Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Side 61

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Side 61
Fyrir nokkru bauðst nefndinni varðskipið Árvakur til þess að fara í fyrstu ferðina. Það má segja að kannski hefði nefndin getað verið heppnari með skip til þess að fara á í slíka könnun, þar sem ætlunin var að halda úti í slæmum veðrum, en einn af forustumönnum gæsl- unnar lét þau orð falla, að útí það skip færi hann ekki nema að hann væri í böndum, enda þekkti hann skipið vel og menn höfðu fengið allskonar útreið þar um borð, meðal annars fótbrotnað í látun- um. Ekki þarf að orðlengja það. Nefndin varð fegin skipinu og ég vil fyrir hönd nefndarinnar þakka forstjóra gæslunnar að fyrir hans framtak í þessu máli, er það komið á hreyfingu og er það fyrir mestu. Laugardaginn 8. nóv. barst okkur svo tilkynning um að haldið skyldi til hafs. Framkvæmdastjóri nefndarinnar tíndi saman það sem nota þurfti til ferðarinnar og var því komið fyrir í húsi S.V.F.I. á Grandagarði, en skipið var að koma frá Austfjörðum og var því ætlunin að við kæmum um borð í Þorlákshöfn. Bíll frá gæslunni tók svo farangurinn ásamt okkur nefndarmönnum og öðrum til- kvöddum og fór með okkur að höfninni. ÚTGERBARMENN! Vér erum umboðsmenn fyrir þýzku Dieselverksmiðjuna KLÖCWNER-HUMBOLT- DEUTZ, stærstu Dieselverksmiðju í heimi, hin elzta og reyndasta í sinni grein. Margra ára reynsla hér á landL HAMAR HP. Símar: 22128 — 22126 VÍKINGUR Besta veður var hér í Reykjavík stjörnubjart og norðan kæla svo menn litu þetta veður misjöfnum augum, því talið var að heldur þyrfti að vera bræla þegar þessi athugun færi fram. Strax og við vorum komnir um borð var haldið til hafs og stefnt suður Selvogsbanka og var ætlun- in að vera 12—15 mílur vestur af Surtsey þegar bátarnir væru sjó- settir. í næsta blaði verður sagt frá, hvernig athugunin fór fram.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.