Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1959, Page 9
Kvenfélag'ib Bylgjan
en hann var eins áhugasamur að
selja eins og Seward að kaupa.
I ársbyrjun 1867 sló Seward út
fyrsta trompinu, tilboði um að
kaupa allar landeignir Rússa á
Norður-Ameríska meginlandinu
fyrir 7,2 milljónir dollara1). Al-
ander keisara var undireins til-
kynnt þetta „stórkostlega" til-
boð.
Að kvöldi dags 29. marz 1867,
sat Seward með fjölskyldu sinni
að spila vist, þegar tilkynnt var
að Stoeckl barón vildi tala við
hann. Sendiherrann veifaði af
mikilli geðshræringu símskeyti
frá keisaranum, þar sem hann
samþykkti að ganga að tilboðinu.
Hvorki Stoeckl eða Seward voru
í raun og veru vissir um hvað
mikil landsvæði væri hér um að
ræða. (Raunverulega er það 35
sinnum stærra en t. d. Danmörk).
Stoeckl, sem var ánægður yfir að
hinar langdregnu samningaum-
leitanir höfðu nú borið árangur,
sagði: „Snemma í fyrramálið
getum við útbúið samninginn um
að kaup og sala hafi farið fram“.
„Yið skulum heldur ganga frá
honum nú þegar“, svaraði Se-
ward. „Ef þér getið haft starfs-
fólk yðar viðbúið um miðnætti,
þá skal ég ásamt mínu starfs-
fólki vera viðbúinn“.
Klukkan fjögur um morguninn
var samningurinn gerður og til-
búinn til undirskriftar. William
Seward hafð tvær veigamiklar á-
stæður til þess að koma í kring
þessari „miðnætursýningu". I
fyrsta lagi var verið að slíta
ameríska þinginu, og hann vildi
þvinga samninginn í gegn áður
en andstöðuflokkurnn fengi tæki-
færi til þess að styrkja aðstöðu
sína. Og í öðru lagi vissi hann
að Stóra-Bretland hafði einnig
mikinn áhuga fyrir að eignast
Alaska, og hann óttaðist að hinn
auðugi Jón Boli myndi yfirbjóða
hann.
i) Sama ár bauð Seward Danmörku 5
millj dollara fyrir dönsku Vestur-Indíur,
en viðskiptin tókust ekki, vegna þess að
bandaríska þingið vildi ekki samþykkja
kaupin. 50 árum síðar, þegar viðskiptin
fóru fram, hafði verðið hœkkað upp í 25
millj. dollara.
VÍKINGUR
Upp úr sl. áramótum hófust konur
loftskeytamanna handa um að stofna
kvenfélag. Voru stofnfundir haldnir
12. og 26. febrúar. Félagið hlaut nafn-
ið Kvenfélagið Bylgjan og hafa um
60 konur þegar gerzt félagar. Tilgang-
ur félagsins er, samkvæmt 2. gr. lag-
anna: „að efla samúð og vináttu meðal
loftskeytamanna og fjölskyldna þeirra.
Einnig skal félagið vinna að styrktar
Eftir harðar og heiftarlegar
umræður í ameríska þinginu, var
samningurinn að lokum sam-
þykktur. En það var langt frá
því að Seward væri heiðraður
sem þjóðhetja, þó hann á einni
nóttu hefði aukið landrými þjóð-
ar sinnar að einum fimmta hluta.
Þvert á móti var ráðist á hann
í leiðurum blaðanna og karika-
tur-teiknarar afskræmdu hann á
alla vegu. Æstur blaðritstjóri
skrifaði t. d.:
„Samningur þessi færir okkur
á herðar ábyrgð á 40.000 manns,
sem reika um í snjóeyðimörkinni
á frumstæðum snjóslcóm. Án
nokkurs möguleika til þess að
hagnast um einn einasta eyrir,
verðum við að greiða kostnaðinn
af því að verja þá og halda í þeim
og menningarstarfsemi innan félags-
ins og út á við. . . .‘
Formaður var kjörin Guðrún Sigurð-
ardóttir, en aðrar í stjórn eru Laufey
Magnúsdótir, Sigríður Guðmundsdóttir
og Anna B. Óskarsdótir. í varastjórn
eru Gróa Finnsdótir og Hólmfríður
Jensdóttir.
Félagsfundir verða haldnir mánaðai'-
lega á tímabilinu okt-maí.
lífinu. Þótt við legðum alla orku
fram, tækist okkur ekki að gera
námugröft arðbæran á 60. gráðu
norðurbreiddar. 99% af landinu
eru okkur gjörsamlega einskis-
virði*.
Aðeins örfáir gátu hugsað sér
að Alaska ætti þau auðæfi, sem
síðar hafa verið nytjuð. Með
sínum breiðu fljótum, skýháu
fjallatindum, 1100 eyjum, og
55.000 km. löngu strandlengju,
hefir landið gefið af sér kaup-
verðið marghundraðfalt. Fisk-
veiðar landsins hafa gefið af sér
milljarða dollara, gull og aðrir
dýrir málmar hafa fundist í
jörðu og skógar, kolanámur og
olíulindasvæði eru nýtt fyrir tug-
milljónir árlega.
Stjórn Kvenfélagsins „Bylgjan."
Sitjandi frá vinstri: Anna B. Óskarsdóttir, Laufey Guðbrandsdóttir. Aftari röð:
Sigríður Guðmundsdótir, Guðrún Sigurðardóttir og Lilly Magnúsdóttir.
---------------------------------—■------------—:----------------------■—-----------------------------------------------------------------------k?s.
73