Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Blaðsíða 24
allur hafði búnaður verið hinn
skrautlegasti.
í skipinu var mikið af matvæl-
um, var þeim bjargað í land, sem
og öllu lauslegu er fyrirfannst
á skipsfjöl.
Siglutré voru felld og reiði
tekinn ofan, en skipið var þrí-
siglt.
Fljótlega eftir að skipið
strandaði lagðist það að sjó og
tók að brotna undan ágangi sjáv-
ar og brims. Var talið að sumt
af því er bjargað var hefði
skemmst í meðförum og sumt
ónýtt með öllu.
Hinn 5. apríl sendi sýslumaður
svo út hraðboða um alla Vestur-
Skaftafellssýslu og Eyjafjalla-
hreppa í Rangárvallasýslu, þar
sem auglýst var uppboð á strand-
stað hinn 12. aprílmánaðar, þar
sem selja átti allt það er bjargað
hafði verið úr St. Paul og skipið
sjálft.
Hinn 12. apríl var uppboðs-
réttur í Skaftafellssýslu settur á
Koteyjarfjöru og haldinn af hin-
um venjulega uppboðshaldara,
sýslumanni Guðlaugi Guðmunds-
syni, með vottum Dannebrogs-
manni Ingimundi Eiríkssyni, og
Magnúsi Bjarnasyni. Var þar og
fyrirtekið að selja hið franska
spítalaskip, St. Paul, ásamt
farmi þess og áhöldum.
Stóð svo uppboð þetta stans-
laust í tvo daga á Koteyjarfjöru,
dagana 12.—14. apríl. Uppboðið
byrjaði kl. 8 að morgni síðari
daginn. Margmenni var á strand-
stað, menn úr öllum hreppum
Vestur-Skaftafellssýslu og auk
þess nokkrir undan Eyjafjöllum.
Boðin, sem upp voru boðin,
urðu 774 og hljóp upphæð þeirra
allra á kr. 4546,75 aura. Skip-
stjóri, Theopils Lactorit, var
staddur á uppboðinu sem um-
boðsmaður skips og vátryggj-
enda.
Það sem selt var, var allskyns
varningur, auk braks og muna
úr skipinu.
Möstur voru seld á 25 kr. og
segl frá kr. 15,50—80,00, hveiti-
tunnumar voru seldar á kr. 30,00
stykkið, mikið var selt af niður-
soðnum matvælum og fór boðið
á kr. 1,50. Þá var og mikið selt
af fleski og svínafeiti og fór
kvartelið af fleskinu á kr. 6,00.
Smjörskútar voru seldir á kr.
15,00 og voru stórbændur eins
og Þorvaldur á Eyri kaupandi að
einum slíkum. Þá var mikið selt
af köðlum og seldust þeir frá kr.
18,00—21,00. Víkurbændur voru
kaupendur að þeim og fleiri. Þá
var mikið selt af kartöflum og
fór boðið af þeim á kr. 7—9,00,
sængur og koddar voru seldir á
kr. 6—7,00 boðið og járnrúm
fóru á kr. 4,00. Orgel var selt á
kr. 75,00 og keypti stúkan Alda-
mót no. 60 það. Dýrasta boðið á
uppboðinu var skipsskrokkurinn,
keypti Halldór í Vík hann á kr.
150,00.
„St. Paul“ var svo rifinn eftir
því sem hægt var og unnu menn
við að rífa flakið í böndum.
Allur var botn skipsins klædd-
ur með eirplötum og eirboltar til
halds í skipssúð, var það feyki-
mikið af trjávið sem úr strand-
inu kom og dreyfðist hann víða
um sýsluna. Skipið var byggt úr
eik og furu og svo til nýtt þá er
það strandaði. Fjallbönd áttu
Mýrdælingar lengi úr þessu
mikla strandi og höfðu þeir
sterka trú á þeim af því að þau
voru úr St. Paul. Lengi áttu
menn ýmsa muni úr þessu
strandi í Skaftafellssýslu, og til
eru enn smíðisgripir, sem unnir
voru úr efni úr St. Paul-strand-
inu.
Það var að vísu allhá upphæð,
sem Skaftfellingar greiddu fyrir
St. Paul-strandið, rösklega hálft
fimmta þúsund krónur, en þeir
fengu líka mikið í staðinn og
bjuggu lengi að ýmsu, sem þá
rak á land.
176
VlKINGUR