Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1966, Qupperneq 21
KUWAIT íurstadæmið
í
L
r
RœkjuveiSafloti Kuwaitmanna.
Kuwait býr við öflugan fjár-
hag, en hann grundvallast aðeins
af einni framleiðslu: Olíu. Til
þess að gera tilraun til að auka
fjölbreytni framleiðslunnar,komu
nokkrir þekktir kaupsýzlumenn
sér saman um að athuga aðrar
auðlindir náttúrunnar: Fisk. Vit-
að var, að í Arabiska flóanum
voru rækjumið, en þau höfðu ekki
verið rannsökuð að neinu ráði.
Innlent fyrirtæki var stofnað í
Kuwait og þegar framámenn
fyrirtækisins höfðu reifað málið,
voru sérfræðingar á þessu sviði
kallaðir til skrafs og ráðagerða
og síðan til þess að setja saman
útboðslýsingu á smíði nauðsyn-
legs skipastóls.
Fyrir hendi voru tveir mögu-
leikar. Að byggja upp iðnaðinn
smátt og smátt, eða stíga allt
sporið strax og afla sér fullkom-
ins skipastóls. Þar, sem fyrir
hendi var nokkur vissa um næg-
ann afla, var síðari kosturinn
valinn.
Boðin var út smíði á átta 90
feta löngum togurum, svipuðum
að gerð og notaðir voru við
rækjuveiðar í Mexíkóflóa, en
jafnframt skyldu skipin vera með
skuttogaralagi og geta veitt með
botnvörpu annan fisk. Leitað var
tilboða í smíðina á heimsmark-
Framhald á bls. 208
n------------------------------------------------------------------------------ö
KUWAIT er lítið furstadæmi í Arabíu, — verndarsvæði Breta. Það var
lengi þrætuepli stórveldanna og Saudi-Arabíu, eftir að olía fannst þar í
jörðu. Samnefnd höfuðborg liggur sunnanvert við botn Persaflóa, sem er
20 mílna langur og 5 mílna breiður. Upplandið er eyðimörk. Tvær eyjar
útifyrir borginni skapa þarna ákjósanlega höfn. Við manntal 1957 reyndust
landsmenn 104.551 Þrátt fyrir nokkra olíuvinnslu, útflutning á kinda-
kjöti, ull og hrossmn, telst landið vanþróað, sem FAO telur að þurfi að-
stoðar. Trúarskoðanir og hefð á þessum slóðiun liamla mjög nýtingu mat-
væla, sem fyrir eru, svipað og á Indlandi, þar sem nautgripir (heilög dýr)
ganga uni og troða á hungurdauðu fólki. Þýð.
»------------------------------------------------------------------------------»
KortiS sýnir litla ríkiS
Kuwait viS Persaflóa.
VÍKINGUR
203