Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Side 23
Happdrætti DAS 25 ára
— vinningum fjölgað
Forráðamenn D.A.S. við hlið Mustang-bifreiðarinnar, er dregin verður út i október. Þeir
eru, talið frá vinstri: Pétur Sigurðsson formaður Sjómannadagsráðs, Baldvin Jónsson
framkvæmdastjóri happdrættisins, Hilmar Jónsson, Garðar Þorsteinsson og Tómas
Guðjónsson.
Happdrætti DAS er nú að hefja
nýtt happdrættisár, hið 25. í röð-
inni. Ákveðið hefur verið að hætta
um sinn að hafa hús í aðalvinning,
eins og verið hefur, en dreifa hæstu
vinningunum á fleiri númer.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi, er Sjómannadagsráð boð-
aði til nýverið í nýjum húsakynn-
um ráðsins að Hrafnistu í Hafn-
arfirði. Aðalvinningurinn á næsta
ári verður húseign að vali vinn-
anda fyrir 25 millj. kr. Þá verður í
júlí-útdrætti sumarbústaður að
Hruanborgum í Grímsnesi, full-
frágenginn og með öllum búnaði
og húsgögnum, að verðmæti 15
millj. kr. Bústaðurinn verður til
sýnis laugardaga og sunnudaga í
júní frá kl. 11—19 og hefjast sýn-
ingar á hvítasunnunni, þ.e.
laugardaginn 2. júní.
íbúðarvinningar verða í 1.
flokki á 10 millj. og í öðrum
flokkum á 7,5 millj. kr. Nú sem
áður verða 100 bílavinningar á 2
millj. og 1,5 millj., en einnig verð-
ur dregið um valdar bifreiðar, sem
verða Simca Matra Ranco í maí,
Mazda 929 L Station í ágúst og
Ford Mustang í október. Ferða-
vinningar verða samtals 300 og
húsbúnaðarvinningar samtals
5588.
Heildartala vinninga er 6.000,
samtals að upphæð 540 millj. kr.
Mánaðarverð miða verður 1.000
kr. og verð ársmiða 12.000 kr.
60% af heildartekjum happ-
drættisins er varið til vinninga, en
40% renna til Hrafnistubygginga.
Það er því full ástæða til að hvetja
lesendur blaðsins til að taka þátt í
happdrættinu því eins og segir í
auglýsingum happdrættisins er
VÍKINGUR
með því verið að búa öldruðum
áhyggjulaust ævikvöld, og flestir
þeirra, sem dvelja nú á Hrafnistu
eru gamlir sjómenn og aðstand-
endur þeirra.
Pétur Sigurðsson, formaður
sjómannadagsráðs og forstjóri
Hrafnistu í Hafnarfirði kynnti
síðan byggingaráætlanir í
Hafnarfirði, en þar er geysistórt
átak framundan. I næsta tölublaði
Víkingsins verður starfsemi
Hrafnistu í Reykjavík og Hafnar-
firði kynnt ítarlega, og rabbað við
nokkra vistmenn, og geta menn þá
betur gert sér grein fyrir því, hví-
líku Grettistaki Sjómannadagsráð
hefur lyft á undanförnum árum til
að þeir sem byggðu upp landið á
undan núverandi kynslóð fái að
lifa síðustu ár sín á sómasamlegan
hátt.
23
Vísindin borga sig...
Skoska skipið DUNDIN var í
reynsluferð vestur af ströndum
Skotlands, þar sem verið var að
reyna rafeindabúnað frá
Grange Marine.
Þá skyndilega kom einn af
áhöfninni auga á björgunarvesti
í fjarska. Þegar þétta var at-
hugað nánar kom í ljós að þarna
var f jögurra manna f jölskylda á
floti í sjónum, eftir að árabáti
fjölskyldunnar hafði hvolft.
Tvennt var meðvitundarlaust,
þegar DUNDIN bar að, en
fólkið komst til meðvitundar
eftir að Iífgunartilraunir höfðu
verið framkvæmdar um borð.
DUNDIN hélt þegar til lands
með fólkið, sem lagt var inn á
sjúkrahús í Arran.