Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Síða 69

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Síða 69
Hinn 17. október 1946 afhenti Tnnflvtienrlasamhand Ursmíðafé- aö gjöi mjög vandaða turnklukku. Þá fylgdu klukkunni 12 kennslu- stofuklukkur. 1 tilefni af þessum 30 ára tíma- mótum, þykir Víkingnum viðeig- andi, að rifja upp þennan atburð, sem mun vera orðinn fyrndur, — en holl fræðsla fyrir nemendur skólans. ritstj. Ásgeir Sigurðsson skipstjóri þakkaði hina rausnarlegu gjöf, fyrir hönd FFSÍ og sjómanna. Mælti hann m.a. á þessa leið: „Um leið og ég þakka af heilum hug fyrir hönd okkar, sem erum umbjóðendur sjómanna í bygg- ingarnefnd skólans, — Úrsmiðafél. Islands fyrir veglyndi það og vin- semd í garð sjómanna, sem lýsir sér með þessari veglegu gjöf, hinni miklu klukku í turn skólans, sem auk þess að vera hin mesta dvergasmíði, að sögn sérfróðra, hefir með sér postulana tólf, hinar 12 veggklukkur, þá læt ég eigi hjá líða að láta í Ijósi þá ósk mína og von að hún megi verða til þess, með sínum 12 fylgihnöttum, að minna nemendur skólans á stund- vísi og árvekni við námið. Og eins og hinn veglegi skóli, sem byggður er á bjargi, er hið táknrænasta merki til þess að leiðbeina sjó- mönnum, um örugga leið út og inn af höfninni til höfuðstaðar lands- ins, svo verði og þessi turnklukka til þess að minna, eigi aðeins sjó- menn, heldur og alla landsmenn, á að gjöra rétta og þarflega hluti á réttum tíma. Geti hún þannig orðið sannkölluð íslandsklukka, í orðsins sönnustu og bestu merk- ingu“. Lýsing hinnar veglegu klukku er á þessa leið: Turnklukka Sjómannaskólans í Reykjavík er með fjórum skífum hátt á annan metra (168 cm.) að turnsins. Þær ganga allar tynr einu verki, sem stendur á miðju gólfi á . sömu hæð. Verk þetta er af nýrri gerð, mjög sterklegt, gjört af stáli og kopar. Stálrör ganga úr verkinu út af skífunum fjórum og tengjast þær vísunum, en þeir standa ó- varðir utan á skífunum. I stórviðri þarf mikinn kraft tii þess að stjórna vísunum og er raf- magnsmótor, sem komið er fyrir í sambandi við verkið látinn annast það starf. Dregur hann klukkuna upp á nokkurra mínútna fresti. Bili rafmagnsveitan, heldur klukkan þó áfram að ganga rúma 3 tíma. Að innanverðu við úrskíf- urnar, sem eru úr ljósu ópalgleri, er komið fyrir ljósaútbúnaði, sem kviknar á þegar dimmt er orðið, og gjörir þær lýsandi. — Mun þetta vera fyrsta turnklukkan hér á landi, sem lýst er upp á þennan hátt. — -Ef staldrað er við í turninum og horft á hjólverk klukkunnar, virð- ist það fyrst í stað standa kyrrt, en nákvæmlega tvisvar sinnum á mínútu hverri færist ,,líf“ í verkið, hjól og spaðar taka að hverfast og vísarnir færast fram um hálfa mínútu. Hér er „sál“ klukkunnar að verki, móðurklukkan nákvæma, sem á heima á annarri hæð hússins og sendir boð með rafmagns- straumi til turnklukkunnar og hinna tólf stofuklukkna, sem henni eru undirgefnar, víðsvegar um skólann. Færist þá hver þeirra fram um hálfa mínútu. Móður- klukka þessi er af mjög fullkom- inni gerð, með sekúndudingul úr „Invar“-stáli, en stáltegund sú er ónæm fyrir hitabreytingum, sem annars rugla ganginn. Ennfremur virðist gerð þessi vera laus við þann annmarka á eldri klukkum, sem orsakar gangskekkju vegna þykknandi olíu. 397 íslands- klukkan VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.