aS vera á enda. Innan þessa veldis eru nú ekki eftir utan Dan- rnerkur annaS en Færeyjar, sem voru norskt skattland, — og nokkur liluti hins íslenzka þjóSf jelagsvalds, Græn- land, sem haldið er þar með ofbeldi fyrir utan öll lög ng rétt. Þetta er orðin þróun hinnar miklu dönskunar, sem Danakonungar hófu. Þjóðir Danmerkur hafa runnið saman í eitt í at- vinnuháttum, menningu og máli aS mestu, og líkiega er það gott, en þeir Danir horfa of mjög aftur, sem halda að Færeyingar eða Grænlendingar geti orðið danskir. Það eru einmitt þessi afturhaldssjónarmið ýmissa danskra manna, sem hafa ráSið afstöðu hinnar dönsku þjóðar til okkar íslendinga fyrr, og nú síðast kulda þeim, er þeir sýndu okkur við lýðveldisstofnunina. ÞaS eru þessir menn, sem vilja gera Færeyinga danska, Grænlendinga að Skrælingjum og land þeirra danskt, og einnig okkur fslendinga, ef þeir hefðu getaS. Og það sem verst er, er að svo virSist oft hafa aðborið, að danska þjóðixi sjálf hefui' virzt láta blekkjast af hug- sjónum þessara manna, og ekki gert sér l.jósa grein fyrir því, hvaSa þróun hefur skapað tilveru hennar, og að einmitt menningarstig það, er hún stendur á, leggni' henni þá skyldu á herðar, að bæta fyrir þau brot er feður hennar hafa framið á liinum fyrrverandi minni máttar ])egnum konungs hennar. Þetta er fyrsta jákvæða sporiS, sem lmn getur stigið,ef liún kærir sig um að leggja heilbrigSan grundvöll undir norræna sam- vinnu. Og þetta er aS losa sig við löngunina til að danska það, sem aS eðli til aldrei liefur veri'S danskt. Afhenda Færeyingum sjálfstæði sitt og afhenda íslandi V í K I N □ U R 107

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.