Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Page 30
FÉLAGSMÁLAOPNAN
Föstudaginn 26. febrúar s. 1.
lauk allsherjaratkvæðagreiðslu
ura bátak j arasamningana, en
eins og kunnugt er var samkomu-
lagið frá 22. desember fellt, og
þurfti þess vegna að fara af stað
að nýju og leita samkomulags
við L. I. tJ. Aðilar komu sér sam-
an um að beina þeim tilmælum til
ríkisstjórnar að lögum nr. 79/
1968 yrði breytt á þann veg, að
frádráttur erlendis yrði 16% í
stað 22%. Litlar aðrar breyting-
ar voru gerðar á samkomulaginu
frá 22. desember og þannig var
þetta uppkast látið fara til alls-
herj aratkvæðagreiðslu. Atkvæða-
greiðslu lauk 26. febrúar og voru
atkvæði talin í húsakynnum F. F.
S. 1 og niðurstaða hennar varð
sem hér segir:
Já sögðu 245
Nei sögðu 135
Ógild 6
Auðir 9
Samtals höfðu 395 notað at-
kvæðisrétt sinn. Helztu breyting-
ar á bátakjarasamningunum frá
því sem verið hefur eru þessar:
Kauptrygging skipstj. og 1. stýri-
manns kemur nú aftur í sama
horf og hún var fyrir marzsam-
komulagið, en eins og menn muna
voru skerðingarákvæði í því sam-
komulagi, sem breyttu mjög hlut-
föllum í kaupgreiðslum til manna.
Á sínum tíma lét F. F. S. í. reyna
á þessi ákvæði hvort réttmæt
væru gagnvart samningum, far-
ið var í mál fyrir Félagsdómi, en
það tapaðist og hafðist ekkert út
úr málarekstri nema kostnaður-
inn.
Eins og fyrr segir hefur lög-
unum frá 1968 verið breytt og
mun stefna F. F. S. 1. verða sú
sama og verið hefur, að nema
þessi lög algjörlega úr gildi, þá
fyrst mun friður fást á vinnu-
markaðinum.
í þeim samningum sem nú hafa
verið samþykktir er nú í fyrsta
sinn ákvæði um hlutaskipti þeg-
ar veitt er með rækjutrolli. Einn-
ig eru ákvæði varðandi hörpu-
diskaveiðar. — Þá var breytt
stærðarmörkum á togveiðiskip-
um, þannig að nú eru skip 400 til
500 lesta stór í sérflokki. Nánar
verður skýrt frá samningunum í
Opnunni síðar.
TOGAR AS AMNIN GAR
Miðlunartillaga sáttasemjara
um kaup og kjör yfirmanna á tog-
urum var lögð fram sunnudaginn
28. febrúar kl. 1500 í Alþingis-
húsinu. Fundur var haldinn um
þessa tillögu með yfirmönnum
togaraflotans að Hótel Sögu síð-
degis sama dag. Atkvæðagreiðsla
hófst að fundi loknum og stóð
yfir fram á mánudag til kl. 1500.
Talin voru atkvæði hjá Sátta-
semjara.
Já sögðu 70
Nei sögðu 37
Ógild 2
Auðir 2
Samtals 111 atkvæði.
Eins og í bátakjarasamningun-
um var samstaða um að fá breytt
lögunum frá 1968 á þá leið að
frádráttur yrði 16% í stað 22%.
Fá nú allir 0,3% aukaaflaverð-
laun af þeirri upphæð sem selst
fyrir yfir £ 9000 samanber þó lög
nr. 79/1968. Frídagar eru nú
ákveðnir á annan hátt en áður og
greiddir á þriggja mánaða fresti.
Kaup í veikindaforföllum hækkar
nokkuð og tíminn lengist sem
veikindakaup er greitt. Sama
hækkun er á frídaga- og stopp-
kaupi og er á veikindakaupinu.
Tími sá sem miðað er við, þegar
skip kemur í höfn og frídagur
hefst, verður nú 21 tími og 30
tímar hjá skipstjóra. Þetta eru
helztu breytingarnar sem urðu á
samningunum, en þessu verður
gerð betri skil síðar hér í Opn-
unni.
Fundir með sáttasemjara urðu
alls 10 og lætur nærri að þeir hafi
staðið að meðaltali í 7x/2 klukku-
stund.
Fundir með sáttasemjara hefj-
ast yfirleitt þegar venjulegum
vinnudegi líkur, er þá sáttasemj-
ari búinn að sinna erilsömu starfi
allan daginn og getur verið orð-
inn þreyttur, þegar þessir fundir
hefjast. Mér þykir alveg fyllsta
ástæða til að önnur vinnubrögð
verði við höfð í sáttaumleitunum
en átt hefur sér stað um langt
skeið, í fyrsta lagi að fundir séu
haldnir að degi til svo menn geti
gengið að þessu með fullri orku,
en ekki að verið sé að þrefa og
þjarka við menn, sem eru illa fyr-
irkallaðir.
Það óvenjulega gerðist í þessu
verkfalli að forstjóri Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur gekk fast
fram í því að reyna að brjóta nið-
ur samtök yfirmanna, fyrst með
því að reyna að koma skipstjór-
um sínum til verkfallsbrota, þeg-
ar það dugði ekki var ruðst fram
á ritvöllinn og birt laun þessara
manna sem í vinnudeilunni stóðu.
Ekki var dregið af sér við iðjuna
og látið vaða á súðum í þeim efn-
um. Flaug mér í hug ummæli,
sem skrifstofustjóri fyrirtækis-
ins sagði við mig einu sinni, en
hann lét þau orð falla, að sjó-
mennirnir væru ómagar á út-
gerðinni. Fróðlegt hefði verið
fyrir almenning að fá eins gott
yfirlit yfir þær skuldir sem B.
VÍKINGUR
82