Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Blaðsíða 15
V erðlaunin
VERÐLAUNABIKARAR er skip-
verjarnir á M/S LANGÁ hlutu í
sigurlaun í keppni í frjálsum íþrótt-
um. Keppt var í 100 m hlaupi, kúlu-
varpi, hástökki, langstökki og 4x100
m boðhlaupi.
MFS starfsíþróttir eiga
rétt á sér.
Störf danska velferðarráðsins
að málefnum sjómanna eru kunn
mörgum íslenskum sjómönnum.
Samtökin starfa víða um heim og
markmiðið er að skipuleggja tóm-
stundastarf um borð í danska
kaupskipaflotanum, og eins að
skipuleggja landvist sjómanna í
erlendum höfnum. Á mörgum
hinna stærri skipa hefur verið
komið upp aðstöðu til líkamsrækt-
ar og tómstundastarfs, sem nýtur
mikilla vinsælda hjá sjómönnum
á farskipum, sem gjarnan hafa
lítið fyrir stafni, þegar vöktum
lýkur á stjórnpalli, í vél, eða við
dagleg störf, hver sem þau kunna
ao vera. Danska ríkið og ýms
líknarfélög leggja þessu starfi lið
og útgerðarfélögin dönsku hafa
mörg hver sýnt þessu máli skiln-
ing og hafa varið fjármunum til
þess að bæta tómstundaaðstöðu
sjómanna sinna.
Auðvitað er þetta nokkuð mis-
jafnt frá einu félagi til annars.
Skipin eru líka misstór og henta
misjafnlega til tómstundastarfa,
en ekki er óalgengt að t. d. knatt-
spyrna sé leikin á undirþiljum
meðan skipið plægir hafið, og
sum skip hafa litlar sundlaugar,
sem eru til afnota fyrir skipverja.
Algengast mun samt vera, að
komið er fyrir þrekþjálfunar-
tækjum, þar sem menn geta
stundað líkamsrækt í frístundum
sínum.
MFS
Skipulagt tómstundastarf.
Þá er ótalið að þegar skipin
koma til erlendra hafna er þess
oft kostur að gefa skipverjum
tækifæri til þess að koma á sund-
staði eða íþróttavelli til æfinga,
ennfremur eru skipulagðar skoð-
unarferðir og ferðir á knatt-
spyrnuleiki eða íþróttamót, ef svo
stendur á. Þá eiga danskir sjó-
menn greiðan aðgang að kvik-
myndum, en filmur eru á ferða-
lagi um allan heim. Þegar komið
er í hafnir er skipt um filmur,
annað hvort beint milli skipa, eða
á dönskum sjómannaheimilum,
sem eru víðsvegar um heiminn.
En sem mestu máli skiptir er, að
þetta tómstundastarf er skipu-
lagt og um borð í skipunum er
skipsklúbbur, sem er tengiliður
milli skipulagsaðila í landi og
skipshafnarinnar á skipinu.
Það er kunnugt að um borð í
snmum Islenskum skipum eru
starfandi skipsklúbbar, sem beita
sér fyrir einu og öðru, er tóm-
stundir skipshafnarinnar varðar.
Væri gaman að fá fregnir af
slíku starfi um borð í íslenskum
skipum. Þótt segja megi að ís-
lenskir farmenn hafi nokkra sér-
stöðu, þ. e. að skipin sigla yfir-
leitt til íslenskra hafna, eru dag-
ar samt oft gráir og í lengra lagi.
Það er því sannarlega þörf fyrir
skipulagt tómstundastarf á far-
skipunum okkar, ekki síður en á
öðrum norrænum kaupförum.
J. G.
FÆRIBANDAREIMAR Fyrir fiskvinnslustöðvar,
skuttogara, rækjustöÖvar, fiskimjölsverksmiðjur
RÆKJUFRAMLEIÐ-
ENDUR ATHUGIÐ:
Ljósgrænu reimarn-
ar á skoðunar-
böndin hafa
sannað gildi sitt.
MIKIÐ ÚRVAL
TEGUNDA, LITA
OG STÆRÐA.
Einnig allar
tegundir færi-
bandareima úr
riðfríu stáli og
galvaniseruðu stáli.
SPYRJIÐ ÞÁ,
SEM REYNSLUNA HAFA.
SLÉTTAR
fyrir
LÁRÉTTA
FÆRSLU
RIFLAÐAR
fyrir
HALLANDI
FÆRSLU
með
ÁSOÐNAR
SPYRNUR
fyrir
BRATTA FÆRSLU
ARNIOLAFSSON &CO.SIMI 40088
VÍKINGUR
167