Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Page 59

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Page 59
næmi. Það var að vísu varla hægt að segja, að svo yrði þrátt fyrir mörg en smá framlög. En þá tók stiftamtmaður að sér að útvega 200—300 rd. styrk hjá stjórn- inni, og forseti og féhirðir Húss- og Bústjórnarfélagsins hétu að að bera fram tillögu um 50 rd. viðbótarframlag, ef með þyrfti. Nú ber þess að gæta, að hér var ekki eingöngu og ef til vill ekki aðallega verið að skjóta saman í farareyri, heldur var ætlunin, að landarnir keyptu for- vitnileg tæki til reynslu hér, ef þeim litist svo á. Ekki verður annað séð, en að hinir dönsku kaupmenn hafi brugðizt vel við í þessu máli sem og útgerðarfé- lagið danska. En slíkum viðbrögð um danskra manna er lítt á loft haldið meðal okkar Islendinga. Ýmsir kunna auðvitað að vilja halda því fram, að hinir dönsku kaupmenn hafi ætlað að græða á hinum hugsanlega auknu fiski- veiðum og bættri nýtingu aflans, en ætli íslendingar sjálfir hefðu ekki notið slíkra framfara, engu síður og munað meira um það? Og ekki verður annað sagt en að Hilmar Finsen hafi farið vel og hyggilega að. Þessa sömu daga daga og samskotin stóðu yfir, var hann að taka formlega við embætti sínu, og hann hafði í mörgu að snúast. Að morgni 6. ágúst gerist hann formaður fjár- öf lunarnef ndar B j örgvinj arf ar- ar, eins og það myndi heita núna. Daginn eftir tekur hann á móti öllum alþingismönnum, en fyrir þeim fór alþingisforsetinn, Jón Sigurðsson, sem ávarpaði stift- amtmann og mæltist vel. Á há- degi þessa mikla söfnunardags ganga svo fyrir hann allir bæjar- stjórnarmenn og ýmsir háttsett- ir embættismenn. Fyrir þeim fer að sjálfsögðu forseti bæjarstjórn- ar og ávarpaði hann í nafni allra Reykjavíkurbúa. Hann hét Jón Guðmundsson, málaflutnings- maður, og reyndar sami maður og ritstjóri Þjóðólfs. Þar með var jafnframt skrifari ,,for- gaungumaður fyrir samskotafé handa þeim, er færi héðan á Björgvinarsýninguna“ að ávarpa formann hennar. Þess er einnig rétt að geta, að sá sem ávarpaði stiftamtmann um morgunin'n, Jpn Sigurðsson, alþingisforseti, var einnig í forgaungunefndinni. Póstskipið Afcturus kom til Reykjavíkur 3. ágúst 1865 og meðal farþega var hinn nýi stift- afntmaður Hilmar Finsen ásamt f jölskyldu. Viku síðar hélt skipið út áftur, og segir Þjóðólfur svo frá: ,,Til fiskveiða sýningsins í Éjörgvin fóru héðan af suður- landi með síðustu póstskipsferð Geir Zoéga húseigandi í Reykja- vík, Guðmundur Guðmundsson, ýngismaður í Landakoti á Vatns- leysuströnd, og Kristinn Magn- ússon, skipasmiður og fýrrver- andi hreppstjóri í Engey. Kandi- dat Oddur Gíslason gat eigi farið sakir ýmsra anna og ferðalaga, og er hann vissi eigi þetta fyrr en kvöldið áður en póstskip fór. Auk hinna þriggja fór einnig með gufuskipiu Hafliði óðals- bóndi Eyjólfsson frá Svefneyj- um“. Hafliði var reyndar kominn til Reykjavíkur, þegar forgaungu- nefndin var stofnuð, staðráðinn í að fara á sýninguna. Hann hlaut einnig styrk til þess. En eitt vissi forgaungunefnd- in ekki varðandi þátttöku Islend- inga í sýningunni, enda minnist ritstjóri Þjóðólfs, skrifari nefnd- arinnar, aldrei á það í blaði sínu. Það var nefnilega einn íslending- ur þegar farinn utan til að sækja sýninguna í Björgvin. Hafði hann farið með júlí-ferð póst- skipsins og var -kominn 3 vik- um á undan hinum á sýninguna og því orðinn hagvanur þar, er styrkþegar forgaungunefndar- irinar mættu. Maður þessi' var Sumarliði Sumarliðason frá Kollabúðum, gullsmiður og óðals bóndi á Vigur í Isafjarðardjúpi. Hann hafði reyndar fengið styrk úr ríkissjóði, sem hinir ekki fengu, fyrir tilstilli hins nýja amtmanns Vestfirðinga, Bergs Thorbergs. Hafði hann komið með Arcturus 30. júní, og Sum- arliði fór utan með skipinu viku síðar! Allir komu þeir aftur, og eng- inn þeirra dó. Þeir komu allir 5 með póstskipinu 29. okt. 1865. Þjóðólfur segir svo frá: „Þeim var hvívetna vel tekið, einkanlega í Noregi og af íslend- ingum í Kaupmannahöfn æðri og óæðri. Björgvinarmenn héldu þeim skilnaðarsamsæti 19. sept., kvöldið áður en þeir fjórir fóru þaðan. (Geir Zoéga' hafði farið viku fyrr til Gautaborgar). Er því lýst í Björgvinarpóstinum 24. og 27. s. m. Er jafnframt þess getið, hverjar skálar þar hafi verið drukknar, og að Sumarliði Sumarliðason hafi mælt fyrir tveim minnum af hendi íslend- inga. Þar var og í boði meðal fleiri hinn víðfrægi fíólleikari Ole Bull, er situr þar á búgarði sínum Valaströnd, tæpa þing- mannaleið frá Björgvin, og kom hann með fíól sitt og lék á það til mesta gleðiauka fyrir alla. Is- lendingar í Kaupmannahöfn héldu þeim og fagnaðar samsæti, er þar var komið, og að síðustu gengu þeir allir 5 fyrir konung vorn og kvöddu hann, og fylgdi þeim að því herra Jón Sigurðs- son, skjalavörður. Tók jöfur þeim ljúflega og spurði þá að ýmsu héðan af landi. Kvaðst liann að vísu hafa mikinn hug’á því að koma sjálfur norður til ís- lands, en þó að það mundi verða að farast fyrir, mundi hann von bráðar láta son sinn koma þang- að. Þess má og eigi láta ógetið, hve vel að Björgvinarmennirnir t-era söguna póstskipstjóranum M. Andresen þeim til handa, er hann eigi aðeins auðsýndi þeim bróðurlega mannúð og velviljá um borð í Arcturus á leiðinni út og upp hingað, heldur og beindi ferð þeirra frá Englandi til Björgvinar og þaðan aftur á bezta hátt og eftir því, sem hon- um var framast auðið. ítarlegri skýrslu um þessa ferð þeirra félaga, lýsingu Björgvin- arsýningsins sjálfs, og hvað þar með gæti áunnizt til framfara VÍKINGUR 211

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.