Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Blaðsíða 21
skipa (bls. 205). Ennþá er á skrá eitt 15 brl. skip smíðað fyrir alda-
mót, árið 1894. Þetta skip er GARÐAR BA-74, smíðaður úr furu og
eik í Farsund í Noregi 1894. GARÐAR mun alla tíð hafa verið nafn þessa
aldraða skips, sem lengi var í eigu Asgeirs Guðnasonar útgerðarmanns
á Flateyri, þá skráður lS-124. Af 849 skipum samtals 140.366 brúttórúm-
lestir eru 361 skip alls 71. 819 brl. smíðuð árið 1960 og síðar.
5. SKIP 1 SMÍÐUM 1. JANÚAR 1971.
Um þessi áramót voru óvenjulega mörg skip í smíðum og umsamin
fyrir íslenzka kaupendur. Alls voru í smíðum innanlands 69 skip, sam-
tais áætluð 4030 brl., en þar af eru 2 fiskiskip, 65 brl., hvort smíðað til
útfiutnings til Indlands. Af þessum 69 skipum eru 27 stálskip. Hin eru
| tréskip áætluð frá 6 upp í 48 brl. að stærð. Erlendis voru í smíðum eða
umsamin 10 skip fyrir íslenzka aðila, samtals áætluð 13.654 brúttórúm-
lestir. Þessi skip eru eitt vöruflutningaskip fyrir Eimskipafélag fslands
og tvö fyrir Samband íslenzkra samvinnufélaga. Hin skipin 7 eru öll
skuttogarar, tveir í Póllandi, fjórir á Spáni og einn í Noregi.
6. BREYTINGAR A SKIPASTÓLNUM, ARIÐ 1970.
í Skipaskránni á bls. 211-213 er gerð grein fyrir breytingum, sem orðið
hafa á íslenzkum skipastól árið 1970, bæði vegna nýskráningar, útstrik-
ana og endurmælinga. Skipastóllinn 1. janúar 1970 var 830 skip, alls
135.304 brúttórúmlestir, en 1. janúar 1971 var skipastóllinn 849 skip,
alls 140.366 brúttórúmlestir. Skipum hefur þannig f jölgað um 19 á árinu
og skipastóllinn stækkað um 5.062 brúttórúmlestir. Endurmæling á skip-
um hefur breytt miklu í þessari stærð skipanna á árinu. Endurmæld
hafa verið alls 66 skip, af þeim hafa 58 skip minnkað um samtals 1275
brúttórúmlestir, en 8 skip hafa við endurmælinguna stækkað um samtals
1618 brúttórúmlestir. Þar er aðallega um að ræða tvö skip Eimskipafélags
fslands BRÚARFOSS og SELFOSS, sem skráð eru nú sem svokölluð,
opin/lokuð skip, með tveim mælingum og fer þá eftir hleðslu skipanna
varðandi gjöld, en í skránni er við stærð skipastóls miðað við hærri mæl-
inguna.
7. VÉLATEGUNDIR f fSLENZKUM SKIPUM OG FJÖLDI AÐALVÉLA
1. JANÚAR 1971.
Teknar hafa nú verið í fyrsta sinni töflur í skipaskrána, sem sýna véla-
tegundir í íslenzkum skipum, miðað við stærðir og gerðir skipa. Kemur
þar í ljós að í íslenzkum fiskiskipum eru 50 mismunandi gerðir af aðal-
vélum. Fiskiskipin eru flokkuð þannig í 5 stærðarflokka, 0-49 brúttórúm-
lestir, 50-99, 100-299, 300-499 og 500 og yfir. Ef litið er á þessa stærðar-
flokka fiskiskipa í lieild, og allar stærðir fiskiskipa teknar saman, Þá eru
Lister vélar flestar, 132 alls, næst eru MWM 95 aðalvélar, þá GM 65 vélar,
CaterpiIIar 63 vélar og Alpha 46. f flutningaskipum er röð og gerð aðal-
véla önnur, og sömuleiðis í hverjum sérflokki af stærðum fiskiskipa.
8. MEÐALALDUR fSLENZKRA SKIPA, MEÐALORKA A RL. UNDIR
ÞILFARI, RADIÓ OG FISKILEITARTÆKI.
Nýjung í þessari skipaskrá eru Iíka upplýsingar um meðalaldur ís-
lenzkra skipa, meðalaldur á hverja rúmlest í mismunandi stærðarflokkum
og fjöldi mismunandi radíóbúnaðar og fiskileitartækja. Orkan er mest
8,25 hestöfl á rúmlest undir aðalþilfari í stærðarflokki 10-24 brl. fiski-
skipa, en fer lækkandi þegar skipin stækka, og er 2,27 hestöfl á rl. undir
þilfari á skipum 500 brl. og stærri. Meðalaldur er lægstur í flokki fiski-
skipa 200-299 brúttórúmlestir, 7.0 ár og næst 7,6 ár í flokki fiskiskipa
300-499 brúttórúmlestir. Elzt eru fiskiskip 25-49 brúttólestir 21,6 ára
gömul að meðaltali.
9. FISKISKIPASfTÓLL HELZTU
FISKVEBÐIÞJOÐA.
Enn ein nýjung í skrá yfir ís-
lenzk skip er samanburðartafla
yfir fiskiskipastól helztu fiskveiði-
þjóða, og eru þá meðtalin skip 100
brúttórúmlestir og stærri, skipt í
4 stænðarflokka. Tilgreind eru 30
lönd, og er fsland þar 15. í röðinni,
með 227 skip samtals 60.365 brúttó-
rúmlestir.
Skrá yfir íslenzk skip 1971 birtir
þannig margháttaðan fróðleik um
íslenzkan skipastól, sem vera mun
jafnt til gagns fyrir þá, sem nota
þurfa I starfi, sem og þeim til á-
nægju sem fylgjast vilja með ís-
lenzkum fiskveiðum og siglingum.
Bókin kostar kr. 250.— og fæst
hjá Siglingamálastofnun ríkisins,
Hamarshúsi .við . Tryggvagötu,
Reykjavík og hjá eftirlitsmönnum
Siglingamálastofnunar ríkisins ut-
an Reykjavíkur.
Úr innheimtubréfi:
„Vér leyfum oss hérmeð að tilkynna
yður, að vér höfum þegar gert meira
fyrir yður en yðar eigin móður.
Vér höfum beðið eftir yður í tólf
mánuði“.
*
Táninga þjáning.
„Morgun pabbi, ég bara renndi hér
við á skrifstofunni til að segja halló!“
„Of seint, drengur minn — of seint.
Hún systir þín var hérna rétt áðan,
og ég á ekki grænan eyri eftir“.
*
Það krefst góðs heila að vera húð-
latur maður. Hann verður alltaf að
hafa afsakanir á reiðum höndum.
Iðinn maður þarf hinsvegar ekki að
réttlæta sig.
*
íslendingur, nýkominn til Osló, tók
sér far með strætisvagni.
„Holbergs plass! hrópaði vagnstjór-
inn.
„Landinn“ stökk á fætur: „Fyrir-
gefið, ég hélt, að sætið væri laust.“
VÍKINGUR
73