Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Qupperneq 13
Þarfirnar eru síbreytilegar.
Æskilegast væri að geta haft
skipin sem stærst og burðarmest,
en tíðni skipaferða hefur líka sitt
að segja. Ennfremur verður að
hafa það í huga, að margar hafn-
ir hér á landi eru ekki þannig að
unnt sé að sigla á þær með stór-
um kaupskipum. Eigi að síður
verður að flytja vörur þangað —
og taka vörur, afurðir, frá þeim.
Þetta verður allt að takast með
í reikninginn.
— Eins og fram kom hér að
framan, þá eru samningaviðræð-
ur á lokastigi um kaup á tveim
rúmlega 2000 lesta skipum, sem
væntanlega bætast í flota okkar
innan skamms.
— Þessi skip munu bætast á
þann markað, er við höfum nú á
flutningum til og frá landinu.
Hinu er svo ekki að leyna, að
þrátt fyrir aukinn kaupskipa-
flota, þá vantar enn talsvert á að
Islendingar annist siglingar sín-
ar sjálfir. Gjaldeyristekjur. tap-
ast því til erlendra aðila. Við
flytjum til að mynda ekki olíu
til landsins. Á sínum tíma var
þó til eitt stórt olíuskip, sem síð-
an var selt. Þarna þyrftum við
að taka málin í okkar hendur.
Sama er að segja um súrálið,
hráefni álverksmiðjunnar í
Straumsvík. Þetta er flutt úr
tempraða beltinu af stórum
málmgrýtisskipum. Fyrir þessa
farma eru greiddir milljónatugir
í farmgj öld og þyrfti að fá þessa
flutninga í hendur innlendum að-
ilum. Ég vil þó taka það skýrt
fram, að Hafskip hf. vinnur
ekki að því að fá áðurnefnda
flutninga, en þessa er þó getið
og sýnir, að við sinnum ekki
stórum hluta af nauðsynjum
landsins, þótt hér séu mörg kaup-
skip. Sovétríkin, Norðmenn,
Grikkir og fleiri þjóðir annást
þessa miklu flutninga fyrir okk-
ur, sagði Magnús Magnússon,
forstjóri Hafskips að lokum.
JG.
Fyrsta skip félagsins var M/S LAXÁ, sem var smíðuð fyrir félagið sérstak-
lega. LAXÁ kom til landsins árið 1959. Hér er verið að undirrita samning-
inn mn smíði skipsins, en það gerðu þeir Gísli Gíslason, Vestmannaeyjmn,
og Helgi Bergsson, formaður félagsstjórnar, árið 1958.
VIKINGUR
165