Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Side 71
t HORFNIR FELAGAR f
Ölver Fannberg
stýrimaður
minning
Vinur minn Ölver Fannberg lést
á Landspítalanum miðvikudaginn
3. nóvember.
Hann var fæddur í Bolungarvík
30. apríl 1924, sonur hjónanna
Kristjönu Jónsdóttur Fannberg og
Bjarna Fannberg skipstjóra. Ölver
ólst upp í „Víkinni“ hjá foreldrum
sínum og komst þá fljótt í kynni
við sjóinn og beitingarskúrana,
enda var hann mjög góður sjó-
maður.
Hann fluttist með foreldrum
sínum til ísafjarðar 1935, og lauk
þar ’gagnfræðaprófi. Ölver var af-
buéða línumaður, og tók oft þátt í
kappmótum á ísafirði og vann til
verðlauna. Hann var einnig mjög
góður netamaður, handfljótur,
handlaginn og vandvirkur.
Fjölskyldan flyst suður til
Reykjavíkur 1943. Þar kynnist
hann konu sinni, Þóru Ólafsdótt-
ur, Friðrikssonar frá Jaðri í
Þykkvabæ. Þóra vann þá hjá
Magnúsi Kjaran og Soffíu konu
hans. Við Ölver vorum mikið
saman á þessum árum, og eru
margar ljúfar minningar í huga
mínum frá þeim tímum.
Ölver fer í Stýrimannaskólann
1947 og lýkur prófi þaðan 1949.
Þáttaskil verða í lífi hans þegar
tengdamóðir hans og mágur deyja
með stuttu millibili og Ólafur er
eftir með eina dóttur. Ölver og
VfKINGUR
Þóra flytja austur og fara að búa
að hálfu á móti þeim. Síðan
versnaði heilsa Ólafs og aldurinn
færðist yfir hann, tók þá Ölver við
þeirra helmingi búsins. Fyrstu árin
voru þau með skepnur, en síðustu
árin eingöngu með kartöflurækt.
En síðan kom slæma fréttin,
Ölver kominn á sjúkrahús. Þegar
menn, sem aldrei hafa kennt sér
meins, þurfa á sjúkrahús, án þess
að slasast, eru það slæmar fréttir.
Þó birti upp í sumar, þá var Öl-
ver kominn heim og við fórum í
bæinn, eins og í gamla daga, sát-
um á bekknum á torginu og geng-
um með höfninni. En birtan stóð
ekki lengi, næst þegar ég kom í
land var Ölver kominn á sjúkrahús
aftur.
Ölver og Þóra áttu kjörson, Ólaf
Fannberg, sem nú stundar gagn-
fræðanám í Hagaskóla. Ölver var
vinamargur, sem best sást þegar
hann lá á sjúkrahúsinu, og var það
þó smáhópur af öllum hans vin-
um. Honum líkaði vel í Þykkvabæ
og þar var hann til moldar borinn
laugardaginn 13. nóvember.
Ég og kona mín, Aðalheiður
Sigurðardóttir, biðjum Guð að
blessa hann og styrkja konu hans
Þóru, son hans Ólaf, foreldra og
önnur skyldmenni.
Skarphéðinn Magnússon.
399