Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Qupperneq 45
Þetta gerði útslagið á það!!
Ég mundi sjálfur fást við pant-
anir hans með ströngustu leynd
í dálkunum á forgangspöntunar-
listanum ætlaði ég að nota bara
þetta eina orð „tankar“.
Enginn mundi telja það
nokkru skipta, að gerðar væru
smápantanir til „tanka“. Það
gátu verið hverskonar grefilsins
geymar, sem vera vildi, — auð-
vitað. Flotastjórnin gat látið í
veðri vaka, að þetta væru vatns-
geymar, sem hún og aðrar
„deildir“ voru reglulega að afla
sér. Ef einhver njósnari eða
hlaupatík óvinanna sæi þetta orð
af tilviljun myndi það, að svo
komnu, ekki gefa annað til
kynna en geymsluhylki.
Yfirvarp okkar og „undir-
ferli“ reyndist vel. Engar fyrir-
spurnir risu af innfærslum mín-
um á forréttindalistann. Þessar
pantanir, sem ég sorteraði á
listana til hinna fjölmörgu fram-
leiðenda hluta og efna í „tanks“,
þeir skiptu hundruðum, dreyfð-
ust til þeirra án þess að vekja
minnstu grunsemdir.
Aðeins fáeinir menn vissu, að
þegar þessu dóti öllu hafði verið
safnað saman og sameinað, þá
mundi eitthvað verða til, sem
ræki heiminn í rogastanz!
Þegar fyrsta runan var til-
búin fóru tilraunir fram, að við-
stöddum fulltrúum hersins. og
þá voru drekarnir nefndir
„tankar“. Eftir prófanirnar
varð Haig svo ákafur, að hann
heimtaði afhendingu á 56
stykkjum. Þetta var í ágúst
1916. En svo fór, að nokkrir
voru teknir herfangi í fremstu
víglínunni, og þá var hagnaðin-
um af skyndiskelfingunni lokið.
Þjóðverjarnir ruku undireins til
að framleiða svipaða dreka. í
endurminningum sínum segir
Lloyd George frá því, að hann
beiddist þess af Haig, að hann
biði eftir því, að unnt yrði að
gera fjöldaárás með 200 stykkj-
um að minnsta kosti til þess að
gera stórkostlega sókn gegnum
allar varnarlínur og hindranir
Þjóðverja. Sumir ráðherrar vildu
VÍKINGUR
bíða eftir 1000 og allsherjarsókn
til þess að leiða ófriðinn til
lykta, ljúka þarmeð stríðinu.
Aðrar frásagnir af heimsku eða
fljótræði Haigs ganga manna
á meðal. Margt hefur verið rætt
og ritað af heillandi fjöri um
fyrsta áhlaup 200 dreka við
Cambroi, áhrif þess á hina fagn-
andi Brezku hermenn og á hina
skelfingu lostnu Þjóðverja. Pant-
anir á 1000 fylgdu í kjölfarið,
og tankarnir urðu nýr og áhrifa-
og afdrifaríkur aðili í hernað-
inum.
Á árunum milli fyrri og síð-
ari heimsstyrjaldanna urðu
skriðdrekah j ólböndin aðalatr ið-
ið, þegar mörg lönd breyttu um
gerð og útlit skriðdrekanna.
Auðvitað mátti kalla „tankana“
skriðdreka. En það hefði ''erið
svo upplýsandi, að það hefði
gefið allt til kynna, sem máli
skipti um þessi tæki, og leyndar-
málið orðið að „opinberu máli(!)
Gera hefði mátt ráð fyrir,
eftir að búið var að sýna öllum
heiminum þessa vígvél og gera
á henni síðari breytingar í gerð
og ætlun, að eitthvert þar við-
eigandi heiti hefði verið tekið
upp. Þegar Þjóðverjar, Frakkar,
Italir, Rússar og Ameríkanar
héldu áfram að gera og fram-
leiða ýmsar nýjar gerðir, hefði
mátt búast við nýju nafni, en
svo varð ekki. Tækinu var ekki
gefið viðeigandi nafn á viðkom-
andi tungumálum. Nafnið „tank-
ur“ varð að allsherjarnafni á
þessum tækjum.
165