Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1959, Síða 13
öm Steinsson.
Sjóréttarskýrsla vegna Hedtoft-slyssins
Frásögnin er tekin úr marzhefti Maskinmesteren.
Sjóréttur var haldinn í Kaup-
mannahöfn 12. febr síðastliðinn
vegna hvarfs „Hans Hedtofts".
Dauðakyrrð ríkti í réttarsalnum,
meðan forseti réttarins ræddi ein-
staka kunna atburði slyssins. Virt-
ist skipið hafa sokkið óvænt og
skyndilega, og enginn haft tíma til
að forða sér frá skipinu. Menn voru,
skömmu áður en senditæki skipsins
þögnuðu, þrátt fyrir augljósa hættu,
vongóðir um, að þýzki togarinn „Jó-
hannes Krúss“ gæti veitt mikils-
verða hjálp. Margt virtist benda til,
að eitthvað óvænt hefði skeð, ef til
vill hefði þilið milli hinna tveggja
vélarúma skyndilega brostið undan
þunga sjávarins, og skipið sokkið
á örfáum sekúndum.
Rétturinn komst að þeirri nið-
urstöðu, að slysið væri óháð vetr-
arsiglingu og hefði getað komið fyr-
ir á öðrum árstíma.
Slysið upplýstist greinilega í
stuttum en skýrum radioviðskiptum
milli „Hans Hedtofts" og „Jóhann-
esar Krúss“ föstudaginn 30. jan.
í ægilegu veðri suðaustur af Hvarfi.
Radioviðskiptin gáfu gleggri mynd
af slysinu, heldur en langar lýsing-
ar með fræðilegum útskýringum.
Þau sýndu vel hversu erfitt var
fyrir 2 skip í fárviðri að finna hvort
annað, enda þótt þau væru á ná-
lægum slóðum. Viðskiptin sýndu
einnig sérstaka djörfung og ósér-
hlífni Þjóðverjanna á litla 400 tn
togaranum „Jóhannesi Krúss“, sem
flýttu sér til bjargar á þessum
hættulegu slóðum.
Harmsagan hófst, þegar „Hans
Hedtoft" kl 17.18 sendi SOS-merk-
in. Og öllu var lokið kl 20.45, er
„Hans Hedtoft" þagnaði.
Hér á eftir fer skýrslan um radio-
viðskiptin. Tíminn er Greenwich-
tími.
17.18: Togarinn Stadt Herten til-
kynnir, að hann hafi heyrt SOS-
kall frá „Hans Hedtoft".
17.23: „Jóhannes Kr.úss“: Til-
VÍKINGUR
kynning til allra togara. Staða okk-
ar er 59.25 norður, 42.30 vestur.
17.25: Stadt Herten tilkynnir:
„Jóhannes Krúss“ er næstur slysa-
staðnum.
17.25: Fjarlægðin milli „Jóhann-
esar Krúss“ og „Hans Hedtoft" er
um 25 sjómílur.
17.30: Jóhannes Krúss við Pos-
eidon: Ég er lagður á stað til stað-
arákvörðunar „Hans Hedtofts".
17.55: Poseidon við „Hans Hed-
toft“ og Pr. Christiansund: Ég hef
beðið „Jóhannes Krúss“ að sigla á
staðarákvörðunarstað „Hans Hed-
tofts“ og veita aðstoð.
18.04: „Jóhannes Krúss“: „Hans
Hedtoft“, þetta er þýzki togarinn
„Jóhannes Krúss“. Við erum á leið-
inni til aðstoðar.
18.06: „Jóhannes Krúss": Við
heyrum vel til ykkar, „Hans Hed-
toft“. Við erum á leiðinni.
18.08: „Jóhannes Krúss“ miðar
„Hans Hedtoft" 237 gráður rétt-
vísandi.
18.12: „Hans Hedtoft": Umhverf-
is okkur er mikill ís. Gerið svo vel
að biðja Poseidon að koma til að-
stoðar. Skipið er að sökkva. Mikill
sjór er í vélarúmunum. Við erum
með marga farþega. Alls erum við
um 90 manns. Þér megið gjarna
tala þýzku.
18.15: „Jóhannes Krúss“: Við
siglum með nærri 10 mílna hraða.
Það er krappur sjór, ís og snjór.
Skyggni er slæmt.
18.25: „Jóhannes Krúss“ biður
„Hans Hedtoft" um miðun.
18.28: „Jóhannes Krúss“: Við
miðum ykkur 235 réttvísandi. Getið
þið miðað á 2182? „Hans Hedtoft":
Nei.
18.36: „Hans Hedtoft" miðar Pr.
Christiansund.
18.52: „Hans Hedtoft“: Skip-
stjórinn tilkynnir, að við miðum
réttvísandi norður.
18.53: „Jóhannes Krúss“: Við
miðum 340 gráður réttvísandi.
18.55: „Hans Hedtoft" sendir
miðun.
18.57: „Hans Hedtoft": Við mið-
um -—• er mikill ís hjá ykkur?
19.10: „Jóhannes Krúss“: Hér er
íshragl, en engir borgarísjakar.
19.14: „Jóhannes Krúss“: Við
nálgumst, en sjór er krappur og
skyggni slæmt.
19.15: „Jóhannes Krúss“: „Hans
Hedtoft" — við erum á leiðinni til
ykkar. En eigum enn eftir tvær til
þrjár stundir. Snjórinn, sjórinn og
ísinn tefur okkur, en við siglum
tæpar 10 mílur á klukkustund.
19.36: „Jóhannes Krúss“: „Hans
Hedtoft" — við miðum ykkur á 221.
19.40: „Hans Hedtoft": OK —
skipstjórinn segir engar athuga-
semdir.
19.41: „Jóhannes Krúss“: Getið
þið skotið flugeldum.
19.41: „Hans Hedtoft": Já.
20.06: „Jóhannes Krúss": Skjót-
ið flugeldum.
20.08: „Hans Hedtoft": Skip-
stjórinn tilkynnir, að við skjótum
núna flugeldum.
20.14: „Hans Hedtoft": Sáuð þið
flugeldana.
20.14: „Jóhannes Krúss“: Nei.
20.14: „Hans Hedtoft": Skip-
stjórinn tilkynnir að næsta flugeldi
verði skotið eftir 10 sekúndur.
20.15: „Hans Hedtoft": Sáuð þið
flugeldinn.
20.15: „Jóhannes Krúss": Nei.
20.16: „Jóhannes Krúss“: Er enn
ljós á skipinu hjá ykkur? (Krúss
á við rafljós).
20.16: „Hans Hedtoft": Nei.
20.21: „Jóhannes Krúss“: Sjáið
þið ljóskastarageislann frá okkur
— við lýsum hátt upp í loftið.
20.21: „Hans Hedtoft“: Við sjá-
um ekkert.
20.30: „Jóhannes Krúss“: Send-
ið fleiri miðanir.
20.30: „Hans Hedtoft": OK.
20.30: Nú er „Jóhannes Krúss“
kominn á staðarákvörðunarstað
„Hans Hedtofts", þegar árekstur-
inn varð. En skyggnið hefur minnk-
að vegna hins mikla óveðurs, snjóa
og ægilegra stórsjóa.
20.41: „Hans Hedtoft": Ég var
rétt að miða Pr. Cristiansund í rétt-
vísandi norður. Við sökkvum hægt.
77