Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Síða 14
árnað
heilla
12. febr. s.l. átti einn af for-
vígismönnum í menntamálum
sjómanna afmæli. Gunnar
Bjarnason, skólastjóri Vélskóla
Islands, varð sjötugur þann dag.
Gunnar hefir verið skólastjóri
Vélskólans síðan 1955, en þá
hafði hann starfað sem kennari
við skólann í 10 ár.
Ég tel, að það hafi verið mikið
lán fyrir Vélskólann, þegar Gunn-
ar réðst til hans sem kennari,
enda munu allir, sem notið hafa
kennslu hans, minnast hans sem
afburða kennara.
Það var því ekkert eðlilegra en
að Gunnari væri falið stjórn
skólans, þegar fyrrverandi skóla-
stjóri M. E. Jessen hætti störf-
um fyrir aldurssakir. Þegar
Gunnar hóf störf við skólann þá
var skólinn nýfluttur í veglegt hús-
næði, sem hann er í enn í dag, en
þá vantaði flesta þá hluti, sem
nauðsynlegir eru fyrir skóla, sem
hafa það að markmiði að búa vél-
stjóraefni undir starf sitt.
Þótt húsnæði væri fengið, þá
gerðist furðulítið í skólamálum
vélstjóra næstu árin. Vélstjóra-
námið krefst mikilla tækja og
húsrýmis, satt að segja vantaði
alla hluti að skólanum og þó mest
skilning þeirra manna, sem réðu
þessum málum á æðri stöðum.
Enginn hefir fundið þetta betur
heldur en Gunnar Bjarnason á
þeim árum, sem hann var kenn-
ari við skólann. Hann lá því ekki
á liði sínu, þegar hann tók við
stjórn skólans, enda urðu þá fljótt
umskipti. Vélasalur skólans
stækkaður, keyptar vélar og aðr-
ar fengnar að gjöf frá velunnur-
um skólans ásamt verkfærum og
tækjum. Ekki má þó gleyma
þætti nemendanna sjálfra, en þeir
settu vélarnar upp, að verulegu
leyti undir leiðsögn Gunnars og
vélfræðikennara sinna í verkleg-
um fræðum. Árangur þessa starfs
er vélasalur Vélskólans eins og
hann er í dag.
Rás tímans er hröð ekki sízt í
tæknimálum. Nýjar vélar, ný
tæki og nýir atvinnuhættir, að
þeim verkefnum þarf Vélskólinn
að aðlaðast hverju sinni, ef vel á
að fara. Engum er þetta ljósara
en Gunnari Bjarnasyni.
Einu sinni sagði Gunnar í við-
tali við mig: „Það sem er bezt við
að vera skólastjóri við Vélskóla
er, að þá eru ávaltt næg verkefni
óleyst handa þeim, sem tekur við
af mér. Vélskóli er aldrei full
mótaður".
Eg hefi þekkt Gunnar Bjarna-
son all náið um nokkur ár, fyrir
þau kynni færi ég honum þakkir.
Jafnframt óska ég honum og f jöl-
skyldu hans alls góðs um ókomin
ár.
Guðm. Pétursson.
Víkingur færir Gunnari
Bjarnasyni þakkir og alúðar-
kveðjur. Mælir hann þar fyrir
hönd starfandi nemenda hans og
annara velunnara.
66
VÍKINGUR