Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Side 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Side 51
samt, og svo er að sigla á miðin aftur, þegar veður lægir, í stað þess að vera á staðnum þar sem fiskað er. Við höfum mörg dæmi um að bátum hlekkist á er þeir leita lands í myrkri og dimmviðri. Ef þeir liefðu þessi legufæri, væri þá ekki örugg- ara að leggjast og bíða þar til birti af næsta degi eða veður skánaði? Sé um vélabilun að ræða getur báturinn lagst strax, meðan staðar- ákvörðun hans er nokkurn veginn viss, og þá auðfundinn, í stað þess að skip, sem koma hon- um til aðstoðar, þurfi að leita hans um langan veg við hin verstu skilyrði. Væri nú ekki rétt að taka þetta sem fyrst til athugunar af réttum aðilum, skipstjórum, útgerðarmönnum og skipaeftirlitinu ? Telji þessir aðilar að um aukið öryggi sé að ræða, ættu þeir ekki að vera lengi að velta því fyrir sér hvað gjöra skuli, heldur vera skjótir til framkvæmda. Þorv. Björnsson. Smœlhi Grískir hermenn áttu að fá verðlaun fyrir þá ítali, sem þeir legðu að velli, 20 dínara fyrir hvern, sem félli á flótta, en hálfu meira ef hinn fallni hefði snúið gegnt andstæðingnum. Skæðar tungur sögðu að hærri upphæðin hefði aldrei verið greidd. ★ Fraklei o<j Ameríkumaður rœd'ast viff. Frakkinn: Ekki er ættfræðin á liáu stigi í Ametfku. Það myndi kosta flesta Ameríkumenn mikla rannsókn í fjölda landa a'ö komast að raun um liverjir séu afar þeirra. Ameríkumaðurinn: Alveg rétt. En á hinn hóginn er það verkefni flestum Prökkum ofvaxið, hversu iöng- um tíma sem þeir verja til þess, a'ð komast fyrir hverjir séu feður þeirra. ★ V í K I N G U R Sagt er að skriðdrekar ítala væru búnir átta „gearum“ til að komast aftur á bak, en einum „gear“ áfram. —- Til hvers hafa þeir þennan eina „gear“ ? spurði maður nokkur, sem heyrði skrítluna. —- Það er gert til vonar og vara, ef ráðist yrði að þeim aftan frá, svaraði annar. ★ Presturinn mætir Tobu gömlu á götu. Tobba er sann- kristin og fer til kirkju á liverjum sunnudegi. Prestur segir: Jæja Þorbjorg mín. Nú verður ekki messað tvo næstu sunnudaga, því að eg ætla að taka mér sumarleyfi. Tobba: Þá held eg að fjandinn verði nú ekki iðjulaus á meðan, því ekki fær hann sér sumarleyfi. Prestur: Mér finnst að vi'ð æltum nú ekki að taka hann til eftirbevtni. Tobba: Satt er það, prestur minn. En ástundun og ár- vekni inættum við öll af lionum læra. r*. 115

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.