Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1959, Qupperneq 32
S J
□ M
V
ANNABLAÐIÐ
í K I N G U R
t----------------------------------------------------------------------------------------------S
ÚTGEFANDI: F. F. 8. í. — RltstJÓTi
Halldór Jónsson — Rltnefnd: Eglll
Hjörvar, Þorkell Slgurðsson, Geir Ólafs-
son, Henry Hálfdánsson, Jónas Guðmundsson, Guðbjartm- Ólafsson, Theodór
Gíslason, Páll Þorbjömsson. — Blaðið kemur út einu sinnl í mánuði, og kostar
árgangurlnn 80 kr. — Ritstjóm og afgreiðsla er í Fiskhöllinnl, Reykjavlk. —
Utanáskrlít: „VIklngur“. Pósthólf 425. Reykjavik. Sími 156 53. - Prentað 1 Ísaíold.
Framfarir í togarasmíbi
ingjanna að fylgjast með viðskipt-
unum frá prahusum sínum úti fyr-
ir ströndinni.
En til allrar ógæfu fyrir Mag-
ellan átti eyjarhöfðinginn öflugan
bandamann í sjálfri strandlengj-
unni því á leiðinni í land varð fyr-
ir bátunum kóralrif, sem ekki varð
komist framhjá eða yfir, svo að
hinn 40 manna hópur Spánverja,
sem í þeim var, varð að vaða í
land, án nokkurs stuðnings frá
bogaskyttum Cebu-manna í landi.
En þess í stað stóðu á ströndinni
mikill hópur innfæddra í miklum
vígahug. Pigafetta, sem var með í
landgöngunni og særðist af örvar-
skoti, hefur skýrt frá bardaganum
þannig:
„Þegar eyjarskeggjar sáu að skot-
hríðin úr bátunum gerði þeim ekk-
ert mein, réðust þeir á móti okkur
með sveðjum, hnífum, örvum og
kastspjótum, svo við áttum erfitt
um að verja okkur. Þegar þeim varð
ljóst að brynja og hjálmur hlífði
okkur, en fæturnir voru óvarðir
beindu þeir örvum sínum að þeim.
Flotaforinginn fékk eitraða pílu í
hægri fót, og skömmu síðar gaf
hann fyrirskipun um að hörfa ró-
lega undan. En nærri allir okkar
liðsmenn brugðu á hraðan flótta,
og aðeins sex eða átta menn voru
eftir hjá honum til varnar. Sjálf-
ur gat hann ekki hlaupið vegna þess
að hann var með stífan fót. Þegar
eyjarskeggjar þekktu flotaforingj-
ann, réðust þeir sérstaklega gegn
honum, og tvívegis slógu þeir af
honum hjálminn. Hann barðist
áfram þar til þungt sveðjuhögg á
vinstri fót felldi hann niður i sjó-
inn, en þá köstuðu eyjarskeggjar
sér yfir hann og stungu hann með
spjótum og hnífum“.
Þannig bar að í tilgangslausri
smáskæru við nakta villimenn dauða
hins mikla landkönnuðar, einmitt
þegar hann stóð á þrepskildinum
til fullkominnar lausnar á hinu
ódauðlega afreksverki sínu. Spán-
verjunum tókst ekki einu sinni að
bjarga líki foringja síns
Sðgulok
í næsta blaði.
„FALSTAFF“
Nýlokið hefur verið smíði Diesel-
rafmagnstogara fyrir Hellyer Bros
í Hull. Togari þessi, „FALSTAFF“,
er 209 fet á lengd, 34,6 fet á breidd
og 17,10 fet á dýpt. Hann getur tek-
ið 201 tonn af eldsneyti og fiski-
lestirnar rúma 18.250 cub. fet.
Það þykir kostur við Dieselraf-
magnsvélar, hversu þær eru léttar
og fyrirferðarlitlar. Þeim má
stjórna eingöngu frá stjórnpalli og
einn rafmótor dugir til að fram-
leiða orku til togveiða.
Þá má sjá á myndinni að yfir-
byggingin er lægri og fyrirferðar-
minni en á eldri togurum, en J)að er
gjört með hliðsjón af ísingu, að hafa
möstur, vélareisn og annað ofan-
dekks sem lægt og léttast.
Björgunarbátur er aðeins einn og
patent bomma, sem getur sveiflað
honum út til beggja hliða eftir vihl.
Ibúðir skipverja eru aftur í skipinu
og rúma 30 menn. Fremst í því er
pláss fyrir 14 manns, aukalega, ef
skipið fer á veiðar í salt.
í „FALSTAFF“ eru ýms ný og
nýleg tæki, svo sem olíuhreinsunar-
tæki„ eimingartæki, loftræsting er
mjög fullkomin, þá er þetta fyrsti
togarinn sem í hefur verið sett Mar-
coni Marine Radiolocator, sem er
ein fullkomnasta ratsjá, sem fram-
leidd hefur verið, með 5 fjarlægð-
arstillingum og 15 tommu mynd-
skífa. Vélin er 1800 hö. og mun
þetta vera hraðskreiðásti togari,
sem byggður hefur verið í Bret-
landi til þessa. Aðalvélin er lokuð
og vatnsþétt tirö fet fyrir ofan öx-
ulhæð.
PÓLSKIR VERKSMIÐJU-
TOGARAR
Rétt í kjölfarið á því, að það kom
í ljós, að brezki stórtogarinn Fair-
try var mjög hagkvæmt veiði- og
verksmiðjuskip, fóru Rússar að láta
byggja sams konar veiðiskip. Nú
eiga Rússar 24 verksmiðjutogara af
þessari gerð (2,500 smál.).
Á síðastliðnu ári var pólsk sendi-
nefnd að kynna sér fiskveiðimál í
hússnesku hafnarborginni Mur-
mansk, og fór m. a. í veiðiferð með
tveimur slíkum verksmiðjutogurum.
Þegar annar þeirra kom heim aft-
ur, að lokinni 50 daga veiðiferð var
hann með 700 tonn af karfaflökum,
en auk þess mikið af fiskimjöli og
lýsi, en heildarfarmurinn var 1.100
smál. af fiskafurðum.
Eftir hina hagkvæmu reynslu
sem Pólverjamir höfðu aflað sér I
Rússlandsferðinni var samin ný
áætlun um byggingu fislrveiðiskipa
í Póllandi, var ákveðið að koma upp
á næstu 15 árum 54 verksmiðjutog-
urum af þessari stærð.
VÍKINGUR
96