Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Qupperneq 24
Fréttir í stuttu máli
ÞÓRÐUR JÓHANNESSON
Rússar gera áætlun um smíði á kassaflutninga-
skipum, sem eiga að geta lestað 500—600 kassa.
Verður ganghraði þessara skipa 24 sml. 1 þessu
sambandi byggja þeir nýja höfn fyrir kassaflutn-
inga í Ríga.
Risaflotdokka fyrir skip sem eru 1 millj. dw
verður smíðuð í Portúgal.
Fyrirhugað er að smíða nýtt þýzkt farþega-
skip, en það er nánast eins og fljótandi glerhöll.
Er skip þetta á margan hátt athyglisvert. Þetta
er fyrsta skipið í heiminum, sem verður fljótandi
heilsumiðstöð. Þarna verða að staðaldri læknar úr
ýmsum greinum, t. d. fegrunarsérfræðingar. Skip-
ið verður 16000 t brt. Aðstaða fyrir 400 farþega.
Byggingarkostnaður um 15 millj. DM. Skipið verð-
ur væntanlega tilbúið árið 1972. Eigendur eru
Kursashiff-Reederei Gmb H. og Co.
Hoiland mun brátt eignast flotkrana, sem á að
geta lyft 1200 t, og verður hann stærstur sinnar
tegundar í heiminum.
Heimsverzlunarflotinn skiptist svona
niður á eftirtalin lönd árið 1967:
Skipafjökli tonnatala
USA 3303 23033
Libería 1513 22598
Bretland 4156 21716
Noregur 2847 18382
Japan 6409 16883
Rússland 2238 10617
Grikkland 1600 7433
Italía 1445 6219
V-Þýzkaland 2697 5990
Frakkland 1538 5577
Stærsti krani á sporum verður byggður hjá
Krupp í Wilhelmshaven, kaupendur eru Harland
og Wolf í Belfast. Kraninn er 140 m breiður, 70
m hár og lyftir hann 840 t, sjálfur vegur hann
3000 t.
Krupp í Essen mun á næstunni smíða öflugustu
dieselvélina í V-Þýzkalandi, hún verður 30400 hö,
er hún fyrir kassaflutningaskip, sem er í smíðum
í AG. Weser, Bremen. Krupp mun einnig smíða
aðra vél, sem verður 60000 hö.
1 Bandaríkjunum er gerð áætlun um smíði á
loftpúðaskipi, sem verður allt að 5000 t, gang-
hraði áætlaður 160 km á klst.
Sovétmenn hafa óskað eftir aðstöðu á kassa-
flutningum í Hamborg, sem eiga að fara til
Ástralíu, verður um umskipun að ræða, en vænt-
anlega munu flutningar þessir hefjast 1972.
Verzlunarfloti heimsins hefur á síðustu tólf ár-
um tvöfaldazt, hann er nú 211 millj. brt, á síð-
ustu 12 mánuðum hefur hann stigið um 17.5
millj. brt.
Rússnesk skip verða æ tíðari gestir í höfum
Ameríku á vestur ströndinni. Áhafnir þeirra hafa
ekki leyfi til landgöngu og eru skipin undir smá-
sjá Bandaríkjamanna meðan þau dvelja þar.
Englendingar munu brátt taka upp þá nýjung
að flytja timbur í kössum (container).
1 Rotterdam er reiknað með, að á þessu ári verði
umskipun 200 millj. t. 1968 voru það 157 millj. t.
76
VÍKINGUR