Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Page 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Page 25
Nikolja Smásaga eftir Jóhannes Helga Það var tekið að rökkva. Ég hafði reikað góða stund um kirkjugarðinn og stefndi á hliðið. Það var þá sem ég rakst á leiðið í suðvesturhorni garðsins. Það var á engan hátt kynleg tilviljun að mér varð starsýnt á það. Allir sem þarna áttu leið hlutu að veita því athygli. Trékrossinn, umvafinn arfa og rusli, fúinn og morknaður orðinn af vindum loftsins og vatni him- insins, var að falli kominn ofan í rotnaðan blómsveig með upplit- uðu slitri af silkiborða, sem ein- hvem tíma fyrir löngu hafði verið blár. Leiðið gat ekki borið því ljósara vitni að enginn dauðlegur maður hirti um beinin sem þarna hvíldu. Og nafnið, það eina sem virtist vera eftir af þeim dauða, var svo óskýrt orðið og máð, að eftir nokkur ár verður það líka horfið með öllu. Það virðist vera sameiginleg ástríða með öllum, sem reika um kirkjugarða, að mega ekki reka augun í illlæsilega grafskrift án þess að hefja þegar í stað glímu við máða stafina. Og þolinmæði manna við þessa iðju eru lítil tak- mörk sett; jafnvel bráðlyndustu menn sýna í þessu efni þolinmæði, sem jaðrar við að vera yfirnáttúr- leg. Stundum er engu líkara en lífshamingja kíkjandans sé fólgin í nafni hins dauða. Og eins fór fyrir mér. Ég gleymdi brátt stund og stað og byrjaði að stauta mig fram úr stöfunum, fyrst í stað án nokk- urs árangurs, en ég gafst ekki upp. Ég gerði hverja tilraunina á fætur annarri, þolinmóður og þraut- VÍKINGUR seigur eins og allir kíkjendur á undan mér. Loks uppskar ég laun erfiðis míns og las NIKOLJA JÓNSSON MATSVEINN Mér varð ónotalega við, líkt og ég hefði verið staðinn að ámælis- verðu athæfi, því að nafnið hljómaði kunnuglega í eyrum mínum, þótt ég kæmi því ekki strax fyrir mig. En svo rann allt upp fyrir mér í einni svipan og ónotatilfinningin jókst. Ég vissi að það var aðeins mannleg forvitni — ef til vill blandin einhverjum öðrum óskýranlegum kenndum, sem þó eru öllum mönnum sam- eiginlegar — sem rak mig til að leggja slíkt kapp á að lesa úr graf- skriftinni. Samt gat ég ekki varizt þeirri hugsun að ég væri hér kominn á vit annarlegra hluta. Hér gat ekki verið um nema einn Nikolja að ræða. Mér hafði ekki komið hann í hug áratugum sam- an; ég hafði sannast að segja gleymt honum fyrir löngu, en nú þegar ég rakst svo óvænt á þetta sjaldgæfa nafn matsveinsins á Thule, þ)á rifjaðist upp fyrir mér löngu fyrndur kafli úr lífi mínu. Þama stóð ég, ég veit ekki hve lengi, kannske nokkrar mínútur, ef til vill hálfa klukkustund, starði á skakkan krossinn, en sá hann ekki. Tjald fortíðarinnar dróst til hliðar og afhjúpaði horfin svið og dána menn. Myndirnar streymdu fram, aragrúi mynda frá liðnum tíma, broslegar og drungalegar á víxl og óskipulega í fyrstu, en síð- an hægt og skipulega líkt og lygn en straumþung elfur. Þetta var eins og leiksýning. Þarna steig fólkið fram á sviðið, þarna var maddama heitin Jóna með fatið, þarna þeir Hlölli og Grimsi, sem báðir höfðu hlotið hina votu gröf fyrir löngu. Ég horfði út yfir kirkjugarðinn, en sá hann ekki lengur. Ég sá bryggju ... Þannig byrjaði það .. . Og þarna stendur Nikolja á bryggjuhausnum með rauðköflótta svuntuna blaktandi í golunni og veifar mér að koma. Ég stend skammt frá í glætunni frá ljóskeri á bryggjunni, lítill og umkomulaus drengur ofan úr sveit í atvinnuleit. Þetta er síðla kvölds á miðju sumri árið 1929, og síðbúnustu skip íslenzka síld- veiðiflotans eru um það bil að leggja úr höfn. Það ríkir ró og friður við höfnina nema öðru hverju þegar hestvagnar fara um bryggjuna með kost og veiðarfæri til skipanna, og nú þvælast tveir slíkir vagnar hver fyrir öðrum við enda bryggjunnar. Ökuþórarnir eru komnir í hár saman og skeifur hestanna slá eld á grjótinu; reiðar raddirnar berast vítt og breitt í kvöldkyrrðinni. Nikolja stendur fyrir framan mig, tvístígandi, flissandi og sprækur. Hann hefur hvíta stromphúfu á höfði og um sig miðjan rauðköflóttu svuntuna sem blaktir í golunni. Hann potar í mig leiftursnöggt. Ég hopa á hæl og matsveinninn flissar: „Og lipur eins og fluga. Andskotinn! Bara ekkert nema beinin — og lausaleikskrakki ofan úr sveit, segirðu. Ég ræð þig. Að mér heilum og lifandi, ég ræð þig. Hvað heitirðu?“ 25

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.