Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Blaðsíða 14
M/S LANGÁ SIGRAÐI
í HAMBORG
Skipshöfnin á Ms. Langá sigr-
ar í alþjóðlegri íþróttakeppni.
Um árabil hefur Handelsflá-
dens Velfærdsrád í Danmörku
beitt sér fyrir íþróttakeppnum
milli skipa og eru haldin tvö ár-
leg mót, norræn og alþjóðleg
keppni skipa í frjálsum íþrótt-
um.
Keppt er eftir sérstökum
keppnisreglum og ríkir þá stund-
um mikill áhugi meðal farmanna
um framvindu slíkra keppna.
Islensk farskip hafa ekki sem
skyldi tekið þátt í slíkum íþrótta-
keppnum, en hafa þó sumhver
verið með.
Alllangt er þó síðan heyrst
hefur um árangur Islendinga í
slíkum íþróttakeppnum sjó-
manna, þar til nú að skipshöfnin
á Ms. Langá vann það afrek að
verða númer 1 í keppni skipa í
II. flokki, sem eru skip með 15
menn eða minna, og hlaut skips-
höfnin 981,6 meðaltals punkta,
sem tryggði sigurinn ekki aðeins
í Hamborg, þar sem keppnin fór
fram, heldur urðu þeir V-Þýzka-
landsmeistarar í sínum flokki.
Fengu þeir að launum tvo bikara
til eignar sem prýða nú matsal
skipverja.
MFS hlutu tvo verðlaunabikara.
Úrslitin voru kunngerð í bréfi
til skipshafnarinnar dags. 19.
sept. 1974. Úrslitin í þessum
flokki urðu, sem hér greinir.
punktar meðalt.
1. Langá, Islandi 10.797 981.55
2. Mærsk Traveller
Danmörku 9,555 955.50
3. Baltique, Noregi 110.414 743.86
Sjómannablaðið Víkingur ósk-
ar skipshöfn Ms. Langár til ham-
ingju með þennan sigur og enn-
fremur til hamingju með bikara
þá tvo, er skipshöfnin hlaut að
launum fyrir afrek sín.
Þeir sem þátt tóku í keppninni
fyrir Langá voru eftirtaldir sjó-
menn:
Haraldur Sigurðsson, 1. vélstj.
Magni Sigurhansson, 1. stýrim.
Ingólfur Matthiassen, háseti
Árni F. Jónsson, háseti
Sigurður Þórsson, háseti
Guðmundur Halldórsson, háseti
Reynir Grímsson, 3. vélstjóri
Rögnv. Bergsveinsson, (skipstj.)
Pétur Guðmundsson, 2. vélstj.
Óskar Gíslason, 2 stýrim-
Rafn Kjartansson, háseti.
Elzti þátttakandinn var 46 ára,
en þeir yngstu á 17. ári, en öll
skipshöfnin var með.
RAFDRIFIN BRYNI
fyrir fiskvinnslustöðvar
fiskiskip og báta
Þaö er ekki ástæðulaust, að
MC rafdrifnu brýnin eru
óðum að leysa gamla
hverfisteininn af hólmi um
allt land, því að þau eru
MARGFALT FLJÓTVIRKARI
og AUKA ENDINGU
HNlFANNA:
Fyrir 110 og 220 volt.
Brýning tekur aðeins 1—2
mínúfur.
Stærð aðeins 25x20x15 cm.
Einnig: Hausingar hnífar,
flökunarhnífar, flatnings-
hnífar.
#### ÁRNIÓL AFSSON &CO.SÍMI 40088 OCKIO
166
VÍKINGUR