Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Blaðsíða 27
athygli á skóla sínum þegar þeir,
undir leiðsögn eins kennara
sinna, tóku upp á því að stilla
olíukynditæki landsmanna og
sýna fram á það með tölum að
hægt væri að spara milljónir
króna með kunnáttu og verk-
lagni. Ég þakka því Ólafi Eiríks-
syni kennara og nemendunum
fyrir þetta framtak."
„Húsnæðisvandræði eru fyrir-
sjáanleg hér í Reykjavík ef aukn-
ing verður á nemendafjölda, svo
sem verið hefur undanfarin ár, en
vonir standa til að Tækniskólinn
hverfi úr vélasalshúsinu og að
Vélskólinn yfirtaki það húsnæði
og mundi það leysa húsnæðismál
skólans a. m. k. næsta skólaár.
Þar er fyrirhugað að gera tvær
almennar kennslustofur, þrjú
lítil vinnuherbergi fyrir kennara,
en þar fáum við einnig efnarann-
sóknastofu og eðlisfræðistofu en
slíka sérstofu hefur skólinn
aldrei átt“.
Að lokum afhenti Andrés Guð-
jónsson skólastjóri verðlaun til
nemenda, sem skarað höfðu fram
úr á prófum. Þakkaði fyrir gjaf-
ir, sem skólanum höfðu borist. Að
lokum mælti hann nokkur hvatn-
ingarorð til nemenda, þakkaði
samkennurum sínum og prófdóm-
endum og sagði síðan skólanum
slitið.
Athöfn þessi var hin hátíðleg-
asta. Að ræðu skólastjóra lokinni
flutti Guðmundur Eiríksson vél-
stjóri ræðu af hálfu 20 ára nem-
enda og Svana Víkingsdóttir lék
einleik á píanó.
Leikið var á flygel, sem skól-
anum barst að gjöf frá eldri
nemendum. — J. G,
Fyrsti kvenvélstjórmn
Guðný Lára Petersen við skólaslit Vélskólans. Hún sýndi frábæran árang-
ur í námi. Sjóinannablaðið Víkingur óskar henni til hamingju og öðrum
þeim nemendum, sem námi luku nú í vor.
VÍKINGUR
179