Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Page 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Page 13
stórlúður og skötu og valt bát- skelin afskaplega. Guðmundur gat varla varið áföllum. Hann skimaði í allar áttir, tók mikil bakföll. Magnús dró lóðina en drengurinn bar í lúðuflykkin. Loks segir Guðmundur: „Þeir eru hættir að draga á Ársæli“. „Hum“, sagði Magnús og dró sem óðast. Drengurinn sá, að einn bátanna hafði sleppt línu og tekið slag til lands. Brátt fóru hinir bátarnir að búa sig til sigl- ingar, þótt vindur stæði um stefni. Magnús dró. „Það hleypir einhver suður í Hafnir í dag“, sagði Guðmundur. „Þeir fá þá bættan grautinn", sagði Magnús og dró enn. Nú var komið ofsaveður og illt sjólag, því útsynningur hafði verið undanfarna daga og stóð þvert um báru. Þegar Magnús dró endadrekann, þá var ófært að leggja lóð vegna veðurs. Drengurinn hafði aldrei séð því- líkan sjó, en hann varð nú að halda í horfi á meðan að Guð- mundur setti upp segl. „Á að rifa seglið?“ spurði hann for- manninn. „Passa þú fokkuna, Guðmundur, ég sé um seglið“, sagði Magnús. Hann kom fyrir stýri og lét slag standa opinn Hvalfjörð. Drengurinn var í austri og hafði nóg starf. Lúð- urnar lágu illa í bátnum, þvæld- ust fyrir austurtroginu og voru háskalega sleipar. Þegar verstu hnútarnir riðu undir bátinn, þá slökuðu bræðurnir á klónum, báturinn skimaði á öldunni og rétti sig við. Sædrifið var óskap- legt, enn herti á veðurofsanum. Sjórinn rauk eins og mjöll, kald- grár, grimmdarlegur, á hléborða stóð veggur af sjó, hærra en borðstokkurinn, en á kulborða skóf seltuna í andlitið, svo lá við blindu. Þá byrjaði Magnús for- maður að syngja „Kýr úr doða drapst hjá mér, drakk ég soðið heita“. — Þessar hendingar end- urtók hann og dró seiminn eins og spangólandi rakki. Hann hafði nóg að starfa við stýrið og seglið, en þreif þó stundum til húfunnar og snýtti sér í hana. VÍKIN GUR Þetta var nú hans siður, þegar siglt var djarft. Út í sædrifinu sáust bátar ein- staka sinnum. Þeim gekk mis- jafnlega að beita í vindinn. Töp- uðu á að venda oft. „Þarna hleypir einn suður“, hvein í Guðmundi. Magnús leit fyrirlitlega á bróðir sinn, en söng um kúna, sem drapst úr doða. Hnútarnir urðu bæði verri og tíðari eftir því sem dagur leið. Skyndilega reið heljarsjór undir bátinn og kastaði honum til. Guðmundur gleymdi að slaka á fokkunni, er sjórinn féll í fang honum. Þá öskraði formaður: „Farðu í austurinn Guðmundur, þú hefur alltaf sjóhræddur verið, drengurinn tekur við klónni“. — Drengnum sýndist Guðmundur sterki lækka á þóftunni, er hann rétti honum klóna. Við austurinn varð nú að liggja á hnjánum sök- um veðurofsans. Báturinn hafði sopið, er aldan reið yfir og ein lúðan hafði kýlzt föst í austrin- um. Guðmundur gerði sig líkleg- an til að renna henni útbyrðis. „Ekki veitir af kjölfestunni“, sagði Magnús og fitjaði upp á nefið. Guðmundur leit flóttalega til bróður síns, en hætti við að létta bátinn. Magnús snýtti sér hressilega í húfuna og breytti um lag. „Blávatn, blávatn og barnaskít“ söng hann og lék nú á als oddi. Guðmundur jós á hnjánum. Drengurinn sá bræð- urna rétt annað veifið, en stund- um hvarf Magnús alveg í drifið. Enginn bátur sást lengur og að- eins hærri fjöll, en báturinnhent- ist á hæstu öldunum. Þótt stórir slagir væru teknir, þá leit svo út um sinn, að ekkert gengi. Magnús söng, en Guð- mundur jós með sjóþrútnum höndum. Við og við skiftust þeir á hnýfilyrðum, sérstaklega vegna húfu formannsins. Bátskelin þaut milli hvæsandi sjóa. Það hrikti í byrðing og böndum, en hvein í seglbúnaði. Stundum titraði báturinn eins og hlaupamótt dýr, þess á milli skutlaðist hann á öldum, léttur og gáskafullur. Það glytti í grá- hvítt andlit formannsins gegnum löðrið. Höndin, sem hélt um stýr- issveifina var grönn, hreyfing- arnar snöggar og ákveðnar. Það mjakaðist í áttina við hvern slag. Drengurinn fann óróa þann og unað, sem fylgir áhættunni og (Tryggvi Magnússon). 133

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.