Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Qupperneq 31
Fiskhjallur í Norðurflrði.
sem byggðist á frekari kynnum en
ég hafði tök á að afla þessa stuttu
vertíð. Vissulega voru þó margir
sem ég hefði gert betri skil eftir
lengri samvinnu.
Ekki fer milli mála að formenn
slíkrar starfsemi sem hér um ræðir
kynnist mörgum nýjum mönnum
árlega, bæði starfsmönnum og sjó-
mönnum, einkum skipstjórum.
Eftir jafnstutta vertið og var þetta
sumar hjá Ingólfi voru það ótrú-
lega margir einstaklingar sem
maður kynntist og þekkti, en þau
kynni entust í flestum tilfellum
ekki lengi, og mun ég ekki þekkja
nú nema tiltölulega fáa né muna
nöfn þeirra, þótt ég kannaðist við
manninn. Þyí miður er þetta nú
svona, þar vinna saman tíminn
sem líður, minnið sem sljóvgast
með honum og í þriðja lagi nýir
menn og ný andlit á hverju ári. En
þrátt fyrir þetta eru einstöku per-
sónur sem ekki fyrnast.
Samningsbundin skip
Aðeins þrír togarar voru samn-
ingsbundnir hjá Ingólfi þetta
sumar en þeir voru:
b/v Karlsefni — skipstjóri
Halldór Ingimarsson. Hann var
eins og fyrr setir fyrsta skip sem
VÍKINGUR
kom með afla, lagði upp alls fimm
sinnum samtals tæp 1800 tonn.
b/v Helgafell — skipstjóri
Þórður Hjörleifsson. Lagði upp tvo
farma samtals 551,5 tonn.
b/v Hvalfell — skipstjóri Snæ-
björn Ólafsson. Lagði upp einn
farm samtals 376 tonn.
Allir þessir togaraskipstjórar eru
svo kunnir að ekki er þörf að kynna
þá frekar hér, en enda þótt ég hafi
haft við þá alla meiri og minni
viðskipti í mínum störfum á und-
angengnum árum og því verið
þeim öllum málkunnugur kynntist
ég þeim þó fyrst eitthvað persónu-
lega þetta sumar.
Hér var nægur tími til þess að
tala saman um ýmis málefni með-
an löndun stóð yfir, þar eð þeir
höfðu ekkert við að vera á meðan;
gagnstætt því sem á sér stað í
heimahöfn í Reykjavik þar sem
hver mínúta er reiknuð háu verði.
Ég hafði bæði gagn og gaman af
að kynnast þessum aflaklóm, og ég
vona, að þeir séu nokkurn veginn
sáttir með okkar viðskipti enda
þótt þessi staður væri ekki bein-
línis æskilegur landfræðilega séð
eins og á stóð. Þó sögðu þeir
Þórður og Snæbjörn að það borg-
aði sig vel að leggja upp hér fyrir
hina fljótu afgreiðslu sem þeir
fengu, en það eru að sjálfsögðu
margar hliðar á hverju máli og
ákaflega skiljanlegt að sjómenn frá
Reykjavík væru ekki hrifnir af
þeirri ráðstöfun að leggja upp afla
sem þeir fengu hinum megin við
landið — á Ströndum. En þessir
sómamenn létu lítið á því bera.
I
Trékyllisvík — Norðurfjörður — Urðartindur — Kálfatlndur — Krossnesfjall.
359