Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1954, Síða 22
1/4. Forsetahjónin lögðu upp í
Norðurlandaför sína í gær. — Varð-
skip tók brezkan togara, Lincoln
City, að veiðum innan landhelgi, með
aðstoð flugvélar — Islendingar eru
meðal þátttakenda í vörusýningu í
Briissel. — Um 220 Færeyingar
starfa hér, og eru þar af 80 á tog-
urum.
•
3/4. Rifsósi var lokað í gær og
farvegi árinnar var breytt. Von er
um að Rifshöfn verði orðin verstöð
á næstu vetrarvertíð.
•
6/4. Nýr Laxfoss verður smíðað-
ur í Danmörku og kemur hingað
sumarið 1955.
•
7/4. íslenzkur togari tekinn að
landhelgisveiðum. — Vöruskipta-
jöfnuður varð hagstæður um 7,4
millj. kr. — Vélbáturinn Skrúður
frá Sandgerði varð fyrir áfalli, með
þeim afleiðingum, að stýrishúsið
brotnaði af honum. Mannbjörg varð.
— 600 síldar merktar við ísland
veiddust nýlega við Noreg.
•
8/4. Innsiglingin til Isafjarðar
hefur nú verið dýpkuð allmikið. —
Forseti Islands sæmdur Fílsorðunni
dönsku. Er hinni opinberu heimsókn
til Danmerkur nú lokið. — Brim-
brjóturinn í Súgandafirði er þver-
sprunginn og tekinn að síga. Er
bráðra úrbóta þörf.
12/4. Afkoma ríkissjóðs á síðasta
ári var góð og varð rekstrarafgang-
ur 84 millj. kr.
•
13/4. Átta skipbrotsmenn hrökt-
ust í 22 klst. í gúmmíbát, furðu lítið
þrekaðir. Sökk vélbáturinn Glaður
frá Vestmannaeyjum rétt austan við
Eyjar, en enskur togari bjargaði
skipverjum af Hjörleifshöfða. —
Samþykkt hefur verið að segja upp
togarasamningum um allt land í
vor. Ætlunin er að einn síldveiði-
samningur verði gerður í vor fyrir
landið allt. — Þrjú stór skemmti-
ferðaskip eru væntanleg í sumar.
Eru það Batory, Caronia og Brand 6.
•
14/4. Belgískur togari sást að
veiðum innan ísl. landhelgi, og er
átti að taka hann, reyndi hann að
komast undan ísl. varðskipi. Var
skipið elt 65 sjómílur á haf út og
stanzaði fyrst er kúluskot hafði hæft
yfirbygginguna.
•
20/4. Þrír íslenzkir togaraskip-
stjórar dæmdir fyrir landhelgisbrot.'
— Metafli var í Vestmannaeyjum um
páskana og var stanzlaus vinna nótt
og dag.
•
22/4. Mokafli hjá netjabátum ;
Faxaflóa. Skógarfoss fékk svo mikið
í netin, að hann gat ekki innbyrt
allan aflann.
•
23/4. Forsetahjónin hlutu virðu-
legar viðtökur í Stokkhólmi. — Uin
340 jarðskjálftahræringar mældust í
Reykjavík árið 1953. Stærsti jarð-
skjálftinn átti sér stað á hafsbotni
fyrir Norðurlandi.
•
24/4. Opinber heimsókn forseta-
hjónanna til Finnlands í dag. —
Vinna er hafin við radarversbygg-
ingu í Aðalvík. Hafa verkamenn og
varningur verið flutt þangað. —
Fjallfoss strandaði á Sundunum í
Skutulsfirði. Var skipið fast í 7
klst., en losnaði og reyndist ekkert
skemmt.
•
25/4. Dýpkunarskipið Grettir verð
ur við að dýpka Raufarhöfn, unz
síldveiði hefst. — Líklegt er talið,
að netjaveiði sé að útrýma stóra
laxinum í helzu veiðiánum..
•
26/4. Nýlega var brezkur togari
tekinn í landhelgi, og hefur skip-
stjórinn verið dæmdur. — Yfir
20.000 lax- og silungsseiðum var
sleppt í Bessastaðatjörn. Athyglis-
verð tilraun, sem er einstæð hér á
Iandi.
•
27/4. Opinberum heimsóknum for-
seta Islands er nú lokið. Var hann
sæmdur æðsta heiðursmerki Finn-
lands, Hvítu rósinni með keðju. —
1 athugun er að hefja saltvinnslu í
Krýsuvík.
•
28/4. Nær 70 manns veikjast á
Seltjarnarnesi af taugaveikisbróður.
Nokkur tilfelli eru í Reykjavík. —
Góður árangur við nýja borun eftir
heitu vatni í Mosfellsdal. Fundizt
hafa um 15 sekúndulítrar af heitu
vatni við þessa borun. — Ágætur
afli i flestum verstöðvum.
•
29/4. Togarasjómenn segja upp
samningum. — 100 tonn af kjöti
flutt inn frá Danmörku. — Skip-
verjar á Tungufossi bjarga áhöfn
flugvélar, sem hrapaði í höfninni í
Rio de Janeiro. — Keflavík er bær-
inn, sem örast vex á Islandi. Ibúun-
um fjölgaði um þriðjung á s. I. 7
árum.
•
30/4. Fiskvinnslustöðvar hafa ekki
undan í Reykjavík, svo mikið hefur
borizt af fiski undanfarið. — For-
setahjónin sigla heim 1. maí. —
Taugaveikisbróðir breiðist ekki út.
•
1/5. 1 morgun kviknaði í stórri
mjölskemmu á Hjalteyri. Slökkvilið
Akureyrar slökkti eldinn. Mjöl var
ekki í skemmunni, en herpinætur og
margvíslegt annað verðmæti brann
þar inni. •
5/5. Ákveðið hefur verið að skák-
meistarinn FriðrikÓlafsson taki þátt
i alþjóðaskákmóti, sem hefst í Tékkó-
slóvakíu 29 þ. m. Er það undirbún-
ingur að skákmóti, sem síðar verð-
ur haldið um réttinn til að skora
heimsmeistarann á hólm.
•
7/5. Forseti Islands og frú hans
komu heim úr Norðurlandaförinni í
gær. Var þeim fagnað af miklum
mannfjölda við komuna til Reykja-
víkur.
116
VÍKIN □ U R