Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Qupperneq 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Qupperneq 28
sér hálfum inn í lokrekkjuna og gnístir tönnum. „Upp þinn djöf- ull! Þú skalt ekki leika sömu kúnstirnar hér og sá sem ég hafði á Belgaum, ælandi og mígandi undir sig hvern dag og þóttist vera sjóveikur, en sprækur eins og graðfoli í höfnum. Upp!“ Ég reyndi að rísa upp, en mat- sveinninn hélt mér niðri. Hann greip andann á lofti, spurði áfjáð- ur: „Þú ert kannske veikur? Það er viðkvæðið hjá þeim. Segðu það,“ sönglaði hann annarlega, „segðu það — og ég skal...“ Hann tútn- 28 aði út og grenjaði: „Og ég skal rota þig!“ „Ég er,“ stundi ég, „ég er ...“ „Já! Já! Ert hvað?“ Það korraði í honum, og ég hélt að augun ætl- uðu út úr augnatóftunum. „Ekki veikur.“ Ég brölti fram úr rekkjunni, en gætti ekki að velt- ingnum og féll á gólfið. Mat- sveinninn spurði þaðan sem hann stóð uppi á bekknum: „Ætlarðu að leggjast fyrir þarna?“ Ég gaf honum hornauga meðan ég skreiddist á fætur. Það var runnið af honum, og ég sá hann nú í fyrsta sinn við fulla birtu. Hann virtist vera um fimmtugt, magur og beinaber, meðalmaður á hæð, og eitthvað svo kátlega fyrirferðarlítill í buxunum. Húðin var gulleit og augun, svört eins og kolamolar og lítið eitt skásett, glóðu djúpt inni í höfðinu. Niður- andlitið var markað harðneskju- legum dráttum, en varirnar fag- urlega lagaðar og rauðar. „Hefurðu hugsað þér að vinna á nærbuxunum?“ „Nei.“ „Farðu þá í buxur. Þetta er ekkert baðhús.“ Meðan ég var að klæða mig í buxurnar hélt hann yfir mér stutt- an fyrirlestur um stöðu mína, réttindi og skyldur á skipinu. Honum ætti ég að hlýða, honum einum og engum öðrum; ég væri hans maður og engra annarra, ekki einu sinni skipstjórans. „Þú ert lægst setti maðurinn á skip- inu,“ lauk hann máli sínu, „og ekki yfir neitt settur — nema þá skipsrotturnar. Taktu svo skyr- dallinn þarna og farðu með hann upp í borðsalinn handa svín- unum.“ Að svo mæltu vatt hann sér inn í búrið og lokaði á eftir sér. Ég staulaðist valtur á fótunum upp í borðsalinn með skyrdallinn. Bekkirnir voru fullsettir mönnum. Þeir voru greinilega nývaknaðir og fýldir á svipinn. Þeir horfðu á mig, litu hver á annan, og einn sagði: „Hver djöfullinn.“ Ég roðnaði, lét skyrdallinn á borðið og sagði „veskú“ að dönskum sið eins og ég hafði heyrt þá segja á Hjálpræðishernum. Einn mann- anna, vélstjóri eftir olíukámugu andlitinu að dæma, rak putta ofan í skyrdallinn, bar hann upp að ljósinu, skáblíndi á hann og þeytti síðan skyrslettunni í andlit mér og sagði: „Það er súrt. Hvers konar morgunmatur er þetta eiginlega?“ Ég skakklappaðist fram að eld- húshurðinni. Þar stóð Nikolja og brytjaði kjöt. Ég bankaði í járn- VÍKINGUR Landssmiðjan SÖLVHÓLSGÖTU'101 REYKJAVIK-SÍMI 20680-TEUX 2207 viðgerðaþjónusla LANDSSMIÐJAN annast viðgerðaþjóustu á öllum teg- undum loftpressa, loftverkfæra og tækja. Ef óskað er sjáum við einnig um fyrirbyggjandi viðhald. JhlasCopco var stofnað 1873 og framleiðir loftverkfæri, býður einnig fram þjónustu fyrir verktaka við vinnu tilboða og aðstoðar við val á tækjum og aðferðum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.