Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Page 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Page 2
Hún hafði í þá tíð aflað þjóð- inni ómældra auðæfa í erlendum gjaldeyri við miklar fórnir, sem hún var ákveðin í að notuð yrðu að verulegum hluta til eflingar sjávarútveginum, en yrði ekki sóað sem eyðslueyri, sem margir skammsýnir aðilar höfðu þó sterka tilhneygingu til. Síðustu 20 árin hefir sífellt sígið á ógæfuhliðina, aðallega á togaraflotanum, og gilda engin haldbær rök til afsökunar, enda þótt áraskipti ættu sér stað í af- komu — þau hafa ávallt átt sér stað frá upphafi vega í þessari atvinnugrein. — Orsakanna var í höfuðatrið- um að leita í þeirri staðreynd, að út úr sjávarútveginum var sogið fjármagn í svo grófum mæli, að honum var fyrirmunað að greiða sjómönnum lífvænleg laun, hvað þá heldur að nokkuð væri af- gangs, sem leyfði eðlilega endur- nýjun, eða jafnvel nauðsynlegt viðhald. Kröfuharka allskonar milli- liða og afætulýðs ásamt skamm- sýni og stjórnleysi ráðandi afla, lék í þessum efnum höfuðhlut- verkið í þeim leik að koma af- kastamestu atvinnutækjunum, togurunum á kné. Harðduglegir togaramenn, sem vegna áralangrar starfsreynslu, mynduðu kjarnann í stéttinni, voru flæmdir í land vegna óvið- unandi lífskjara. Þeim varð engin skotaskuld úr því, að afla betur borgaða og þægilegri vinnu í landi og þeir litu ekki við sjónum framar. Og afleiðingarnar blasa við okkur í dag í all óhugnanlegri mynd: Erfiðleikarnir við að manna þá fáu togara, sem ennþá fljóta, fara hríðversnandi. Til undantekninga má telja, að stöður yfirmanna á dekki og í vél séu skipaðar mönnum með til- skildum réttindum, lögum sam- kvæmt og mikil vandkvæði eru á því, að manna togarana færum bátsmönnum og netamönnum. Og alltaf versnar ástandið. Það virðist, eins og málin standa 54 nú, allsnúin ráðgáta, hvernig mahna skal þá fáu nýju skuttog- ara, sem vonir standa til að bæt- ist í flotann. Næst mundi að halda, að þeir fáu færu togaramenn, sem enn- þá fljóta flyttust yfir á þá nýju og ógerlegt verði að manna þá gömlu liðtækum sjómönnum. Yrði þeim þá flestum lagt í múrningar og síðan dregnir hljóð- lega í halarófu til útlanda í brota- járn. Við verðum að bíða átekta og sjá hvernig þeim „höfuðverk" reiðir af. Hér að framan hefir verið dregið upp með stuttum, en all- dökkum dráttum meginorsakir þess, að sigið hefir á ógæfuhlið- ina í íslenzkri togaraútgerð und- anfarna tvo áratugi. Hygg ég þó að þar hafi hvergi verið orðum aukið eða hallað staðreyndum. Hins vegar hefir, rúmsins vegna, orðið að hlaupa yfir ýmis mikilvæg atriði, sem stuðlað hefði að skýrari mynd. En ekki er loku fyrir skotið, að það geti orðið síðar. Bátagjaldeyris farganið, sem upp var fundið 1947 og þróaðist að hámarki fram yfir 1950, studdi dyggilega að ófarnaði togaraút- gerðarinnar upp frá því og inn- leiddi spillingu og ringulreið á fleiri sviðum, m. a. í verðlagn- ingu sjávarafurða. Þær róttæku neyðarráðstafan- ir, sem gera varð í árslok 1968, bitnuðu allavega harðast á sjó- mannastéttinni. Arður velgengnisáranna fram að 1967 var þá uppurinn, honum uppskipt, og betur þó. Þjóðarskútan var tekin að hall- ast ískyggilega. Sjómenn kingdu með allvæg- um tilburðum þeirra hlutaskerð- ingu, sem á þá var skellt. Að vísu mótmæltu þeir og hlaut það að teljast eðlileg viðbrögð, þar sem 55 prósenta gengisfell- ingin og aðgerðirnar í sambandi við hana verkuðu með skjótari hætti á samningsbundin hluta- kjör þeirra en laun annara stétta í landinu. „Hjólið“ þurfti að snú- ast nokkurt tímabil áður en fullra verkana gætti hjá öðrum launþegum. Eflaust hafa vald- hafarnir ályktað sem svo, að þarna væri garðurinn lægstur, enda reyndist svo vera. En svo birti á ný á hinum skýjaða himni efnahagsmálanna. 7.7 og 10 milljarða afköst sjó- mannanna, síðastliðin tvö ár, kom þjóðarskútunni aftur á réttan kjöl. Erlendar innistæður eru sagð- ar nema nokkrum milljörðum. Hvort erlend lán eru þar inni- falin, liggur ekki ljóst fyrir. Við þennan glæsilega aftur- bata, sem orðið hafði í efnahags- málunum og efnahagssérfræð- ingar náðarsamlegast létu frétta- þyrstum fjölmiðlurum í té undir síðustu árslok, vöknuðu vonir í brjóstum sjómanna um að nú væri sú stund að renna upp, að þeir ættu bæði málefna- og sið- ferðilega kröfu á því, að endur- heimta þær kjaraskerðingar, sem þeir höfðu orðið að þola tveim ár- um áður. Þeir sögðu því upp samningum sínum miðað við síðustu áramót til sikkerheita. Á því virtist þó full þörf, vegna þess að forsvarsmenn útgerðar- manna voru, vægast sagt, alltreg- ir til andsvara og vörðust allra frétta um væntanlega tilslökun á 22% frádraginu við löndun er- lendis að viðbættum 25% hvað togarana snerti, samtals 47 % Samningafundir voru strjálir og málin dregin á langinn og þeg- ar komið var fram yfir áramót og undirbúningi vetrarvertíðar lokið, hafði ekkert skeð jákvætt í kjarakröfum bátasjómanna. Svo hófst vetrarvertíðin og var þá auðsýnt, að tækifærin til að- gerða voru glötuð og leik urinn tapaður fyrir bátasjó- menn. Afhroð það, sem sjómenn guldi í þrá- tefli síðustu mánaða, gefur ærið tilefni til alvarlegrar íhugunar um skjótar aðgerðir varðandi skipulag samtaka þeirra, með heildarsamræmingu í huga. Ef ekkert skeður í þeim efnum, grafa þeir sína eigin gröf. Meira í næsta blaði. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.