Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Qupperneq 18
fyrir hendi, er flytji nægilegt
vatn til að fullnægja tilskildum
þrifum.
Um 5. Frágangur bryggjanna
og eftirlit er algjö'rlega óviðun-
andi. Flestir bátar hafa meira
og minna skemmst vegna bolta-
hausa og hálfútdreginna bolta,
sem víða hafa verið á köntum og
staurum. Auk þess eru festi-
kengir ekki nægilega öflugir, sem
sannast á því, að fleiri kengir
hafa bilað.
Stó'rhættulegt hefur verið að
komast á bátana um lágsjávar-
hæð, en nú mun vera hafin vinna
við að ráða bót á þessu, en að
okkar áliti eru þeir stigar, sem
nú hefur verið komið fyrir á
bátabryggju það illa staðsettir,
að við teljum þá hættulega og
jafnvel bjóða heim mei'ri hættu
en áður. Eðilegast teldum við að
þilja staurana utan og koma fyr-
i r á þeim föstum fríholtum. Þetta
mundi stórlega minnka viðhald
bryggjanna og bátanna líka.
Um 6. Mjög nauðsynleg teljum
við símaafnot á þessu athafna-
svæði. Tveir símakassar, vel
staðsettir, er það minnsta, sem
hægt væri að komast af með.
Eins og allir e'r til þekkja vita,
er ástandið þannig nú, að þótt
mannslíf og stór verðmæti séu
í veði, er ekki hægt að ná í síma-
afnot nær en jafnvel á lögreglu-
stöðinni, sérstaklega að nóttu til
og helga daga.
Um 7. Nauðsyn mikla teljum
við, að athafnasvæði bátaflotans
sé aukið. Og fljótt á litið finnst
okkur, að ef steinhleðslan, sem
bátabryggjurnar koma fram ú'r,
yrði gerð bein með því að reka
niður staura og síðan byggja
plan eða dekk inn á brún upp-
fyllingarinnar. Mundi vinnast
ma'rgt á þessu, meira bryggju-
pláss og þar með athafnasvæði,
útilokar líka þá hættu, að bátar
lendi þarna upp að þessum stór-
grýtisvegg og skemmist. Auk
þess teljum við nauðsynlegt að
fyrirhuguð bygging nýrrar báta-
bryggju verði hafin sem fy'rst og
hraðað.
Um 8. Með tilliti til hinna tíðu
slysa og þjófnaðar, sem virðist
fara í vöxt, þar sem ógrynni
verðmæta eru á þessu svæði, telj-
um við nauðsynlegt að stöðug
lögregluvakt sé á þessum stöðum
og í því sambandi viljum við
benda á, hvort ekki sé athugandi
að loka þessum hluta hafnarinn-
a'r, þar sem aðstaða er heppileg
milli Fiskiðjuversins og Verbúð-
anna.
Um 9. Vegna hins þrönga at-
hafnasvæðis og þess, að við fjöru
er það hátt upp á bryggjurnar,
að bómur bátanna ná ekki upp
nema rétt við bryggjusporðinn,
teldum .við eðlilegt að höfnin
legði til krana til losuna'r, eins
og gert er í Hafnarfirði.
Um 10. Hér viljum við benda
á, að síauknar kröfur eru gerð-
ar til þrifnaða’r og bættrar með-
ferðar á fiskinum um borð í bát-
unum. Teljum við ekki vanza-
laust, að bílar og önnur tæki, sem
flytja þessa vöru, ösli forarleðj-
una upp að dyrum fiskiðjuver-
anna og verbúðanna. í því sam-
bandi vildum við benda á þá
brýnu nauðsyn að malbika eða
steypa götuna eftir Grandagarði
upp að malbikinu við Héðin h.f.
Reykjavík, 3. júní 1959.
Andrés Finnbogason (sign.),
Þorvaldur Árnason,
Kristján Gunnarsson.
--------------------------------ví>
}
138
VÍKINGUR