Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Blaðsíða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Blaðsíða 31
„Tvær spurningar að lokum“, sagði Holland, „og þær eru mjög þýðingarmiklar, bæði fyrir yður og alla þá, sem haft hafa með skipið að gera. „Þegar þér hugsið yður um, er- uð þér þá vissir um, að það var sprenging, sem olli því, að leki kom að eitt-lestinni. Mér skilst á yður, að við ríkjandi ástand gátuð þér ekki gert yður grein fyrir hvort það var rekald sem skipið rakst á, eða brotsjór, sem skall á skipið?" Patch hikaði og leit í kringum sig: „Það var alls enginn brotsjór,“ sagði hann ákveðinn. „Hvort við rákumst á eitthvað, eða hvort sprenging varð getur skoðun á skipinu aðeins skorið úr um.“ „Rétt, en þar sem skipið liggur sennilega á tuttugu faðma dýpi og við vitum ekki einu sinni hvar, er útilokað að framkvæma skoð- un. Ég óska eftir að heyra yðar álit“. Holland beið eftir svari, en þegar hann fékk ekkert, hélt hann áfram: „Þar sem þér setjið þetta í samband við brunann í loft- skeytaklefanum og síðar í lest- inni, hneigist þér þá ekki að þeirri skoðun, að um sprengingu hafi verið að ræða? „Ef þér lítið þannig á það, já“. „Þökk“. V.V.V.V.1.1.1.1.1. Ú. R. skuldar sjómönnum, t. d. í Lífeyrissjóð sjómanna, en þar mun vera um milljónir að ræða, á sama tíma skulda einkafyrir- tækin sum hver ekki eina krónu og standa við allar sínar skuld- bindingar. 1 þessum dálkum fæst nægilegt rúm ef forstjórar B.tJ.R. vilja birta, hvað framkvæmda- stjórarnir kosta fyrirtækið. Ekki tókst forstjórum bæjarút- gerðarinnar að brjóta samtök yf- irmanna á bak aftur, og ættu þeir að láta sér það að kenningu verða og reyna ekki illsakir við starfs- menn sína á einn eða annan hátt „MARY Holland settist og enginn hreyfði sig. Það varð hvorki hvísl né fótaspark. Allir í réttar- salnum sátu höggdofa yfir skýrslu þeirri, sem vitnið hafði gefið. Nú reis Sir Lionel Falcett á fætur. „Hr. dómari, mér þætti vænt um ef þér vilduð leggja eina eða tvær viðbótarspurningar fyrir vitnið. Hann var lágur og grannvax- inn, þunnhærður með hátt enni. Venjulegur maður í útliti En rödd hans var óvenju djúp og hljómmikil og bar greinilega vott um mikinn viljastyrk og lífsorku. Það var röddin, en ekki maðurinn sjálfur, sem náði strax tökum á réttinum. „Vitnið hefir skýrt látið í ljós, að hann sé sannfærður um að til- raun var gerð til að sökkva skip- inu og viðburðir þeir, er hann rakti fyrir réttinum, virðast styrkja þá skoðun hans. En ennþá skortir nákvæmari upplýsingar. V.1.1.1.1.1.1.1.1.1.1.1.1 Hins vegar væri full ástæða til að athugaður væri rekstur B. Ú. R. og þeir, sem ráða, látnir standa fyrir sínu máli opinberlega. Á meðan á verkfallinu stóð, hélt út- gerðarráð einn fund að minnsta kosti, en ekki þótti formanni á- stæða til fundarhalds, fyrr en málið hafði verið rætt í bæjar- stjórn. Það sem merkilegast gerðist þar að mínum dómi var, að fulltrúar sjómanna í útgerðar- ráðinu gátu ekki samþykkt að beita sér fyrir því að lögunum frá 1968 væri breytt. Meirihluti út- gerðarráðs er þannig samansett- DEARE“ Framhaldssaga Ég vil þó, hvað sem öðru líður, leiða athygli réttarins að þeirri staðreynd, að sjálft verðmæti skipsins virðist tæplega réttlæta svo óhugnanlegt samsæri. Þessvegna held ég, að ef um slíkt samsæri hafi verið að ræða, var tilgangur þess að komast yfir tryggingarfé farmsins á sviksam- legan hátt. Ég bendi á þetta, hr. dómari, vegna þess, að ef einhver sóttist eftir fjárhagslegum hagnaði með svo rögu og svívirðilegu ráða- bruggi, hlýtur farmurinn að hafa verið fjarlægður áður en skipið sökk. Bowen-Lodge kinkaði Kolli: „Ég skil þessar röksemdir; hver er spurning yðar?“ „Hún varðar tímann þegar skipið lá bundið við hlið Torre Annunziata á Rangoon ánni“, sagði Sir Lionel. ■v.v.v.v.v.w ur, að þar eru þrír sjálfstæðis- menn. Á umræddum fundi voru mættir tveir skipstjórar, annar í stjórn eins stærsta yfirmannafé- lagsins, hinn starfsmaður hjá Skipstjóra- og stýrimannafélag- inu Ægi, sem er félag skipstjóra og 1. stýrimanna. Allir vissu, sem vildu eitthvað vita um málið, að eitt veigamesta atriðið í samn- ingagerðinni var að fá lögunum frá 1968 breytt. Að sinni verður ekki rætt frek- ar um samningana. Ingólfur Stefánsson. VlKINGUR 83

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.