Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1954, Page 21
hingað. Ég gæti bezt trúað, að hann væri einhvers
staðar að þvo sér“.
Áður en langt um leið var skuggalegur náungi dreg-
inn upp á þilfar af tveimur glottandi, innfæddum sjó-
mönnum. Andlitið, hálsinn og ber bringan voru með
svörtum, gljáandi flekkjum, og óhreint sápulöður jók
ekki lítið á eðlilegan ljótleik andlitsins. Pyrsti stýri-
maður glápti, þegar hann sá hann.
„Þetta er pilturinn, sem mig vantaði", sagði Jack
glottandi og skýrði stýrimanni í stuttu máli frá ópíum-
smyglinu. „Þegar hann var búinn að láta vartiinginn í
bátinn og leit niður til mín, kastaði ég tvisti, löðrandi
í tjöru, framan í hann, svo ég þekkti hann aftur. Ég
geri ráð fyrir, að það taki hann nokkra klukkutíma að
þvo sér, því hann kann auðsjáanlega ekki bezta ráðið
til að ná af sér tjöru“.
„Þetta var snilldarlega af sér vikið“, sagði stýrimað-
urinn hrifinn. „En hvað er þá bezta ráðið til að ná af
sér tjöru?“
„Ég skal segja þér það, en láttu skipshöfnina ekki
heyra það! Þegar ég var strákur í Hull, stalst ég oft
úr skólanum og hjálpaði fiskimönnunum að þétta bát-
ana sína. Ég varð oft illa tjörugur, og þá vissi mamma
strax, hvar ég hafði verið. Ég kunni enginn ráð við
þessu, þangað til gamall sjómaður sagði mér að nota
smjör!“
Nokkrum dögum seinna, þegar búið var að hafa
liendur í hári þessa smyglaraflokks, greiddi ég Jack
hin opinberu verðlaun fyrir ópíum það, sem hann hafði
klófest um nóttina. Ég fékk honum alla upphæðina og
sagði honum að nota hana sem bezt hann gæti.
„En hafir þú haft einhver útgjöld vegna þessa“, bætti
ég við, „ættirðu að láta mig vita, því það borga ég
aukalega".
Jack glotti.
„Hafðu engar áhyggjur út af því“, sagði hann. „Það
var ekki annað en hálfpottur af tjöru!“
Jrá kafi til hafinat
í þýzku fiskveiðitímariti var nýlega skýrt frá því, að
Vestur-Þjóðverjar hefðu samið um innflutning á salt-
síld frá Bretlandi fyrir um hálfa milljón króna.
* * *
í brezka sjóhernum finnast töluvert margir, sem bera
eftirnafnið Long. Það lýsir vel brezkri kímni, að þessir
menn eru alltaf kallaðir „Shorty".
* * *
Bretar hafa nýlega gert samning við Sovétríkin um
smíði á 20 dieseltogurum fyrir ca. 6 millj. stp. Eiga
þessir togarar að vera af „Jörundargerð", en töluvert
stærri og sérstaklega ætlaðir til þess að veiða í Norður-
höfum og eiga að geta stundað veiðar í allt að 30 stiga
frosti.
Togarar þessir munu hafa brennsluolíubirgðir til 7000
mílna siglingar, hafa rúm fyrir 44 manna áhöfn og
geta lestað 1200 tonn af fiski. Dieseltogararanir verða
smíðaðir hjá Brooke Marine Ltd. í Lowestoft.
Fulltrúi skipasmíðastöðvarinnar, Mr. Dowset, sem
samdi við Rússana á tímabilinu frá 30. desember til 5
febrúar síðastliðinn, lét svo um mælt við heimkomu sína
til Bretlands, að þetta myndi vera stærsti skipasmíða-
samningur sinnar tegundar, sem brezk skipasmíðastöð
hefði gert. Auk þessa samnings vildu Rússar gera samn-
inga um smíði á 7 verksmiðjutogurum, en Broke Marine
Ltd. treystist ekki til að sinna því og vísaði þeim um-
leitunum til annarra brezkra skipasmíðastöðva.
Þá hafa Rússar nýlega pantað 10 verksmiðjutogara
hjá Howalts skipasmíðastöðinni í Kiel, og á hver að
vera um 2500 tonn að stærð.
* * *
Vestur-þýzlcar skipasmíðastöðvar voru í ársbyrjun
númer 2 í skipasmíðum í heiminum með um 10%, eða
633.900 brto. tonn, en Bretar, að meðtöldu Norður-ír-
landi, eru stærstir með 34,5%, Bandaríkin eru númer 3
með 8,83%.
* * *
Á siðastliðnu ári smíðuðu Svíar skip að stærð sam-
tals 720.000 d.w.t. og slóu öll sín fyrri met í skipa-
byggingum.
Lmuveiðaranum Sigríði
breytt í dieselskip
Þeir munu fáir úr íslenzkri sjómannastétt,
sem ekki kannast við happaskipið Sigríði, sem
á sínum tíma var einn glæsilegasti línuveiðar-
inn í flotanum.
Sigríður var áður 149 smálesta gufuskip, með
242 ha. vél, en sá vélakostur fullnægði ekkí ný-
tízku kröfum, og fyrir um það bil tveimur ár-
um tók vélsmiðjan Keilir við Elliðaárvog að
sér að breyta skipinu.
Jafnframt því fór fram gagngerð endurnýjun
á skrokk skipsins. f stað gömlu gufuvélarinnar
var sett í það 600 ha. Mias dieselvél, 38 ha.
Lister dieselvél, sem drífur þilfarsvindu og dæl-
ur, og ennfremur 7 ha. ljósavél. Þilfarsvindan
var smíðuð í Keili.
Olíugeymar voru settir í skipið, sem taka 26
tonn af brennsluolíu, en það er þriggja vikna
fo,rði, og við þessar breytingar stækkaði lesta-
rúmið um 20%.
Þá voru allar rafleiðslur endurnýjaðar, ný
olíukynding sett, og skipið endurnýjað og málað
hátt og lágt innanborðs.
Vélsmiðjan Keilir, en framkvæmdastjóri henn-
ar er Högni Gunnarsson, hefur gert myndarlegt
átak með þessari breytingu á skipinu úr gamla
línuveiðaranum Sigríði í nýtízku dieselvélaskip
með 11—12 sjómílna ganghraða, en með því
fullnægir hún kröfum tímans um fyrsta flokks
fiski- eða flutningaskip af þessari stærð. — G. J.
V í K I N G U R
115