Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Síða 53

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Síða 53
bátunum út, á þeim fáu mínútum, sem gáfust áður en skipið varð al- elda. Jullan var góður siglari, en gat illa borið alla skipverja auk tveggja farþega. Trevers lét því stýrimanninn, ásamt þremur há- setum fara yfir í skipsbátinn. Bát- arnir áttu að hafa samflot, að degi til, en í stærri bátnum var lítið þversegl, en að nóttu til, átti jullan að hafa skipsbátinn í drætti. Tre- vers var gætinn maður og vildi ekki hætta á að bátarnir yrðu við- skila. Hann var þó ekki í neinum vafa um að þeim tækist að komast til Hawaii. Hann hafði siglinga- tækin og vatn, en engar matar- birgðir. Það var ekki ómögulegt, að þeir gætu aflað sér fiskmetis og hann reiknaði með að komast til Hawaii á 10 dögum. í dimmunni tókst þeim að hæna að nokkra flugfiska, með því að nota ljósker og segldúkinn, en fiskarnir gátu ekki forðað sér undan hröðum höndum bátsverja. Átta dögum eftir að skipið sökk, sáu bátsverjar tind Halejakala og á níunda degi voru þeir í nám- unda við Makaspun höfða, án þess að hafa orðið varir við skipa- ferðir. Síðla kvölds tíunda dags fóru hinir litlu bátar framhjá Dia- monds höfða og næsta morgun stigu þeir á land í Pearl Harbour. Adams hafði á undursamlegan hátt náð fullri heilsu, síðan þeir yfirgáfu skipið. Eftir fárra daga hvíld, eftir volkið, var ferðin til San Francisco undirbúin. Þar átti Trevers skip- stjóri að bíða afhendingar hins nýja skips, sem Adams hafði lofað honum, en Adam og kona hans ferðast í áföngum til Port Bragg. Þegar þangað kom, labbaði Adam rólegur inná skrifstofu Blakely & Smythe. Blakely leit upp við skrifborð sitt og gapti. — Sæll George, sagði Adam hæglátlega. — Hvað er að? Það er eins og þú sjáir vofu. VÍKINGUR — Hva—að, stamaði George. — Ég átti bara ekki von á þér fyrr en um jólaleytið. — Þú hefur þá ekki heyrt um Theresu gömlu, sagði Adam. — Ég er þá á undan Frisco með fréttina. Ég er hræddur um að við höfum misst hana George. Hún brann í hafi . . . Og Adam fór að segja frá hinum hörmulegu at- burðum, áður en hann spurði um hvernig fyrirtækið hafi gengið í fjarveru hans. í febrúarlok 1888 var hið nýja barkskip félagsins „Komo“, til- búið. Adam hafði fengið ábata- saman flutning, sem átti að fara til Fiji og George Blakely átti að vera með í þessari fyrstu ferð skipsins. Hann var ekki allskostar ánægður með val Adams á skipstjóranum. Honum hafði aldrei fallið við Trevers, en langt frí, á nýju skipi, vakti tilhlökkun. Hann hafði aldrei farið í ferðalag á sjó. Nú myndi hann fá góða hvíld, svo var það að Adam og hin heimska kona hans, myndu verða fyrir al- varlegu slysi. Það var allt undir- búið. Þá yrði hann einráður um stjórn fyrirtækisins og það fyrsta, sem hann hafði hugsað sér að gera, var að reka Trevers skip- stjóra. í köldu slagviðri um eftir- mmiðdaginn hinn 26. febrúar, sigldi Komo út San Francisco flóa og tók stefnuna í suðurátt. Nokkrum dögum síðar var komið í norðvestan staövindinn. Blakely, sem þjáðst hafði af sjóveiki,f rá því að lagt var af stað, var nú orð- inn þolanlegur til heilsunnar. Trevers skipstjóri sagði að þeir myndu sigla um norðanverðan Tuamotu eyjaklasann og þá fengi Blakely að sjá kóralrif í fyrsta sinn. Hann fullyrti einnig, að eftir það yrði sléttur sjór og hiti. Þetta reyndist rétt og Blakely naut nú sinnar fyrstu sjóferðar. — En það varð nú reyndar ekki lengi, aðein til næsta morguns, þegar skipið var statt 10° fyrir sunnan mið- jarðarbaug og Trevers gerði boð fyrir Blakely og bað hann að finna sig í klefa sinn. — Hvað er að, spurði Blakely. — Aðeins það, herra Blakely, að ég er hræddur um að ferðin til Fiji taki aðeins lengri tíma, en við gerðum ráð fyrir. Blakely varð óttasleginn, þegar hann sá hinn alvarlega svip á andliti Trevers. — Ég reyni ætíð að hafa augun vel opin, þegar ég er nálægt Tuamotus, hr. Blakely. Þessi kóralrif liggja stundum djúpt og erfitt að sjá þau. Þetta er hættuleg leið og sigla verður með fyllstu gætni, þegar maður er á þessum slóðum. — Komdu þér að efninu mað- ur, sagði Blakely stuttur í spuna, og bætti háðslega við. — Mér skilst að þú hafir komið okkur í ógöngur, er það rétt? — Það má kannski orða það svo hr. Blakely. Krónometerinn virð- ist vera í ólagi, en án hans get ég ekki verið viss um lengdargráð- una, en ég held að við séum miklu austar en ég áleit þar til í morgun. Svo er það líka vatnið ... — Hvað um vatnið? spurði Blakely, sem fór að gera sér ljóst að ástandið væri alvarlegt. — Já, herra minn, ég hafði ný- lokið athugunum mínum, þegar bátsmaðurinn hafði mælt vatnið í þessum nýju geymum skipsins, kom og sagði mér að stjórnborðs- geymirinn hefði rifnað. Þar var ekki dropi af vatni. Bakborðs- geymirinn var einnig lekur og þar voru aðeins nokkrir þumlungar vatns í botninum. Með öðrum orðum, við erum vatnslausir og ekki drekkum við það, sem við siglum á. — Hvað hefurðu hugsað þér að gera? spurði Blakely. — Það hef ég nú þegar gert. Ég hefi breytt stefnunni og ætla að sigla fyrir austan Tuamotus. Síðan ætla ég að sigla rétt suður fyrir 24. breiddargráðu. Vindurin ætti að vera sunnanstæðari þar, á þessum 53

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.