Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Blaðsíða 49
►
VÉLSKÓLI ÍSLANDS
Veturinn 1975—1976 verða
starfræktar eftirtaldar deildir:
í Reykjavík: 12., 3. og 4. stig.
Á Akureyri: 1 . og 2. stig.
Á ísafirði: 1. og 2. stig.
í Vestmannaeyjum: 1 . stig.
Á Siglufirði: 1 . stig.
í ráði er að stofna deild á Akranesi er^veiti þá
fræðslu sem þarf til að Ijúka 1. stigi vélstjóra-
náms ef næg þátttaka fæst.
INNTÖKUSKILYRÐI:
1. stig:
a) Umsækjandi hafi náð 1 7 ára aldri.
b) Umsækjandi sé ekki haldinn næmum sjúkdómi eða hafi líkamsgalla
sem geti orðið honum til tálmunar við starf hans.
c) Umsækjandi kunni sund.
2. stig:
a) Umsækjandi hafi náð 1 8 ára aldri.
b) Umsækjandi hafi lokið miðskólaprófi eða hlotið hliðstæða menntun.
c) Umsækjandi sé ekki haldinn næmum sjúkdómi eða hafi likamsgalla
sem geti orðið honum til tálmunar við starf hans.
d) Umsækjandi kunni sund.
e) Umsækjandi hafi eitt af þrennu: 1. Lokið vélstjóranámi 1. stigs með
framhaldseinkunn, 2. Öðlast a.m.k. tveggja ára reynslu i meðferð véla
eða vélaviðgerðum og staðist sérstakt inntökupróf við skólann, 3. Lokið
eins vetrar námi i verknámsskóla iðnaðar i málmiðnaðargreinum og
hlotið a.m.k. 6 mánaða reynslu að auki í meðferð véla eða vélavið-
gerðum og staðist sérstakt inntökupróf.
UMSÓKNIR:
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu skólans í
Sjómannaskólanum, hjá húsverði Sjómanna-
skólans, hjá Vélstjórafélagi íslands Bárugötu
11, í Sparisjóði vélstjóra Hátúni 4A og hjá
forstöðumönnum deilda.
Umsóknir um skólavist í Reykjavík sendist til
Vélskóla íslands, pósthólf 5134, Reykjavik.
Umsóknir um skólavist á Akureyri sendist til
Björns Kristinssonar, pósthólf 544, Akureyri.
Umsóknir um skólavist á ísafirði sendist til
Aage Steinssonar, Iðnskóla ísafjarðar.
Umsóknir um skólavist í Vestmannaeyjum
sendist til Kristjáns Jóhannessonar, pósthólf
224 Vestmannaeyjum.
Umsóknir um skólavist á Siglufirði sendist til
Markúsar Kristinssonar, Hlíðarvegi 4, Siglu-
firði.
Umsóknir um skólavist á Akranesi sendist til
Sverris Sverrissonar, Iðnskóla Akraness.
Umsóknir nýrra nemenda verða að hafa borist fyrir 1.
ágúst.
Skólinn verður settur mánudaginn 1 5. septem-
ber kl. 14.00. Kennsla hefst miðvikudaginn
1 7. september kl. 1 0.00.
Endurtökupróf fyrir þá sem ekki náðu tilskilinni
einkunn eða náðu ekki framhaldseinkunn, fara
fram í 1. viku september. Sækja þarf um
þátttöku í þeim á sérstöku eyðublaði.
SKÓLASTJÓRI,.
það er traust frá
Netanaust
Vönduð veiðafœraþjónusta
uppsetningar og viðgerðir.
VÍKINGUR
201