Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1959, Qupperneq 18
FARMENNSKA
FISKVEIÐIÁÆTLUN 1 ISKAEL
Hinn ríkisrekni fiskiðnaður í Isra-
el hefur Iatg fram 5 ára áætlun um
aulmar fiskveiðar. Aformið er að
koma aflamagninu upp í 18,000
smál. árið 1963, úr 12,500 smál. sem
það er nú. Reiknað er með því, að
til þess þurfi fisMmönnum að f jölga
í allt að 3000 manns, en nú eru 3.500
manns sem stunda fiskveiðar sem
ársatvinnu. Fiskneyzla í Israel er
nú um 11 kg á ári á mann, og heild-
arþörf landsins yfir árið eru 22.000
smálestir. Af því magni eru flutt
inn um ca. 11.000 smál. sem kosta
landið um 2.300.000 doilara.
FRA S-HEIMSKAUTINU
Þó að enn sé ekki Iokið raunsókn-
rnn á S-heimskautinu, hafa þó feng-
ist markverðar upplýsingar um
landslag þar og fleira. Landsvæði
þetta cr jafnstórt og Evrópa öll og
BandaríMn samanlagt. Kuldastig
nær þar allt að 42 gr. C og stór-
felldir hríðarstormar gera kuldann
enn bitrari. Það er tæplega hægt
að hugsa sér þá erfiðleika, sem við
er að fást í sambandi við rannsókn-
ir. T. d. má benda á, að steinolía
frýs á þessum slóðum við 20 gr. C
og hrágúmmí hrekkur í sundur eins
og gler; þegar kuldinn er 30 gr. C,
er ekki hægt að anda nema með
sérstökum súrefnistækjum.
En erfiðleikarnir eru yfirsfignir:
I bækistöðvum Bandaríkjamanna á
heimssbautinu starfa um 3500
manns. Aðalbækistöðin er McMurdo
Sound, þar sem stóru Globemaster
flugvélarnar lenda. 19 menn búa í
skálum sérstaklega loftræstnm, á
sjálfnm hinum landfræðilega pólar-
bleiti. Rnssnesku bækistöðvarnar
við Mirny eru nokkurs konar neð-
anjarðarborg, séð úr lofti cru reyk-
hafar og loftventlar stcðvarinnar
eins og skógarsvæði upp úr snjó-
breiðunni. En stöðin er upplýst og
upphituð með rafmagni og þar eru
auk vísindatækja, bóksafns-, hvíld-
ar- og skemmtistofur. Önnur rúss-
nesk bækistöð er við segulskautið
ca. 145 mílur frá sjávarströnd. Þar
eru keyrðir traktormótarar stanz-
alust allan sólarhringinn, því ef þær
væru stöðvaðar, yrði erfitt eða
ómögulegt að koma þeim aftur i
gang.
Heimsskautssvæðið er engin flat-
neskja, sjálfur póllinn er í 10.000
feta hæð. Með ljósmyndunum úr
lofti hefur tekizt að mæla fjalla-
tinda á Marie Byrds landi, sem eru
allt að 23.000 fet á hæð. Bandaríkja-
menn hafa gert nákvæmt landa-
kort yfir Dronning Mauds land. A
því er fjallgarður um 258 mílur á
lengd og f jallatindar um 16.000 feta
háir. Eitt af því sérkennilegasta við
fjallgarðinn, er íslaus dalur í hon-
um miðjum. í hlíðum hans eru rauð-
leitar bergtegundir og á strjálingi
má sjá svört ltolalög.
Annað sérkennilegt fyrirbæri á
þessum slóðiun, er hinn svonefndi
Bengúar-rjóður í Dronning Mauds
landi. Það voru bandarískir flug-
menn sem fyrstir sáu það úr lofti
árið 1948, en síðar var það rann-
sakað af rússneskum vísindaleið-
angir árið 1956. I þessu sjóðri verð-
ur allt að 25 stiga hiti á surnrin.
I Byrd-bækistöðinni hafa Ame-
ríltumenn gert margar athyglisverð-
ar athuganir á ísmynduninni. Þeir
hafa grafið um 1000 fet niður í ís-
inn og teMð sýnishom á mismun-
andi stöðum, en þannig hafa feng-
izt mikilsverðar upplýsingar um
veðráttufar imi þúsundir ára á
heimsbautinu. Ameríski vísinda-
maðurinn Edward W. Remington
undirbýr sams konar athuganir ná-
kvæmlega á suðurpólmun, til þess
að finna aldur snjólaganna, getur
hann m. a. stuðst við menjar um
öskufall úr eldfjallinu Krakatoa í
Indonesiu, er gaus 1883, og einnig
við sandlög sem stafa frá sand-
stormum í Astralíu.
Rannsóknirnar hafa einnig stað-
fest þá skoðun, að ísinn á heims-
skautunum sé að minnka. Rúss-
neskir vísindamenn hafa fundið
merki þess á einum stað, að hin
mildari veðrátta hafi byrjað fyrir
um það bil 4—5.000 árum, og að
ísinn hafi minnkað um allt að 1300
fet á síðari tímum.
Rannsóknir sem Ameríkumenn
hafa gert á tveimur óþekktum f jall-
Fyrir stuttu bættist þetta glæsilega rannsóknarskip í hóp fleiri slíkra skipa í
eign Fisheries Research Board of Canada. Því er ætlað að starfa við A-strönd
Canada og á Ishafsslóðum, þá er því einnig ætluð ferðalög til Grænlands, Islands
og Bretlandseyja til kurteisisheimsókna og visindalegra viðskipta. — Skipið er
af svipaðri stærð og byggingu eins og venjulegir togarar, með togútbúnað á
stjórnboðssíðu, lestarrúm er þó tiltölulega' lítið, en notað fyrir vísindatæki og
ýmiskonar veiðarfæri. Skipið er nefnt eftir Dr. A. T. Cameron, sem var þekktur
vísindamaður og um lengri tíð til dánardægurs 1947 formaður Fisheries Research
Board. — A. T. Cameron er talið eitt alfullkomnasta og bezt útbúna skip sinnar
tegundar. Mannaíbúðir eru fyrir 34 menn, þar af 25 skipsmenn og 9 vísindamenn.
Lengd skipsins er 177 fet, breidd 32 fet, ganghraði 12 mílur. Aðalvél skipsins er
Burmeister & Wain „Alpha-diesel". Þar sem skipinu er ætlað að geta verið lang-
dvölum frá heimahöfn, hefur það útbúnað til þess að hafa olíubirgðir til 7.500
milna siglingu. (World Fishing).
82
VÍKINGUR