Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1957, Síða 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1957, Síða 2
Hátíbahöldin l Reykjavík ♦ Ásmundur Jakobsson frá Norðfiröi, skipstj á mb. Auðbjörg, er hlaut afreks- verðlaun Sjómannadagsins fyrir björgun úr sjávar- háska. Dvalarheimili aldraðra sjómanna „HRAFMIST A” vigð við hátíðlega athöfn Magnús Magnússon frá Hafnarfirði, skipstjóri á mb. Dóru, moð June-Munk- tel verðlaunabikarinn fyrir kappróður milli vélbáta. Og lárviðarkrans Sjómanna- dagsins. Mikill mannfjöldi var við staddur sjómanna- dagshátíðahöldin í hlaði sjómannaheimilisins Hrafnistu sunnudaginn 2. juní, er heimilið var formlega vígt, og forstöðumaður þess tók við lyklavöldum þar. Veður var bjart, en kalt nokk- uð. Aðfaranótt sunnudagsins snjóaði talsvert í Esjuna. Við þetta tækifæri kom forseti landsins í fyrsta sinn opinberlega fram síðan hann kom úr utanför sinni. Við Hrafnistu hafði verið komið fyrir víkinga- skipi, hvarvetna blöktu fánar, en á svölum heim- ilisins stóðu menn við hina ýmsu félagsfána inn- an sjómannasamtakanna.. Athöfnin við Hrafnistu hófst með því, að bor- inn var fram minningarfáni um látna sjómenn. Fáni þessi er ljósblár og settur í hann stjörnur, sem hver táknar tölu hinna látnu sjómanna frá því að síðast var haidinn sjómannadagur. Voru stjörnurnar nú 11 og munu ekki fyrr þau 20 sumur, sem sjómannadagurinn hefur verið há- tíðlegur haldinn, hafa verið jafnfáar. Minningar- ræðuna flutti vígsluviskup, séra Bjarni Jónsson, en áður hafði Guðmundur Jónsson óperusöngvari sungið sálm. Vígslubiskup gat þess í minningar- ræðunni, að þau 20 ár, sem nú væru liðin frá því fyrst var haldinn sjómannadagur. hafi alls farizt 625 menn úr íslenzkri sjómannastétt. Eftir ræð- una var þögn nokkrar mínútur, er blómsveigur vík 8. marz 1937. Á þeim fundi var kjörinn 9 manna nefnd til að semja reglur um Sjómanna- dag og gera tillögur um viðfangsefni hans. 1 nefndina voru kosnir: Björn Ólafs, Sigurjón Á. Ólafsson, Guðmundur Sveinsson, Einar Þor- steinsson, Þórarinn Guðmundsson, Guðmundur H. Oddsson, Janus Halldórsson, Þorsteinn Árnason og Henry Hálfdánsson, sem var kjörinn formaður. Strax í upphafi voru lagðar línur í aðalatrið- um um fyrirkomulag hátíðahalda dagsins og verk- efni til þess að vinna að, og hefur lítið verið útaf því brugðið þessi tuttugu ár. Hinsvegar hafa breyttar atvinnu aðstæður nokkuð dregið úr því, að sjómennirnir sjálfir, sem sinna skyldustörf- um á hafinu, hafi verið eins fjölmennir í landi við hátíðahöldin einsog áður var og þá sérstak- lega hér í Reykjavík. Á aðalfundi Sjómannadagsráðs 1939 var kjör- in 5 manna nefnd til þess að gera tillögur um það höfuðmenningarmál, sem berjast skyldi fyrir með Sjómannadagssamtökunum í framtíðinni. 1 þá nefnd voru kjörnir Sigurjón Á. Ólafsson, Grímur Þorkelsson, Guðbjartur Ólafsson, Þórarinn Kr. Guðmundsson og Júlíus Ólafsson. Lagði sú nefnd svohljóðandi tillögu fyrir Fulltráaráðið, sem hlaut þegar samþykki: Sjómannadagsráðið samþykkir að vinna nú þegar og í nánustu framtíð, að því að safna fé til stofnunar elli- og hvíldarheimilis fyrir aldraða farmenn og fiskimenn". Með ofangreindri samþykkt varð þessi hug- mynd síðan aðalmarkmið dagsins, og nú á hinum tuttugasta Sjómannadegi orðin jarðföst framtíð- arhöll til minningar um látna og lifandi sjó- mannastétt íslands. Á bak við þessa frumdrætti felst svo marg- þætt saga, sem aldrei verður fullrakin. Hugsjónin varð að veruleika fyrir ötult áhugastarf hundr- aða manna úr röðum sjómannastéttarinnar sjálfr- ar og meðvitundar allrar þjóðarinnar um mikil- vægi sjómennsku og sjávarútvegs fyrir hið ís- lenzka þjóðfélag. H. J. 114

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.