Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Side 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Side 43
Poly — IS Stáltoghlerar Þyngri gerðir —13 stærðir — Toghlerar fyrir allar stærðir fiskiskipa. Léttari gerðir — 10 stærðir — Toghlerar fyrir minni stærðir fiskibáta. J. Hinriksson, vélaverkstæði Skúlatúni 6, símar 23520 — 26590 í október 1968 þegar verið var að undirbúa Alvin fyrir síðustu köfunina það sumarið og verið að hífa hann í sjóinn af móðurskip- inu, slitnaði einn vírinn og Alvin féll í sjóinn. Því miður var lúgan opin og fylltist báturinn af sjó og sökk til botns á þrettánhundruð metra dýpi, skammt frá Góðra- vonarhöfða. Slæmt veður fylgdi í kjölfarið og hindraði björgunar- aðgerðir. Alvin eyddi vetrinum á sjávarbotni en á meðan voru tvö systurskip byggð. Aluminaut Aluminaut er fimmtán metra langur djúpköfunarbátur sem einungis er byggður úr áli. Hann getur kafað á fimm kílómetra dýpi og siglt með fjögurra hnúta hraða í sjötíu og tvo tíma, með þriggja manna áhöfn. Enda þótt álbolur bátsins sé sautján sentimetra þykkur, vegur hann aðeins fjöru- tíu og átta lestir, eða þriðjung þess sem jafnstór stálbátur mundi vega. Hið mikla rúmtak bátsins, samfara lítilli þyngd ljær honum það fleytimagn sem hann þarfn- ast. Kafbátar sem notaðir eru í hernaði geta kafað á tíu sinnum minna dýpi. Stálbátur í fullri stærð hernaðarkafbáts sem væri nógu þykkur til að þola þrýsting á miklu dýpi yrði svo þungur að hann myndi steinsökkva. Hin ytri fleytikerfi sem bera uppi báta eins og Trieste torveldar mjög stjóm þeirra. í Aluminaut var reynt að sameina lipurð og styrk. En gal- linn við þessa báta er hinn stutti siglingartími þar sem þeir eru drifnir með rafhlöðum. Kjarnorkuknúnir hafrannsóknar- kafbátar Fyrsti kjarnorkuknúni haf- rannsóknarkafbáturinn var settur á flot í janúar 1969. Hann var fjörutíu og fimm metra langur. VÍKINGUR 43

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.