Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Qupperneq 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Qupperneq 17
£á dfautnAjtaki SAGA EFTIR W. W. JACDBS Draumar og fyrirboðar eru hlutir, sem ég hef ekki mikla trú á, sagði næturvörðurinn. Ég segi fyrir mig, að eini draumurinn minn, sem nálgaðist nokkuð að rætast, var þegar mig dreymdi, að mér hefðu áskotnast auðæfi, og næsta morgun fann ég hálfkrónu á götunni og seldi hana fyrir fjörutíu aura. Og einu sinni, tveimur dögum eftir að kerlinguna mína dreymdi að hún hefði hellt úr tebolla niður á sparikjólinn sinn, hellti hún niður málningar- krús fyrir mér með því að setjast ofan á hana. Eina drauminn, sem ég veit til að hafi rætzt, fyrir utan þessa, dreymdi kokkinn á barkskipi, sem ég var einu sinni á og hét South- ern Belle. Hann var heimskur náungi með bollu- andlit, sífellt að slá um sig með menntun við sjóarana, sem ekki höfðu neina trú á henni, og eina nótt, þegar við vorum á heimleið frá Sid- ney, settist hann allt í einu upp í bælinu og hló svo hátt, að hann vakti okkur alla. „Hvað gengur á, kokksi?“ segir einn af pilt- unum. „Mig var að dreyma“, segir kokkurinn, „svo kátlegan draum. Mig dreymdi, að Bill gamli Foster dytti niður úr frammastrinu og fót- brotnaði." „Nú, hvað er svo hlægilegt við það?“ segir Bill gamli heldur hvasst. „Það var svo kátlegt í draumnum", segir kokkurinn. „Þú varst svo hlægilegur með sam- anvöðlaðan fótinn undir þér.“ Bill Foster sagðist skyldi koma honum til að hlægja í öðrum dúr ef hann gætti sín ekki, og svo fórum við aftur að sofa og steingleymdum þessu. En viti menn, aðeins þremur dögum seinna datt aumingja Bill niður úr frammastrinu og fótbrotnaði. Hann var undrandi, en ég hef aldrei séð mann eins undrandi og kokkinn. Augun ætluðu út úr hausnum á honum, en um það leyti, er hinir piltarnir voru búnir að taka Bill upp og spyrja hann, hvort hann hefði raeitt sig, var hann búinn að jafna sig og sló svoleið- is um sig, að manni varð óglatt af að hlusta á það. „Draumar mínir rætast æfinlega,“ segir hann. „Það er einskonar sjötta skilningarvit, sérstök dulargáfa; en þar eð ég er hjartagóður maður, veldur það mér stundum hræðilegu hugarangri“. Svona hélt hann áfram, hældi sér af því, sem var hreinasta tilviljun, þegar annar stýrimaður kom upp og sagði þeim að bera Bill niður. Hann leið hroðalegar kvalir, eins og gefur að skilja, en hann hélt fullum sönsum, og þegar þeir fóru framhjá kokknum, gaf hann honum svo vel úti látið högg á vangann, að minnstu munaði, að hausinn brotnaði. „Þetta færðu fyrir að dreyma um mig“, seg- ir hann. Skipstjóri og fyrsti stýrimaður og flestir piltanna gengu á milli, og þegar skipstjóri hafði komið honum, það sem hann kallaði þægilega fyrir, en Bill kallaði allt annað, sem ekki er eftir hafandi, fóru yfirmennirnir burt, en kokk- urinn kom og settist við rekkjustokkinn hjá Bill og talaði um gáfu sína. „Ég tala ógjarnan um það“, segir hann, „vegna þess, að fólk er hrætt við slíkt“. „Þetta er dásamleg gáfa, kokksi", segir Char- lie Epps. Allir voru á einu máli um það, þeir vissu ekki hvílíkur fyrsta flokks lygari kokkurinn var, og hann sat þarna og laug í þá, þangað til hann kom varla upp orði, hann var orðinn svo hás. „Amma mín var sígauni“, segir hann, „og þetta er í ættinni. Það, sem á að koma fyrir fólk, sem ég þekki, birtist mér í draumi, eins V í K I N □ U R 1.53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.