Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Side 73
Hr. forseti, góðir þingfulltrúar og
gestir.
Ég þakka stjórn Sjómannasam-
bandsins fyrir boðið hingað í dag
og fyrir að fá tækifæri til að ávarpa
fulltrúa 10. þings Sambandsins
örfáum orðum.
Við þetta tækifæri er mér efst í
huga hvernig þessi sambönd þ.e.
Sjómannasambandið og Far-
mannasambandið geta unnið
meira saman. Það má held ég segja
að sjómannasamtökin standi í dag
á krossgötum. þeir atburðir hafa
gerst á yfirstandandi ári, að nær
einstæðir eru. Samningsuppköst
fyrir fiskimenn hafa verið felld
hvað eftir annað, og gang þeirra
mála þarf ekki að rekja fyrir ykkur
hér, það þekkið þið eins vel og ég.
Hinsvegar hlýtur sú spurning að
vakna hvort það sé ekki órökrétt og
vissulega óæskilegt að sú staða
komi upp eins og í vetur. Það
hlýtur að vera best fyrir alla að
annað hvort séu allir komnir með
samninga eða enginn. En hvað er
VÍKINGUR
Ávarp forseta
FFSt, við setningu
10. þings
Sjómanna
sambands
íslands í haust
þá að þegar staða eins og í vetur
kemur upp? Jú, það í raun vantar
miklu nánara samstarf milli þeirra
aðila, sem að þessu standa þ.e.
stéttarfélaganna og eða samband-
anna. Á síðasta þingi FFSl var
samþykkt tillaga sem fól í sér
viljayfirlýsingu um aukið samstarf
eða jafnvel samruna að einhverju
eða öllu leyti við Sjómannasam-
bandið. Samstarf hefir að vísu
verið nokkuð en ekki nærri nóg.
Mér er ljóst að í gegnum árin hafa
verið uppi misjöfn sjónarmið inn-
an þessara sambanda, og útaf fyrir
sig er það kannski ekki óeðlilegt.
Hinsvegar held ég að það verði að
gerast að smávægilegar nábúa-
kritur verði lagðar á hilluna og
unnið saman heilshugar með
hagsmuni allra sjómanna x huga.
Ég geri mér fulla grein fyrir að um
þetta eru ekki allir sammála og
þetta gerist ekki með einu penna-
striki eins og einusinni var sagt.
Þetta samstarf þarf að þróast stig
af stigi, eftir því sem menn telja að
tilefni gefist til. Fyrst víðtækt
samstarf í kjaramálunum, siðan
smátt og smátt um önnur hags-
munamál sjómannastéttarinnar,
og þá fyrst þegar allir íslenskir sjó-
menn, undirmenn og yfirmenn,
farmenn og fiskimenn eru samein-
aðir undir einu merki í einu sam-
bandi fara málin fyrir alvöru að
renna í réttan farveg. Við erum jú
allir á sama báti. Félögin verða að
vera virkari hvert um sig, þ.e.a.s.
félagsmennirnir. Þá verður allt
starfið léttara.
Ég veit að hér verða mörg hags-
munamál sjómanna rædd og far-
sællega til lykta leidd, og það er
von mín að það sem ég hefi rætt
hér á undan verði rætt með opnum
huga og framsýni.
Um leið og ég flyt SÍ kveðju
FFSl óska ég þingfulltrúum ár-
angursríkra þingstarfa og lýk orð-
um mínum með því að minna á þá
staðreynd að:
SAMEINAÐIR STÖNDUM
VIÐ EN SUNDRAÐIR FÖLL-
UM VIÐ.
401