Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Síða 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Síða 4
Frá höfninni í Reykjavík — Þarna landaði Frans oft miklum afla. mig á bryggjunum og ég gaf syni mínum bátinn. Samt er ekki öll von úti enn, því sonur minn, þessi sem fékk bátinn minn, er nú búinn að selja og er að láta smíða sér annan nýjan suður í Kópavogi og hann er búinn að lofa mér að fara með mig út á Svið þegar hann byrjar að róa í vor. Það verður þó ekki bara skemmtiferð, ég þarf að setja hann inn í ýmsa merkilega hluti, fiskimiðin í Bugtinni, Ham- arinn meiri og Hamarinn minni og allt það og norður í Forir. Þetta verða menn allt að vita, ef þeir ætla að slíta upp einhvern fisk í henni Faxabugt. Hún er gjöful, en aðeins þeim er hafa tíma til þess að setja sig inn í hlutina, aðrir fá minna en ekkert. Ég ætti nú að þekkja það. II. I raun og veru er orðið skelfing langt síðan. Ég er fæddur 13. ágúst árið 1897 á Lindargötu 9, sem kölluð var, en þar bjuggu foreldrar mínir Ari Antonsson, sem lengi var verkstjóri hjá Kol og Salt og kona hans Guðríður Magnea Berg- mann. Þau áttu þrjú börn, en tóku sér til viðbótar sex fósturbörn, svo þetta var stórt heimili. Móðir mín hafði búskap í Laugardal og þar býr nú síðasti bóndinn í dalnum, sonur hennar, Gunnar Júlíusson. — Ég ólst upp við höfnina og byrjaði snemma að fást við báta og hélt við það, þrátt fyrir ýms við- vörunarorð á stundum, en svo of- bauð föður mínum að hann lét smíða handa mér bát þegar ég var 10 ára gamall, og þótti nú dálítið flott á því þá, og siðan hefi ég alltaf átt báta, þar til konan taldi mig á að farga þeim síðasta, áður en hann fargaði mér. — Fórstu í skóla? — Skóla? Nei, ég fór ekki í skóla, til þess hafði ég ekki tíma, nema eitthvað var ég i barnaskóla, sem var skylda, ég var á sjó. Hélt áfram að róa með stráka og við sóttum i þyrsklinginn úti á sundum og veiddum oft vel. Þar lærði maður að sigla og fór mikinn og þarna var ég þangað til að ég fór á skútu, hana rasslausu Gunnu suður í Hafnarfirði, en þá vár ég tólf ára gamall. Rasslausa Gunna hét þetta af því að hún var rasslaus og Ágúst Flygenring átti hana. Hann vildi aðeins vaska menn á skútuna. Mamma var alin upp á Býa- skerjum suður í Sandgerði. Þar voru fjórir bræður, sem voru eftir- sóttir skútumenn sökum dugnaðar og harðfylgis, en skútuútgerðin stóð og féll auðvitað með góðum mönnum einsog allt fiskirí gerir. Þeir voru miklir fiskimenn og því eftirsóttir til handfæraveiða. Ágúst fékk þrjá þeirra á Gunnu, en þeir settu það skilyrði að ég fengi að fara með, en ég vildi ólmur komast á skútu. Þetta var sumarvertíð og við fiskuðum vestur af landinu og útaf Vestfjörðum, einsog þá var siður. Annar strákur var með á skút- unni, sem síðar átti eftir að koma við sögu, Sigurjón Einarsson, skip- stjóri, sem stýrði mörgum togurum en varð síðan forstjóri Hrafnistu. Hann var þarna með pabba sínum, sem var þarna stýrimaður, en hann hét Einar Ólafsson. Menn höfðu gjarnan þann sið að taka stráka með sér þegar þeir fóru á skútum og það var hollur skóli. Strákar eru fljótir að tileinka sér sjómanna siði, góða og vonda og það kemur þeim að miklu haldi síðar. Það var verið á Selvogs- banka og svo var farið vesturfyrir eftir því hvernig fiskaðist og sum- arið leið og það fór að hausta. Við fengum að kynnast hafinu í öllum sínum myndum og einu sinni hrepptum við fárviðri og misstum út mann. Þeir voru að gera klárt sem kall- að var og þá fékk skipið á sig sjó og hreif með sér tvo menn. Þeir skröngluðust aftur með og tókst ekki að ná í þá, en öðrum skolaði síðan inn á þilfarið aftur og honum tókst þeim að bjarga. Það var Hafliði bróðir séra Bjarna, dómkirkjuprests. — Þetta var ægileg iífsreynsla fyrir okkur alla, ekki síst óharðn- aða stráka. Návist dauðans i skipi, 332 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.