Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Síða 34
Farmennska-Fiskveiðar
Panama.
Hafa íslendingar viðurkennt
landhelgi Panama? Panama-
stjórn hefur vísað á bug mót-
mælum Breta, Frakka, Japana
Bandaríkjamanna út af því, að
Panama hefur nýlega fært land-
helgi sína út í 12 mílur. Hún
heldur því fram, að 12 mílna
landhelgi sé viðurkennd í al-
þjóðalögum og þessvegna sé eng-
in ástæða til að fresta ákvörðun
um þetta þar til væntanleg ráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna um
þetta hefur endanlega samþykkt
12 mílurnar.
Ástralía:
Túnfiskveiðar hafa gengið ágæt-
lega í New South Wales og eru í
örum vexti. Á vertíðinni til apríl-
loka var landað alls 2.369 smál. en
1.406 smál. á sama tíma í fyrra og
nam verðmætið til fiskimannanna
Á£ 80.000.
Aflamagnið hefur 25-faldast á
síðustu 7 árum.
Hráðskreiðasta járnbraut í heimi, er á leiðinni milli Chicago og Detroit
í Bandaríkjunum. Hún er knúin áfram af 1200 ha. diesélvél, og í lestinni
eru 10 vagnar, útbúnir með fullkomnustu þægindum fyrir farþegana,
m. a. er sérstakur útsýnissalur, serri sjá má á fremsta vagninum.
En samkeppnin við flugvélarnar á-öld.hraðang, er hörð, ög þess vegna
er reynt að, mæta því méð öðrum þægindútír.Wm langan aldur hafa slík
þægindi yerið takmörkuð við svefnvágria og rriatsöluvagna. Fyrir nokkru
hefur svo verið fundið upp á því að jháfa dansvagna, og kvikmyndavagna
og nú eru ýmsar útborga-járnbrautir í Bandaríkjunum farnar að hafa
skrifstofuvagna, fyrir fólk sem hefur miklum Istörfum að sinná, og þarf
að nota tímann á leiðinni í vinnuna að ljúka þ'ví verkefni, sem, tekið var
með heim um kvöldið.
P■ •. '■ '■■;' '■■■ ' :• , i
154 ; ■ - ■ ;• v I
Túnfiskurinn er mestmegnis soð-
inn niður í dósir og hin síðari ár
er þetta orðin mjög arðbær atvinnu-
grein sem hefur skapað drjúgar
gjaldeyristekjur en útflutningurinn
er aðallega til Bandaríkjanna og
Bretlands.
Krabbaveiðarnar frá Queensland
hafa tekið kopta í þjónustu sína,
sem sækir veiðina til bátanna í
Keppelflóa nálægt Rockhampton
og flytur hana á markaðinn.
Japan:
Úthlutun hvalveiðikvóta hefur
verið aðalverkefni ráðstefnu, sem
staðið hefur yfir í Tokyo undanfar-
ið, en hana sóttu fulltrúar frá Jap-
an, Bretlandi, Hollandi og Noregi.
Sovétríkjunum hefur verið úthlut-
að 20% af þeim 15 000 hvölum, sem
leyfilegt er að veiða samkvæmt
ákvörðun 17 þjóða hvalveiðinefnd-
arinnar. Samningar hafa staðið yf-
ir frá því ráðstefnunni í London
lauk í nóvember sl., en samkomu-
lag ekki náðst ennþá.
NÝ SKRÚFUGERÐ
Þó að helzt sé nú talað um atóm-
orkuna í sambandi við nýjungar í
skipasmíðum, er þó sífellt unnið
að því að reyna að ná betri nýt-
ingu út úr þeim skipsskrokkum og
vélum sem almennt eru í notkun.
í Bandaríkjunum er starfandi nefnd
sérfræðinga, er einbeitir tilraunum
sinum að skipsskrúfunni. Talið er
að mögulegt sé að breyta skrúfunni
til þess að fá betri nýtingu út úr
henni. Myndin hér að ofan er af
einni slíkri hugmynd og virðist
byggð á svipaðan máta og hnífur
í hakkavél. Myndin er tekin í til-
raunastöð fyrirtækisins David Tayl-
or í Bandaríkjunum, og það er
bandaríski sjóherinn sem greiðir
allan kostnað við tilraunirnar.
S.-Afríka:
í Capetown hefur stórt útgerð-
arfyrirtæki gert tilraunir með að
örva fiskimenn til aukinna túnfisk-
veiða, með reknetum en árangur
orðið lítill, enda þótt þarna séu
mjög auðug og lítið nýtt fiskimið
skammt undan.
Japanir eru sagðir hafa byrjað
túnfiskveiðar á þessum miðum.
Þykir framkvæmdasömum mönn-
um þar syðra illt í efni að erlend-
ar þjóðir skuli hagnýta sér miðin,
og benda á nauðsyn þess að hefjast
handa með auknar túnfiskveiðar
áður en samkeppnin eykst. Fiski-
menn í Cape Town eru sagðir aft-
urhaldssamir um alla nýbreytni,
enda hefur eftirspurnin í landi ver-
ið takmörkuð. Sjávarútvegsmála-
ráðuneytið í S.-Afríku hefur samið
áætlun þar sem fiskimönnum er
heitið lánum til að endurnýja síld-
veiðiflotann. Færri hafa notfært
sér þetta en búizt var við. Ný síld-
ýeiðiskip eru dýr, kosta um
£ 20.000.
VÍKINGUR