Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Qupperneq 42
Laxhryggur frá fyrirtækinu
hlaut silfurmedalíu á Atvinnu-
sýningunni í Moskvu.
Daglega sendir fyrirtækið 1500
kg af fiskréttum í verzlanir, veit-
ingahús og kaffistofur í Suður-
Sakhalínsk og nálægum borgum
og byggðarlögum.
Á næsta ári mun fyrirtækið
koma sér upp eigin verzlun, sem
mun bera nafnið „Okean“. Á hún
að rísa miðsvæðis í höfuðborg
eyjarinnar, og á annarri hæð
verður veitingahús fyrirtækisins,
hið fyrsta í sinni röð á Sakhalín.
Hér verða ekki aðeins framreidd-
ir rússneskir réttir, heldur einnig
ýmsir þjóðlegir réttir frá Japan,
Kóreu, Kína og Norðurlöndum.
Fyrir þrem árum var stofnuð
ný deild í fyrirtækinu, fiskrækt-
ardeild. Er henni ætlað að rækta
ferskvatnfisk á eynni. 200.000
vatnakarfaseyði voru flutt til
eyjarinnar frá Amúrfljóti, og
sleppt í vötn á eynni. 1972 var
komið með 300.000 seyði til við-
bótar. Amúrkarf inn (Cyprinus
carpio) var fljótur að venjast
hinum nýju heimkynnum. Hann
er alinn á kornóttu kraftfóðri, og
vötnin hreinsuð reglulega.
Þá er ákveðið að hefja ræktun
besters, sem er kynblendingur
sterlettu og hvítu styrju. Frá
hvítu styrju erfir hann stærð
sína og þyngd, en vaxtarhraðann
frá sterlettunni.
Beterarnir munu búa í þróm
með glerþaki. Með rafeindaútbún-
aði geta ræktendur stjórnað
„veðrinu“ þar inni að vild. Ár-
vatnið, sem notað verður í þrón-
um, verður hitað upp í +20 til
32°C.
í 1000 fermetra steinsteyptri
þró, hólfaðri, verður komið fyrir
200.000 seyðum. Gert er ráð fyrir,
að uppskeran verði 150 kg af
fiski á fermetra.
Til hlunninda fiskvinnslustöðv-
arinnar verður og að telja Seley,
sem liggur skammt frá. Á þessari
eyju er eitt að þeim þrem loðsela-
látrum, sem vitað er um í heim-
inum.
Sovétríkin, Japan Qg Kanada
hafa gert samkomulag, þar sem
gert er ráð fyrir árlegu kvótakerfi
varðandi loðselaveiðar. Japan og
Kanada skuldbinda sig til að
veiða loðselinn ekki á langferðum
hans, og fá ákveðið magn af
skinnum í staðinn.
Vísindamenn allra þriggja
landanna, sem ég hef haft tal af,
eru sammála um að samkomulag
þetta stuðli að fjölgun þessara
sjaldgæfu dýra. Það verður æ
þrengra á Seley með ári hverju.
Menn eru farnir að byggja
tveggja til þriggja hæða „skála“
fyrir selina. Af ótrúlegri lipurð
klöngrast þessir luralegu risar
upp í trékojurnar, sem smíðaðar
hafa verið handa þeim. Dýrin
komast nú nærri því upp á hæsta
klettinn, þar sem áður ríktu lóm-
ur og langvía óáreitt.
Tuttugu og fimm veiðimenn,
þar á meðal læknir, loftskeyta-
maður, vélstjóri rafstöðvarinn-
ar og kokkur, dvelja á Seley frá
maí og fram í ágústbyrjun. Loð-
selaslátrun hefst í júní og lýkur
síðasta dag júlímánaðar.
Þarna eru skinnin aðeins verk-
uð til bráabirgða, fituhreinsuð,
söltuð og flokkuð. Síðan eru þau
send til Leníngrad og Bandaríkj-
anna, þar sem þau eru fullunnin.
Yfirverkfræðingur fyrirtækis-
ins Leonid Janísevskí sagði,
að norska firmað Riber mundi
einnig hefja fullvinnslu loðsela-
skinna innan skamms. Firmað
hefur sannað tæknilega mögu-
leika sína á reynslusendingu frá
Sakhalín.
Hluta skinnanna frá Seley
sendir Fiskvinnslustöðin til Jap-
an og Kanada um hafnarborgina
Nakhodka. Kjötið er hins vegar
kælt og sent til næstu hafnar,
Poronajsk. Aðallega eru það
minkabú, sem kaupa kjötið. Úr
lifur og spiki er unnið A-vítamín.
Búskapur hennar er 13 millj-
ónir rúblna. Arðurinn tryggir
starfsmönnum fyrirtækisins há
laun. Verkamenn fá 240—250
rúbiur á mánuði og 30 prósent
bónus fyrir að uppfylla fram-
leiðsh.Aætlunina. Árlega afhendir
fyrirtækið hluta ágóða síns, 60—
80 þús. rúblur, borgarstjórninni
til að standa straum af byggingu
nýrra íbúðarhúsa fyrir starfs-
menn þess.
FISKVERKENDUR
ÚTGERÐARMENN
ALLAR
TEGUNDIR
KLÓRTÆKJA fyrir
VINNSLUSTÖÐVAR,
FISKISKIP og BÁTA
EINNIG: KLÓRMÆLITÆKI,
KLÓRGASGRIMUR.
GASKLÓRTÆKI.
BÁTAKLÓRTÆKI VATNSKLÓRTÆKI
|#|| ÁRNIÓLAFSSON &CO.SÍMI 40088
194
VlKINGUR