Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1966, Qupperneq 27
lengd. Ýmsar breytingar voru
gerðar til hagræðingar, áður en
veiðar hófust. Sérstökum rækju-
þvotta- og aðgerðarborðum var
komið fyrir, 2 á hvert skip, bak-
og stjórnborðsmegin. Undir þil-
fari var komið fyrir sjálfvirkum
tækjum til þess að raða upp
frystipönnunum, sem auðveldar
mjög alla vinnu í hinum þröngu
lestarrúmum. Tæki þetta hefur
reynzt ágætlega.
Eitt af hinum óvissu atriðum
var hve marga menn þyrfti um
borð til þess að vinna við aflann,
með sem beztum afköstum, í
fyrstu var gert ráð fyrir 30
mönnum, en innlendu mennirnir
náðu brátt þeirri leikni að miklu
færri þurfti við.
Auk þess að stunda veiðar á
landgrunninu, hafa tveir togar-
anna verið látnir sigla á fjarlæg-
ari mið í Arabiska flóanum, til að
kanna rækjumið og göngur, til
aðstoðar framtíðaráætlunum fyr-
irtækisins.
Móðurskipið hefur reynzt hið
þarfasta. Auk þess að birgja
veiðiskipin upp af olíu, vatni,
matvælum, varahlutum og afleys-
ingarmönnum o.s.frv. hefur nokk-
ur hluti aflans, þ.e. smæsti fisk-
urinn verið unninn þar um borð,
soðinn niður með haus og frvst-
ur í smápökkum.Þessiframleiðsla
hefur aðallega verið seld á frönsk-
um markaði.
Upphaflega var móðurskipið
byggt til þess að geta veitt 16
veiðiskipum þjónustu og til þess
að fullnýta það, á meðan flotinn
er ekki stærri, liggur nú fyrir að
gera nokkrar breytingar, sem ger-
ir því einnig fært að stunda veið-
ar, þegar önnur störf leyfa. Eftir
sjö mánaða rekstur kemur í ljós
að fyrirtækið gerir mun betur en
að bera sig. Þessi uppörvandi
staðreynd sannar að framsýni og
stórhugur forráðamanna Kuwait
National Fishing Co., átti rétt á
sér, er þeir ákváðu að koma sér
upp strax í byrjun svona mörg-
um skipum. Þá ber einnig að
þakka velgengnina hinum norsku
færu skipasmiðum, einnig fram-
VÍKINGUR
Þann 12. maí í vor kom ti!
Hornafjarðar nýrhafnsögubátur.
Teikningar bátsins gerði Egill
Þorfinnsson, skipasmíðameistari
í Keflavík, en hann er byggður í
Skipasmíðastöð Jóhanns Gísla-
sonar í Hafnarfirði. Birðingur er
úr eik, en yfirbyggingin er úr
aluminíum, stærðin er 7,3 rúm-
lestir, tegund vélar er Lister, 72
hestöfl, ganghraði er 8—9 sjóm.
á klst. 1 framhluta bátsins er
vistarvera heppilega innréttuð,
og í henni eru tvær rúmgóðar
hvílur, einnig eldavél og áhöld
til matargerðar. Sjúkrakörfu er
auðvelt að koma fyrir í stýris-
húsinu, og er þetta mjög mikill
kostur, þar sem Hornafjörður
liggur svona nærri veiðisvæði
innlendra og erlendra skipa. 40
vatta sendir er við talstöðvar-
settið, sem er frá Landsíma Is-
lands. Það er því hægt að hafa
talstöðvarsamband við bátinn
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
sýni og dugnað norsku forstjór-
anna, sem stýrðu fyrirtækinu í
upphafi.
Hinar innlendu skipshafnir hafa
náð góðum tökum á starfinu við
hinar áður ókunnu veiðar, sem
heldur hinum langa sjómanns-
heiðri Kuwaitbúa í heiðri.
Þýtt úr World Fishing.
M.J.
töluvert langa leið, og er slíkt til
mjög mikilla þæginda fyrir þá,
sem skipta þurfa við Hornaf j örð,
til að fá ýmsa fyrirgreiðslu. —
Sömuleiðis er í bátnum allur til-
skilinn öryggisútbúnaður.
Hinn nýi hafnsögubátur hlaut
nafnið Björn lóðs, eftir Birni
Eymundssyni í Lækjarnesi, sem
um tugi ára var hafnsögumaður
á Hornafirði. Eigandi bátsins er
Hafnarsjóður Hafnarhrepps. —
Formaður sjóðsins er Ársæll
Guðjónsson, útgerðarmaður. —•
Þessi nýi bátur mun mjög heppi-
legur til hinna ýmsu starfa, sem
honum eru ætluð, en þau eru
mikið fleiri en beinlínis að flytja
hafnsögumanninn. Svo sem að-
stoða við færslu skipa og báta í
höfninni, flytja farþega til og
frá skipum, sem stoppa utan við
Ósinn, en fara ekki inn í höfn-
ina. Einnig flytja lækni og sjúkl-
inga milli skips og lands. Ýmis
fleiri hagræði að „Birni lóðs“
munu koma í ljós þegar stundir
líða.
Hafnsögumaður á Hornafirði
síðastliðin fjögur ár hefir verið
Eymundur Sigurðsson, hinn
mesti dugnaðarmaður. Er hann
tók við þessu starfi, var hann
búinn að vera um árabil formað-
ur á Hornafirði, og er því þraut-
kunnugur öllu utan og innan
hafnar.
Stefán Nikulásson.
209