Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Síða 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Síða 50
daglega. George hafði fullvissað hana um að Adam myndi mæta skapara sínum, áður en komið væri til Hawaii og þegar hún kæmi aftur, yrði hún frjáls mann- eskja og gætu þau þá notið hinnar ódauðlegu ástar og fyrirtækið í sameign þeirra. En Patricia vissi ekki, að í afturlestinni, hafði verið komið fyrir klukku í sambandi við tímasprengju, sem stillt var á 7 daga. Þegar klukkan stöðvaðist myndi skipið einnig stöðvast fyrir fullt og allt, því að í lestinni voru olíutunnur og út myndi brjótast óslökkvandi eldur. Eftir að skipið var komið ör- ugglega langt frá ströndinni, í norðvestan kaldanum og 6 tímar voru liðnir frá því að látið var úr höfn, afhenti Trevers skipstjóri stýrimanninum stjórnina og fór niður í salinn til farþegans. Að tveimur dögum liðnum var skipið um 450 sjómílur frá landi, á sömu breiddargráðu og Conception- höfði. Allir um borð reiknuðu með fljótri ferð, því að nú voru þeir komnir í NA-staðvindinn og stefnan tekin á Hawaii. Að kvöldi annars dags ferðar- innar, gekk kona Adams snemma til náða. Adam og Trevers skip- stjóri sátu í salnum og drukku konjak, ræddu um skip og sjó- ferðir og barst talið að Blakely. Trevers hefur sennilega drukkið meira en sæmilegt var að við- stöddum eiganda skipsins. Fór hann hörðum orðum um Blakely og taldi staðreynd, að útgerðin væru betur komin án hans. Hann sá strax eftir því, að hafa sagt þetta, en kom á óvart að Adam var því samþykkur, en hann varð enn undrandi yfir næstu orðum hans: — Það er ekki nóg með það, að ég sé þér sammála, Elías, heldur veit ég einnig ráð til þess að koma honum frá fyrirtækinu í eitt skipti fyrir öll. Meintirðu í raun og veru það sem þú sagðir um Blakely? — Vissulega, Adam, og ég er ekki sá eini af skipstjórum félags- 50 ins, sem hafa undrast hvernig á því stæði að ágætismaður eins og þú, komst í slagtog við þetta úr- þvætti. Enginn sjómaður á þess- um slóðum myndi neita þér um nokkuð, sem þú bæðir hann um, en þeir eru fáir, sem myndu kasta enda til Blakely, þótt hann væri að drukkna. — Það gleður mig að heyra þetta, Elías, sagði Adam, — því að það er einmitt það, sem mér hefur stundum dottið í hug. Eftir þessi orðaskipti ríkti þögn um stund og Adam fyllti glösin að nýju, en hélt síðan áfram. : Manstu eftir Elizabetheyju? Hún er um 200 sjómílur vestur af Ducie-eyju. Þegar við vorum saman á Taipahia, komum við þangað að taka vat... — Ég man það, sagði Elias, — við fundum vatn á norðurenda eyjarinnar sem rann úr klettaskor, við hálffallinn sjó. Ástæðan til þess að við fundum það, var að það var eini staðurinn, þar sem við gátum lent bátnum og ég man einnig hve erfitt það reyndist að komast útfyrir rifið í bakaleiðinni. — Alveg rétt, sagð^Adam. — Þú manst þá eflaust líka?;að eyjan var óbyggð. Eftir því, sem ég best veit, hafði enginn maður komið þangað á undan okkur og vissu- lega enginn komið þangað síðan. — Hvað ertu að gefa í skyn, Adam? — Aðeins þetta, Elías. Segjum að í næstu ferð fáir þú skipun um að fara til Fiji. — Það myndi ekki vera í fyrsta skiptið, skaut Elías inn í. — Veit ég það, Elías, en segjum að í þetta skiptið yrði alvarleg skekkja í krónómetrinum og vegna mistaka væru litlar vatns- birgðir. Segjum að þú værir ná- lægt Tinamotus, þegar þú upp- götvaðir að þú værir austar en þú ættir að vera, og svo væri það vatnið. Heldurðu að þú myndir sigla austur fyrir Tinamotus og halda til Elizabeth-eyju, þar sem þú vissir að vatn væri að fá? — Það er einmitt það, sem ég myndi gera, Adam .. . — Ágætt, Elías. Segjum nú svo, að farþegi væri með í þessari ferð, sem af tilviljun væri eigandi hálfs útgerðarfyrirtækisins, sem þú starfaðir hjá og að hann færi í land til að skoða sig dálítið um, á með- an fyllt væri á vatnstunnurnar. Hann yfirgæfi vinnuhópinn og fyndist ekki. Þú gætir ekki beðið endalaust með skipið. Eins og þú veist er eyjan næstum fimm mílna löng, vaxin þéttu kjarri. Ómögu- legt að leita um hana alla. Þannig, að eftir tvo daga gæfist þú upp á leitinni og sigldir í burtu, áleiðis til Fiji, þar sem þú gæfir yfirvöldum skýrslu um hinn sorglega atburð. Það varð stundarhljótt í saln- um, nema hvað öldumar rjáluðu við timburbyrðinginn við veltur skipsins. Elías rauf þögnina: — Veðurfarið gæti líka verið þannig, að ég gæti jafnvel ekki beðið í tvo daga, sérstaklega ef ég hefði skjal, undirritað af þér, sem vottaði að ég ætti smáhlut í fyrirtækinu Blakely & Smythe. Það vottaði fyrir smábrosi í munnvikum Adams, þegar hann leit á manninn á móti sér við borðið og án þess að líta undan, dró hann uppúr jakkavasanum samanbrotið blað og ýtti því yfir borðið og sagði: „Þetta skjal gerir þig að eiganda eins fjórðahlutar í fyrirtækinu, Elías, og það er undirritað af mér. Auk þess færðu stjórn á nýja þrísiglda barkskip- inu, sem við höfum keypt í San Francisco. — Þú ert nokkuð séður, Adam, er það ekki? — Það var á þann hátt, sem ég byggði upp fyrirtækið, Elías, að treysta þeim mönnum, sem störf- uðu fyrir mig. Elías Trevers skipstjóri, lagði konjaksglasið umhyggjusamlega frá sér, á milli rimlanna á borð- plötunni og stóð upp. Hann steig VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.