Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Side 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Side 24
fljótandi söltuna’rstöðvar og salt- ar hver þeirra afla fjölda fiski- báta. Þrátt fyrir hinar miklu fisk- veiðar sem nú eru stundaðar eru Ráðstjórna'rríkin þó ekki ánægð. Hin mikla fjárfesting sem nú hefur verið lagt í mun sennilega nægja til mikillar árlegrar fram- leiðsluaukningar í fiskiðnaðinum 1 allmörg ár. Núverandi 7 á’ra áætlunin gerir ráð fyrir 9000 tonna frystiafköstum á 24 tímum en það er um þrjár milljónir tonna á á’ri. Þar af er gert ráð fyrir að 1 milljón tonn komi frá hreyfanlegum frystistöðvum á sjó. Nú sem stendur bæta Rúss- ar eigin fiskveiðar upp með fisk- kaupum á erlendum mörkuðum. Mikið er keypt frá Englandi, Noregi o. s. frv. FJÖLBREYTT FRAMLEIÐSLA Niðursuða hefur átt miklum stuðningi að fagna. Nokkur hundruð verksmiðja voru reist- ar samkvæmt 5 ára áætlun, sem komin er í framkvæmd. I fyrsta lagi vo'ru þær reistar í fisklönd- unarhöfnum, en auk þess marg- ar, þar sem veiðar standa með miklum blóma langt frá sjó. Sér- staklega athyglisverðar eru þær verksmiðjur, er reistar hafa ver- ið við síberísku fljótin og þver- ár þeirra. Fiskvinnslustöðvar, samlög, eru sett á laggirnar við stórbo’rgir eins og Moskvu eða inni í þeim og er unnið í þeim á sama hátt og þeim, sem áður hefur verið getið um. Eftirtekt- arvert er, að jafnvel í niðursuðu- iðnaðinum er unnið samkvæmt markvissri vísindalegri stefnu. Árangurinn er merkilega fjöl- breytt framleiðsla á niðursoðn- um fiski, sem ýmist er soðinn eða gufusoðinn. Auk lax og tún- fisks eru ýmsar aðra'r tegundir soðnar niður, t. d. þorskur, gedda, karfi o. m. fl. Þessar fisk- tegundir eru yfirleitt ekki soðn- ar niður í Bandaríkjunum eða í öðrum löndum Evrópu. Heild- amiðursuða fisks er mikið meiri en samanlagt niðursuðumagn Kanada, Frakklands og Noregs. FISKIRÆKT Önnur aðferð til þess að full- nægja fiskþörf þessa víðáttu- mikla lands e’r ræktun fisks í þeim tilgangi að vega á móti minnkandi aflabrögðum á venju- legum veiðisvæðum. Á þessu sviði eru Ráðstjórnarríkin orðin forustuþjóð í flokki fiskiræktar- þjóða. Jafnvel þó Ráðstjórnar- ríkin geti ekki keppt við Kína þar sem loftslag e'r miklu hag- stæðara og sem eftir nýjustu upplýsingum þeirra á nú yfir 30 milljónir hektara af fiskiræktar- vötnum, er árangur Ráðstjó'rn- arríkjanna engu að síður mikill. Þau eiga nú 40 þúsund hektara stofnsettra fiskgefandi svæða, en auk þess hálfa milljón hektara af fiskiræktartjörnum á ríkis- og samyrkjubúum. Takmarkið er að koma upp að minnsta kosti einni fiskiræktartjörn við hvert þorp og að ala þar upp eins mikið af fiski og í öllum veiðivötnum Ráð- stjórnarríkjanna, þar með talið Kaspíahaf, Azovshaf o. s. frv. Nú eru þau að uppskera fyrir meira en 20 ára tilraunir og rannsóknir á sviði fiskiræktar. Á hlutlausan hátt hafa þau sann- reynt nytsemi og frjósemi hinna fjarskyldustu fisktegunda. Af- leiðingin er, að þau rækta ekki aðeins t. d. karfa og vissar lax- tegundir, heldur og geddu, stór- an aborra og hvítfisk. Til þess að efla fjölgunarhæfileikann eru fisktegundir ræktaðar á víxl á mismunandi aldri. Fiskiðnaðar- samlag í Moskvu fær að senda unga styrju hálfvaxna frá fiski- tjörnunum. Þannig er hún mátu- lega stór til að steikja með sér- stökum hætti. Styrjan er flutt þangað lifandi í sé'rstaklega byggðum járnbrautarvögnum með kæliútbúnaði. Styrjan er notuð til framleiðslu á handhæg- um réttum, sem láta má beint á diskana, soðin í sneiðum sem látnar eru í plastpoka. Karfi er samt aðalframleiðsl- an, ekki minna en 113,200 tonn va’r alið upp af þessari einu fisk- tegund árið 1957. Meðalafrakst- ur var 375 kg á hektara. Með sérstökum aðferðum hefur tek- izt að rækta afbrigði af karfa sem eru ábátasöm jafnvel á 60. gráðu no’rðlægrar breiddar, en það samsvarar Suður-Alaska. YFIR 130 KLAKSTÖÐVAR Á hinni miklu iðnaðarsýningu í Moskvu á þessu ári mátti sjá hinn sérstaklega gerða járn- brautarvagn til flutninga á lif- andi fiski. Þar var einnig gefin nákvæm lýsing af ýmsum ge’rð- um fiskuppeldistjarna, sem sov- ézkir vísindamenn og iðnfræð- ingar eiga heiðurinn af. Mikið er um tilfærzlu á lifandi fiski. Fisktegundir úr Bajkal- og Balk- ashvötnunum eru fluttar til vest- lægari vatna, en fiskur ú’r vötn- um í Evrópulöndum Rússa er fluttur til austlægra vatna. Sér- staklega ber að nefna hinar stór- felldu tilraunir til þess að venja fisk við breytt loftslag í Neð’ri- Don og Kúbanfljótunum, sem renna í Azovshaf. Margar lax- tegundir hafa verið fluttar í Eystrasalt og Bahrentshaf og aldar upp þar. Styrja er alin upp í Kaspíáhafi. Tekist hefur að rækta kynblendinga úr nokkr- um tegundum fiska jafnvel fjar- skyldum. Ríkið rekur yfir 130 klakstöðvar. Árlega er sleppt um 5000 billjónum af ungviði og 2000 billjónum seyða. Samanburður á fiskiðnaði og landbúnaði sýnir að tiltölulega mei'ri áherzla er lögð á fiskinn. Þetta bendir til þess að í fram- tíðinni treysti Rússar meira á fiskveiðar en landbúnað til öfl- unar fæðu, einkum dýraeggja- hvítu, handa hinum ört vaxandi lólksfjölda í löndum sínum. Af- rek Rússa við fiskveiðar eru til þess fallin að vekja virðingu, jafnvel þó ekki sé ve'rt að ganga ■fram hjá því að mikið af tilraun- um þeirra og fiskveiðaathöfnum kunni að hafa hernaðarlegar hliðar. Þýtt úr World Fishing, maíhefti 1959. Þegnar geta fengið ríkisstjórn sína til þess að gera svo að segja hvað sem er — nema minnka út- gjöldin. 144 VÍKINGUE

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.