Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Page 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Page 45
Jrnruxn T'rA\sXA1‘ A , i j„/u CMiy CUCfJ.tCiF 'm$9&£. wZkvs r í fmm fdluu:Mt ur.Jm JMnt/áfi. / f 'óEítys ;-;cfo~e& rU£qí nn/i Copm ormintj \ ^Tirnm' «!» íydMW.1 r Xs, ~7*lfrij\ es Landakort Robert Thorne’s frá 1572 að ýmsu leyti nákvæmara, en mörg önnur síðari kort. saman oe sá norræni loks liðið undir lok. Hliðstætt við grikkjann Pytheus væri víkingurinn Eiríkur rauði nú betur kurtnur í röðum landkönnuða íshafs- slóða, ef starfsemi hans hefði verið skráð í einstökum atriðum. Hann hefur örugglega rannsakað Grænland meira en nokkur annar maður allt fram að síðustu öld. Hann þekkti Davis-sund löngu áður en Elízabethar-tíma sjófar- inn sem það ber nafn af kom þangað. Hann þekkti Baffin‘flóa á undan Baffin og hann eða félagar hans hafa sennilega rannsakað baffin-eyju, sem þeir nefndu Helluland — land hinna flötu steina. Hinir norrænu sæfarar sigldu jafnt austur sem vestur. Um svipað leyti og ísland var byggt, sigldi maður að nafni Ottar, höfðingi úr N-Noregi fyrir Kola-skaga inn í Hvítahaf. Hann hitti fyrir ókunna þjóðflokka í norð- ur-RússIandi, veiddi þar mikið af rost- ung, drap nokkra hvali og jók þarmeð á virðingu sína *og velmegun sem var talsverð fyrir. Frásögnina um ferðir Óttars má rekja til ekki lakari heimildar en hins merka lærdómsmanns Alfreðs konungs af Wessexs, þess eina úr konungasögu Englands, sem hefur áunnið sér viður- nefnið „hinn mikli“. Sem þátt í eigin framtakssemi sinni við að uppfræða þjóð sína, jafnhliða því að verja hana fyrir ágangi danskra víkinga, þýddi hann úr latínu 5. aldar Veraldarsögu spánverjans Orosiusar. En ósmeykur við að umbæta góða sögu, fléttaði kon- ungurinn þar inn það sem Óttar hafði við langelda í einhverri engil-saxneskri höll, sagt honum af ferðum sínum. Hve nákvæmlega Alfreð konungur hefur tekið upp frásögn Óttars verður að láta ósvarað. Það gildir því sama um nákvæmar heimildir af ferðum Óttars eins og Ei- ríks rauða og annarra víkinga, að þær eru glataðar síðari alda mönnum. Þegar Ríkharður kanslari sigldi inn íHvítahaf var honum ekki kunnugt um að norsk- ur sæfari hefði komið þar nær-700 árum áður; Grænland var numið að nýju á Renaissance-tímabili Evrópu. Nokkur handrit höfðu þó varðveizt — 11. aldar munkurinn Adam frá Bremen hafði skráð sögur um Eirík rauða, og senni- lega hafa sögur um ferðir víkinga á norðurslóðum lifað í munnmælum meðal fiskimanna í norðvestur Evrópu. En hjá Iærdóms- og kortagerðarmönn- um 15. aldar varð ekki ráðið neitt um að hin miklu ferðalög norrænna manna hefðu nokkurn tíma átt sér stað. (Þýtt: Haildór Jónsson) VÍKINGUR 373

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.