Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Side 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Side 47
Skipin munu hljóta nöfn eftir eyjum með ströndum Bretlands og hlaut fyrsta skipið nafnið HMS JERSEY, en hér er verið að leggja seinustu hönd á skipið fyrir af- hendingu. Sem sjá má af myndinni er skipið vopnað og virðist allt hið rennilegasta. Skutu 30 skotum að sovéskum togara Mjög mikill fiskiskipafloti legg- ur nú stund á veiðar á fiskimiðun- um við Bretland og írland. Kvarta fiskimenn hástöfum undan ásókn erlendra fiskiskipa og .nýverið komust mál í heimsfréttirnar, þeg- ar írska landhelgisgæslan tók rúss- neskan skuttogara og færði til hafnar eftir mikla baráttu á mið- unum eftir stjórnmálalegum leið- um. írarnir skutu þrjátíu skotum að togaranum áður en hann gafst upp og hélt til hafnar. Forssaga þessa máls er sú að stór hópur verksmiðjutogara var að veiðum um og innanvið 12 sjó- mílna fiskveiðimörkin við Irland. Irski flotinn var kvaddur á vett- vang og lauk málinu í bili með því að flotinn færði 2300 tonna búlg- arskan skuttogara til hafnar og var skipstjórinn sektaður um 100£ og afli og verðmæti 102.000 sterlings- pund var gerður upptækur. Meðan skipin voru í höfn, kom írskt herskip að sovéska togaranum BELOMORYE eina mílu fyrir innan fiskveiðitakmörkin á þess- um slóðum og neitaði skipstjórinn á hinum 2500 tonna rússneska togara að fylgja varðskipinu til hafnar og það var ekki fyrren her- skipið hafði skotið 30 skotum að togaranum, að skipstjórinn gafst upp. Hér sjáum við rússneska tog- arann eftir að hann hafði verið tryggilega bundinn við bryggju í Kork, þar sem réttarhöld fara framí máli skipstjórans. Sovéski landhelgisþrjóturinn í höfn. Baráttan gegn ólög- legum veiðum harðnar VlKINGUR 375

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.