Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1959, Síða 19
OG FISKVEIÐAR
görðum hafa vakið mikla athygli.
Því þessi fjöll hafa margt sameig-
inlegt við Andesfjöllin í S-Amsríku,
en það hefur á ný vakið áhugann
fyrir þeirri kenningu sem nefnd hef-
ur verið „hreyfing heimsálfanna“
og sett var fram af hinum fræga
þýzka landkönnuði Alfred Wegener.
Var hún byggð á því, að allt það
land sem væri upp úr sjó, hefði upp-
runalega verið ein samfelld heild,
og miðpunktur þess hefði verið suð-
urpóllinn. Síðan hefði það sundr-
ast í núverandi heimsálfur, af ýn s-
um orsökum, en aðallega fyrir að-
dráttarafl frá miðbaugi jarðar. Weg-
ener hélt því fram, að þessi hreyf-
ing væri enn starfandi.
Þeir, sem aðhyllast þessa kenn-
ingu hans, finna stöðugt ný rök
máli sínu til stuðnings. Meðal ann-
ars hafa fundizt við suðurh'ims-
skaut hópleyfar af steingerðum
beinum dýra, sem lifað hafa fyrir
milljónum ára, og aðeins hefðu get-
að lifað í veðurfari hitabeltislanda.
A-ÞÝZKUK
VEKKSMIÐJUTOGARI
Samkvæmt upplýsingum frá Ro-
stock, er fyrsti A-þýzki verksmiðju-
togarinn nú að hefja rekstur. Eftir
sömu heimildum er greint frá því,
að hann verði starfræktur til
reynslu í eitt ár, áður en haldið er
áfram að smiða fleiri skip af ná-
kvæmlega sömu gerð.
Ennfremur er frá því skýrt, að í
þriðju 5-ára áætluninni (1961—
1965) sé gert ráð fyrir smíði 1073
skipa til „friðsamlegra“ verkefna,
og þar af verði nær helmingur eða
515 skip af mismunandi gerðum til
fiskveiða, þar á meðal 10 verk-
smiðjuskip.
KARFAVEDÐI RÚSSA VIÐ
NEWFOUNDLAND
„Rússnesk veiðiskip hafa aflað
meiri karfa á Grand Banks miðum
við Newfoundland á örfáum mán-
uðum, heldur en fiskimenn Banda-
ríkjanna hafa aflað allt árið“, sagði
Mr. Franois W Sargent í skýrslu
sinni, sem fulltrúi USA á aðalfundi
„International Commission for the
Northwest Atlantic Fisheries“ í
Halifax. Hann lýsti sig einnig mjög
hrifinn af því, á hve vísindalegan
hátt liinir rússnesku togarar hefðu
tileinkað sér aflamöguleikana, og
fullnýtt og tilreitt allan aflann fy.r-
ir hoimamarkað sinn. Um borð í
hverju veiðiskipi væri einn eða
fleiri vísindamenn, og nýting hvers
þáttar fyrir sig væri vísindalega
skipulagður.
Mr. Sargent benti einnig á, að liin
rússnesku veiðiskip væru þrisvar
sinnum stærri heldur en þau ame-
rísku, skipsliöfnin væri um 100
manns á móti 20 í þeim amerisku,
og rússnesku togararnir væru á
veiðisvæðunum þar til þeir hefðu
fengið fullfermi. Hann taldi vafa-
samt að takast mætti að ná sömu
aðferðum við fiskveiðar í USA, þar
sem til þess þyrfti að samræma við-
horf svo margra ólíkra starfsgreina.
ÞORSKVEIÐI PORTÚGALS 1958
Þorskveiðar Portúgala á New-
foundlandsmiðum lauk í október
1958, og um það bil er síðustu voiði-
skipin komu heim (nóv.) var frá þvi
skýrt í blaðaviðtölum, að veiðarn-
ar hefðu mjög tafizt vegna sérstak-
Iega óstöðugs veðurfars, og treg-
fiski. Fréttir frá St. John horma,
að árangur fiskveiðanna við New-
foundland hafi verið með léle;vasta
móti, sérstaklega fyrir erlend veiði-
skip, spönsk, frönsk og portúgö’sk.
Portúgalskar fregnir tel.ia, að síð-
astliðin 20 ár hafi ekki verið jafn-
erfið vertíð eins og þessi fyrir veiði-
flotann, vegna aflatr gðu og veð-
urlags.
Sex veiðisldp sem fiskuðu m:ð
línu og höfðu samtals lun 2.400
máll. saltfisk rými, fórust á veiði-
tímanum, en skipverjar björguðust.
Öll þessi skip voru af elztu og
minnstu gerð veiðiskipanna, en
þrátt fyrir tap þeirra, hefur afla-
magnið náðst upp með tilkomu
fimm nýrra línuveiðiskipa, sem í
fyrsta sinn þessa vertíð tóku þátt
í veiðunum. Það er gefið upp cð
heildaraflinn verði að þessu s'nni
varla meira en um 60% af megu-
legum aflaafköstum veiðisk paflot-
ans samanlagt, en það ætti að sim-
svara að aflinn hafj orðið ub 42.000
smál. af saltfiski, en árið áður
(1957) varð heildaraflirn 68.C00
smálestir.
Skip þetta heitir „Sardinops", 120 feta stálbátur, brúttóstærð 342 smál., byggður
í S-Afríku, eftir teikningum frá Welton & Gemmel, Hull og Jan-Olof Traung hjá
F.A.O. til rannsókna og tilrauna við sardinuveiðar á fiskimiðum á S-Afríku, á
vegum ríkisstjórnarinnar þar. — Skipið hefur togútbúnað á stjórnboðssíðu, en
auk þess ýmis konar tæki til vísindalegra rannsókna. Mannaíbúðir fyrir 20 manns
eru niðri í skipinu og í yfirbyggingu, en auk þess sérstök herbergi fyrir visinda-
tæki og rannsóknir. Engin fiskilest er I skipinu. — Stuttu áður en þetta skip
hljóp af stokkunum, höfðu áður tvö 70 feta tréskip „Trachurus" og „Kunene" ver-
ið byggð og starfa nú við sams konar vísinda og veiöirannsóknir. (World Fisþing).
VÍKINGUR
88