Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Qupperneq 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Qupperneq 29
Dregist hefur um nokkur blöð, að birta þetta framhald af ágætum greinum vinar okkar Guðfinns af þessum norðlægu, en merkilegu slóðum landsins. Á móti kemur að okkur tókst á tímabilinu, að afla okkur nokk- urra mynda, svo að greinin hefur síst rýrnað að gildi. Landslagsmyndirnar tók Guðl. Gíslason, stýrimaður. Ritstj. Andrés á Norðurfirði. Eins og ég hef getið um áður í Víkingi, var Andrés Guðmundsson frá Norðurfirði einn af hinum fyrstu innfæddu Strandamönnum er ég hafði kynni af þetta ár 1951. Hann mun þá hafa verið um sex- tugt. Hann var einn af þeim fáu sem eftir voru af hinum alkunnu hákarlaveiðimönnum, sem reru út á íshafið á opnum skipum fyrir og eftir síðustu aldamót og héldu sjó svo dægrum skipti án allra þæg- inda sem nú í langan tíma hafa verið talin lágmark lifsskilyrða. Maðurinn bar það líka með sér að hér var enginn veifiskati á ferð, stórvaxinn, kraftalegur, svartur á brún og brá (farinn að grána), hamhleypa til allrar vinnu og að því er virtist allur stórbrotinn, hvort sem um var að ræða líkam- legt atgervi í viðskiptum við höf- uðskepnurnar á sjó eða landi eða í gleðskap í góðu tómi, þar sem sagt var að hann væri hrókur alls fagnaðar. Hann mun hafa leikið Skuggasvein í heimabyggð sinni og þótt takast vel. Þetta er ekki ósennilegt og ég býst við að litlu einu hafi þurft að mutra til um útlit hans til þess að gera hann heppilegan i hlutverkið. Vöxtur hans, raddstyrkur, karlmannlegt yfirbragð, loðnar brúnir, úfið hár og snarar hreyfingar hafa ekki þurft neinna lagfæringa við. Gæruúlpa ein hefur nægt. Hann bjó ásamt konu sinni allan sinn búskap á Norðurfirði, eignaðist og kom upp mörgum börnum. Eg veit ekki hvort hægt er að skrá þau með einum tölustaf en þau munu eftir þvi er ég bezt veit vera að mestu laus við allan kveifarskap. Andrés og þau hjón bæði virtust vera sátt við hina óblíðu náttúru, langa vetur og hin blíðu og gjöfulu sum- ur á Ströndum. Andrés var for- maður í mjölhúsi, ósvikinn starfs- maður, sem enn þá gat rétt úr sér. Guðjón Jónsson. Einsetumaður i smákofa á eða rétt utan við verksmiðjulóðina. Ekki sérstaklega „sóigneraður“, Halldór Júlíusson, Reykjavík. Rúmlega tvítugur laganemi í Há- skóla Islands. Vann við löndun, bílakstur, vélskóflustjórn, löndun- arkrana o.fl. Hafði verið 3—4 Þórður Hjörleifsson Snæbjörn Ólafsson Halldór Ingimarsson VÍKINGUR 357
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.