Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1954, Side 13
Síðan þegi ég litla stund, en bæti því næst við:
— Það er bezt að allt sé gleymt.
Klukkan tvö á annan í hvítasunnu, 4. júní,
vorum við komnir á móts við Sauðanesboða. Var
þá komið stillilogn, svo að skipið hreyfðist ekki.
Þaðan er aðeins stuttur spölur til Þórshafnar.
Settum við nú út skipsbátinn, til að róa skipið
inn, þótt liðfáir værum. Höfðum við skamma
hríð róið, þegar bátur kom á móti okkur með
sex mönnum. Hafði Björn kaupmaður Guð-
mundsson sent hann okkur til aðstoðar, þegar
sást til skipsins.
Innan skamms vorum við komnir inn á höfn-
ina, og létum akkerið falla. Þar með var þessari
eftirminnilegu ferð lokið. Voru þá 55 dagar liðn-
ir frá því er við lögðum af stað úr Reykjavík.
Björn kaupmaður tók okkur opnum örmum.
Vorum við fyrir löngu taldir af, því ekkert hafði
spurzt til ferða okkar, nema óljóst að við mynd-
um hafa komið til Patreksfjarðar.
Ég dvaldi í landi til kl. að ganga tólf um
kvöldið, þá fór ég einn um borð í Engey. Varð
Björn kaupmaður mér samferða niður á bryggj-
una og fór að spyrja mig um ferðina. Vildi hann
fá sem nánastar fréttir af því, hvað einkum
hefði tafið okkur. Sagði ég honum að það hefði
verið margt, fyrst ís, þá mótvindur og loks
þoka. Bauð hann mér síðan að koma og borða
hjá sér morgunverð daginn eftir.
Þegar ég hitti Björn næsta dag, kvað hann
sig vanta mann við ýmsa verkstjórn sumarlangt.
Spurði hann mig, hvort ég vildi fara í land og
taka við þessu starfi. Það lá við að ég hoppaði
upp af fögnuði, því ég var fyrir löngu búinn
að fá nóg af verunni á Engey. Sagði ég Birni
að ég væri fús til að taka þessu boði. Fór ég
því næst um borð, sótti pjönkur mínar og kvaddi
Engey.
Ég var hjá Birni þar til seint í októbermán-
uði um haustið. Leið mér þar í alla staði mjög
vel. Hef ég aldrei átt betri né skemmtilegri hús-
bónda en Björn Guðmundsson.
Læt ég svo þessum ferðasöguþætti lokið.
Smœlki
Erlendur ferðamaður, er staddur var í London, var
að skoða „Yictory", skip Nelsons. Fylgdarmaður hans
gekk með honum að koparplötu, sem fest var á þilfarið,
tók þar ofan og sagði lotningarfullur:
— Á þessum stað féll Nelson.
— Það var engin furða. Ég var næstum dottinn um
plötuna sjálfur.
Patreksfjördur, Fískpvoitjir
jHftr II
| | |j
VIKINEUR
Frá skútutmianum. — Fiskþvottur á Patreksfirði í byrjun þessarar aldar.
1D7