Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Page 60
íslensku sjómanna, sem farist hafa frá síðasta sjómannadegi til loka febrúar í ár,
er nú samtals 23.
Þrátt fyrir bættar líf- og örorkutryggingar sjómanna má að sjálfsögðu ekkert
lát verða á, að áfram sé unnið að auknu öryggi sjófarenda. Sannleikurinn er líka sá,
að i dag eigum við hina hæfustu menn, sem að þessu vinna, bæði hjá Slysavarna-
félagi íslands og Sjóslysanefnd. Þá er bæði rétt og skylt að geta þess, að flestir
skipstjórar og útgerðarinenn kappkosta að hafa öryggisútbúnað skipanna í sem bestu
lagi og nokkrir hafa sérstöðu um leitun slíkra hjálpartækja og búnað skipa sinna
á þessu sviði fram yfir það, sem reglur segja um.
Flest sjóslys sýna fram á eitt og annað fyrir þá, sem áhuga hafa á, og lærdóm
má draga af. Enn fremur vekja þau Spurningar, sem nauðsynlegt er að fá svar við.
Síðasta sjóslysið hér við land, er v/s Sjöstjarnan fórst, og sú umfangsmikla
leit, sem þá átti sér stað frá innlendum og erlendum skipum og flugvélum, segir
okkur, að í ýmsu sé ábótavant um vitneskju okkar á þvi, hvaða áhrif vindar og
straumar hafi á rek gúmbjörgunarbáta af ýmsum stærðum með mismunandi hleðslu.
Straumar eru mismunandi að stefnu og styrkleika, og liggur ekki of mikið af
fróðleik þar um fyrir skipstjórnendum, þótt vel hafi verið að unnið hin síðari ár. Vind-
hraði og sjávarrót er breytilegt, en áhrif þessara afla sameiginlega á rek björgunar-
báta hafa lítt verið könnuð hér við land við aðstæður, sem til verða, þegar þessir
þættir, sem nefndir hafa verið, fara nokkrir eða allir saman. Þetta þarf að gera
viða við landið sérstaklega á hafsvæðum, þar sem einn þessara þátta hefur meiri
áhrif en annar. Þess skal getið, að sú er álitið, að vindur hafi meiri áhrif á rek
slíkra báta en almennt hefur verið talið til þessa, þótt hleðsla og djúprista hafi þar
einhver áhrif á.
Gúmbjörgunarbátarnir hafa ijegar bjargað fjölda mannslífa hér við land. En
gerð þeirra og búnaður hlýtur að verða áfram sem hingað til undir gagnrýni og
til endurskoðunar með frekara öryggi í huga.
Það, sem nú þarf sérstaklega að kanna, er, hvemig megi búa báta þessa, svo
að þeir verði betur séðir í augnmáli en nú er, enn fremur um ratsjárendurskins-
merki á bátana eða að hægt verði að gera þá sjálfa éndurskinshæfa, að ekki sé
talað um rannsókn á þvi, með hvaða hætti sé hægt að koma fyrir í bátunum sjálf-
virkum radíó-s sendi á neyðarbylgju, sem fari af stað, þegar báturinn blæs upp.
Fleira má að sjálfsögðu upp telja, og á það mun minnst í framsögu fyrir tillögu
þessari.
Þegar flm. þessarar tillögu flutti ásamt fleiri þingmönnum fyrir rúmum áratug
hér á Alþingi þáltill. um daglegt eftirlit með fiskiskipum, að gefnu tilefni, þótti
mörgum úr röðum sjómanna og þeirra, sem að slysavarnamálum unnu, seint ganga
með framkvæmd till. Enda fór svo, að Slysavarnafélagið og samtök skipstjórnar-
manna beittu sér fyrir framgangi málsins. Tilkynningarskyldan, sem nú starfar
allan sólarhringinn og er rekin á vegum Slysavarnafélagsins, hefur stóreflst á síð-
ustu árum með heill og öryggi sjófarenda í huga auk mikilsháttar þjónustuhlutverks
fyrir fjölskyldur sjómanna og útgerðarmanna.
Með þeirri till., sem hér er flutt, ef samþykkt verður, er verið að slá föstu um
vilja Alþingis til að leggja i þann kostnað, sem af slíkri rannsókn leiðir. Ágrein-
ingur verður ekki meðal sjómanna um forustu málsins. Þeir bera traust til 'Sjó-
slysanefndar og þeirra aðila, sem að henni standa, en þar er Slysavarnafélag ís-
lands einn aðila, auk fulltrúa Siglingamálastofnunar, útgerðarmanna og sjómanna,
bæði yfir- og undirmanna.
Þess er því að vænta, að aðilar þessir hefjist þegar handa um framkvæmd
till. þessarar, ef Alþingi veitir samþykki sitt þar til.“
FRÁ FFSÍ:
Síðan þingsályktunin var sam-
þykkt hafa ekki verið tök á þvi að
hrinda í framkvæmd málinu, fyrr
en nú að hafist er handa.
Fiskveiðideilan við Breta tók
allan skipakost gæslunnar og
meira til og var af þeim sökum ekki
til skip, sem gátu farið í þetta
verkefni. nú hefur ræst úr í þessum
efnum og hefur gæslan talið sig
geta látið skip til athugananna.
Rannsóknarnefnd sjóslysa hefur
gert tillögu um hvernig athugan-
irnar skuli fara fram, gerir hún ráð
fyrir að fram fari athuganir á
nokkrum stöðum kring um landið
svo sem: útaf Sv.-landi, Nv.-landi,
N.-landi, Austurlandi og
Sa.-landi.
Þessar athuganir taka óhjá-
kvæmilega alllangan tíma og það
skip, sem til verkefnisins fæst
verður að vera óháð öðrums törf-
um á meðan á þessu stendur, ef
árangur á að fást.
388
VÍKINGUR