Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Síða 33
mynd veiðiárangur sumarsins í
heild. Og þetta var skemmtilegur
dagur. Kona Grímsa stóð á brú-
arvængnum með kíki í hendi. Hún
þekkir aðeins af spum hvernig síld
sé veidd, en hún hefur heyrt að
maður sinn sé mikill bassi, og nú
er tilhlökkunin slík, að það er eins
og hún viti ekki í hvora löppina
hún eigi að stíga. Andlit hennar
speglar samsuðu monts og for-
vitni. Hún er ekki fríð, nokkuð
rasssíð, en laglega limuð, fín og
smurð.
„Þetta er spennandi,“ segi ég
þaðan sem ég stend á keisnum.
Konan horfir á mig með hroka í
auga; hún talar ekki við pikkaló
eins og mig. Hún er kona hins
mikla bassa. Brosið stirðnaði á
andliti mínu. Hvað vildi ég líka
vera að ávarpa fólk, ég sem var
ekki yfir neitt settur nema skips-
rotturnar — og við þær var ég
hræddur.
En nú eru allir komnir á sinn
stað og Grímsi grípur stýrisstöng-
ina, kippir í húfuskyggnið, kallar
snjallt:
„Sleppa!“
„Þóftubandið klárt?“
„Fulla ferð!“
Þá róta skrúfumar upp sjónum
og Grímsi leggur hart og knálega
á stýrið, stendur gleiður, og löðrið
frussast yfir hann og bátana, sem
þeysa í samfloti yfir hafflötinn.
Stafnbúarnir stíga ölduna takt-
bundið hofmannlega, með áram-
ar í kross, tilbúnir að ýta sundur
þegar bassinn kallar. Og nú
sleppir Grímsi annarri hendinni
af stýrisstönginni og bregður fyrir
auga til að athuga allar aðstæður,
stefnu torfunnar og stærð ... En
hvað er þetta? Hinn skörulegi
maður og mikli bassi verður allt í
einu að 99 útlimum, líkist vind-
myllu í lausu lofti og fellur aftur
yfir sig — í hafið.
Ég leit á konuna. Neðri partur-
inn á andliti hennar varð slappur.
Svo missti hún kíkinn, síðan vitið
VÍKINGUR
— og byrjaði að æpa. Kíkirinn féll
ofan á dekk og glerin úr honum
brotnuðu í mél.
„Jesús María,“ flissaði Nikolja
matsveinn og sló á læri sér. Hann
stóð á dekkinu horaður eins og
engispretta og skjálfandi eins og
störin í landi feðra hans.
Konan pataði mállaus í áttina
til hans, fékk svo málið og sagði í
fáti: „Viljið þér ekki stinga yður?
Maðurinn minn er nefnilega að
drukkna.“
„Það eru hákarlar,“ hló Nikolja
og tók undir sig stökk, ekki fyrir
borð, heldur að loftventlunum
yfir vélarúminu. Inn í þá tróð
hann sér og hrópaði: „Vélalið!
Komið upp fljótt, hann Grímsi er
að drukkna!“ Vélamennirnir
komu, allir komu, og Nikolja út-
skýrði fyrir þeim aðdragandann í
stuttu máli. Karlarnir göptu og
horfðu hugfangnir á það sem fram
fór á hafinu.
Konan vissi ekki sitt rjúkandi
ráð og veifaði manni sínum eins
og vitstola manneskja. „Grímsi
minn, ég er hér!“ Að svo mæltu
renndi hún beittum rauðmál-
uðum nöglunum svo harkalega
eftir hársverðinum, að augun
glenntust upp á gátt — og hvíslaði
eitthvað ráðþrota. Síðan ávarpar
hún hópinn á dekkinu:
„Ég er aumingi. Vill ekki ein-
hver bjarga manninum mínum,
hann er að drukkna.“
„Hann fær ábyggilega slag,“
hló Nikolja og dúaði í hnjálið-
unum.
Konan henti þetta á lofti og
hrópaði: „Hæ, Grímsi minn!
Passaðu að fá ekki slag!“
„Haltu kjafti, kona,“ kveður við
frá Grímsa og hann byrjar að gefa
fyrirskipanir.
Nikolja hló eins og fáviti, og nú
fór að færast líf í tuskumar.
Grímsi sýpur hveljur og blæs eins
og stórhveli, en veiðihugur hans er
veiðihugur bassa; torfan á hug
hans allan. Hann steytir nú hnef-
ann hamslaus af bræði í áttina til
bátanna, sem hafa snúið við hon-
um til hjálpar. „Kastið á torfuna!“
öskrar hann. „Kastið, fíflin ykkar,
kastið, segi ég, kastið segi ég!“ En
bátamir nálgast óðfluga og torfan
verður allt í kringum bassann og
þúsund litlir munnar segja
„glukk-glukk.“ Grímsi kjafts-
höggvar þá á báða bóga, 50 í
höggi, og liggur við köfnun af
bræði. „Ætlið ekki að hlýða?
Kastið, skipa ég, kastið, skipa ég!“
í sömu svipan renna bátarnir upp
að Grímsa og góða stund sést
ekkert nema sælöður og voldug
hönd bassans sem ber byrðinginn
utan. „Ég bít ykkur á barkann, ég
geri meira, mikið meira. Ég læt
draga ykkur fyrir sjórétt, ég læt
hengja ykkur alla með tölu og allt
ykkar fólk, mememe ...“ Báts-
höfnin innbyrti bassa sinn í einu
vetfangi, en síðamefndur var ekki
fyrr kominn inn fyrir borðstokk-
inn, en hann sópaði björgunar-
mönnunum til hliðar, stóð gleiður,
hausinn rauðsprengdur, sjóblaut-
ur hnefi á lofti og fossaði sjór úr
vitum hans. Hann ætlaði að segja
eitthvað, en skyndilega hlamm-
aðist hann eins og sprungin blaðra
niður í skut bátsins og lét ekki á
sér kræla meira.
„Gaman — gaman,“ skríkti
Nikolja og leit flírulega til brúar-
vængsins, en konan stóð þar ekki
lengur. Það var liðið yfir hana
fyrir nokkru, en hún var nú að
ranka við sér, og þegar bátamir
komu með bassann upp að skip-
inu, þá var kona hans að skríða
inn um brúardyrnar.
Heillandi sjón ber fyrir augað,
heil sinfónía í hrynjandi órólegum
litum. Svo færast litirnir í fasta
mynd og mjúkar línur kyrrláts
kvölds blasa við. Litur gullsins
glampar lágt á himni. Sólin er að
síga í hafið glampandi eins og
pússaður túkall og skýjabólstr-
amir allt í kring leika í litum pur-
framhald á bls. 36
33